Lúsífer

From TSL Encyclopedia
Revision as of 10:51, 3 July 2024 by Hbraga (talk | contribs)
Other languages:
Hluti af greinasafni um
Hið falska helgivald



   Megingreinar   
Falska helgivaldið
Fallnir englar
Andkristur



   Einstakir fallnir englar   
Belsebúb
Belíal
Lúsífer
Samael
Satan
Höggormurinn
—————
Peshú Alga



   Flokkur fallinna engla   
Nefilím (Risarnir)
Verðirnir
Lúsíferar
Höggormar
Djöfladýrkendur
Djöflar
Synir Belíals



   Greinar af hinu falska bræðralagi   
Illúmínati
Hið indverska svartbræðralag
Bræðralag hins svarta hrafns
Falskir gúrúar
 

[Úr latínu, sem merkir "ljósberi".] Sá sem náði stöðu erkiengils og féll úr náð vegna drambs, ofmetnaðar og löngunar til að vera ofar stjörnum Guðs (sonum Guðs og Elóhíms), fyrir ofan dýrð Shekinah til að standa ofar hinum hæsta. „Hversu ertu hröpuð af himni, þú árborna morgunstjarna! ...“[1]

Frumgerð (erkitýpa) hins hnattræna jaðarbúa.

Andkristur.

Fallnir englar

Jesaja 14:12–17 veitir ritningarlega frásögn af stríðsyfirlýsingu Lúsífers gegn almáttugum Guði og Kristi hans:

Nú ertu fallinn af himni, ljósberi, sonur morgunroðans. Nú ert þú að velli lagður, sigurvegari þjóðríkja!

Þú sagðir við sjálfan þig: „Ég skal stíga upp til himins, ofar stjörnum Guðs, þar skal ég reisa hásæti mitt. Á þingfjalli guðanna tek ég mér sæti, yst í norðri.

Ég skal stíga ofar hæstu skýjum, líkjast Hinum hæsta.“

En þér var varpað niður til heljar, í hina dýpstu gryfju.

Þeim sem líta þig verður starsýnt á þig, þeir virða þig vandlega fyrir sér: „Er þetta maðurinn sem skók alla jörðina, lét konungsríki riða?

Hann gerði jörðina að eyðimörk, reif niður borgir og sleppti föngum sínum ekki heim.“

Sanat Kumara talar um englana sem fylgdu Lúsifer í uppreisninni miklu:

Í uppreisninni miklu gegn Drottni Guði almáttugum og hersveitum hins himneska helgiveldis tældi Lúsifer ekki fáa englahópa undir forystu félaga hans. Nöfn þeirra eru nefnd í Enoksbók og í öðrum apókrýfubókum og í ritningum austurs og vesturs.

Áberandi eru nöfnin Satan, Beelsebúb, Belíal, Baal o.s.frv. Eitt slíkt nafn, slægs og slóttugs leiðtoga hóps fallinna, hefur verið með lágstafi í orðasafni hinnar heilögu ritningar og það hefur fengið á sig táknræna frekar en persónulega merkingu. Það er höggormurinn.

Þar sem hugtakið hinn „mikill dreki“ vísar til samsteypu alls lúsíferísks falsks stigveldis, sem er fylkt gegn Stóra hvíta bræðralaginu, sérhæfa einstakir aðilar þess og yfirstjórnendur sig í ákveðnum aðferðum ofsókna „drekans“ gegn konunni og í stríðinu háð af falska stigveldi Lúsífería gegn öðrum afkomendum konunnar.

Þar sem Satan er þekktur sem hinn upphaflegi manndrápari sem myrti ljósberana til að koma í veg fyrir guðdómlegu ráðagerð Guðs á jörðinni er höggormurinn, sem einnig er „kallaður djöfullinn og Satan,“ erkióvinurinn, hinn upphaflegi lygari og faðir lyginnar. þar sem blekkingarheimspeki, byggð á ótta og efa, er aðferð hans í hernaði hans gegn hinum sanna Kristum og hinum sönnu spámönnum.

Höggormurinn er hinn vondi, sem ásamt sæði Satans er sáð sem illgresi meðal hins góða hveitis hins Krists-borna sæðis. Það er þetta sæði sem kallast afkomendur naðranna. Naðra („viper“) er úr grísku þýðingunni á eiginnafninu „Höggormur,“ sem ásamt föllnum hópi hans var varpað af himni og íklæddust holdi á jörðu þar sem þeir hafa haldið áfram að endurholdgast frá uppreisninni miklu.<ref. >Elizabeth Clare Prophet, The Opening of the Seventh Seal: Sanat Kumara on the Path of the Ruby Ray, 33. kafli.</ref>

Englarnir sem fylgdu þessum erkióvini sem Jesús nefndi „föður lyganna“ og „manndrápara frá upphafi,“[2] eru hinir föllnu, einnig kallaðir lúsífersinnar, satanistar eða synir Belíal (eftir ýmsum undirmönnum þeirra). Þessir uppreisnarmenn gegn frumorsökinni voru meira en óhlýðnir og lastmæltu og fyrirlitu föðurinn og börn hans sem þeir íklæddust holdinu á meðal (sjá dæmisöguna um illgresið meðal hveitsins, Matt. 13), eftir að hafa verið lækkaðir í tign – til lágs ástands endurfæðingar í holdinu af Drottinn.

Lokadómur Lúsífers

Mikael erkiengill batt Lúsifer „á jörðu“ 16. apríl, 1975 (eins og hann og englar hans höfðu verið bundnir „á himnum“ af sama verndara trúarinnar og englunum hans) og færður fyrir Dómstól hins helga elds á Síríusi þar sem tuttugu og fjórir öldungar réttuðu yfir honum á tíu daga tímabili. Vitnisburður margra ljóssálna í holdinu á jörðu og öðrum plánetum og kerfum var gefinn ásamt vitnisburðum hinna uppstignu meistara, erkiengla og Elóhíma.

Þann 26. apríl, 1975 var hann fundinn sekur um algjöra uppreisn gegn almáttugum Guði með einróma atkvæðum hinna tuttugu og fjögurra og dæmdur til annars dauða. Þar sem hann stóð á palli hins helga elds fyrir réttinum þyrlaðist upp logi Alfa og Ómega sem gríðarmikið hvítt ljós sem afmáði sjálfsmynd og vitund þess sem hafði haft áhrif á fall þriðjungs engla vetrarbrautanna og á ótal lífsbylgjur sem þróast í þessu og öðrum heimskerfum.

Margir sem fylgdu hinum fallna í uppreisninni miklu gegn syni Guðs hafa einnig verið leiddir fyrir rétt. Afkomendur hans, sem enn eru „reiðir út í konuna“ og sveinbarn hennar, eru í stríði við ljóserfingja Sanat Kumara á jarðplánetunni.[3] Daglega eru þeir bundnir af Míkael erkiengli og hersveitum Drottins og dæmdir til að sæta réttarhöldum í lokadómnum þar sem tími þeirra er liðinn einn af öðrum – og þeir eru dæmdir: „sérhver eftir verkum sínum,“ eins og engill Jesú sýndi Jóhannesi opinberunarmanni það í sýn á síðustu dögum fiskaaldar.

Sjá einnig

Fallnir englar

Satan

Til frekari upplýsinga

Elizabeth Clare Prophet, Fallen Angels and the Origins of Evil

Sjá einnig dæmisögu Jesú um illgresið og hveitið (Matt. 13:24–30, 36–43).

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

Archangel Gabriel, Mysteries of the Holy Grail.

  1. Jes. 14:12.
  2. Jóhannes 8:44.
  3. Sjá Opb. 12.