Translations:Serpent (fallen angel)/13/is
Fyrsta Mósebók lýsir því hvernig Höggormurinn freistaði Evu til að neyta ávaxta (orkuauðlinda) föðurins, sonarins og hins heilaga anda – máttar, visku og kærleika Guðs – og neyta þeirra til að viðhalda sjálfhverfri tilveru utan Guðs. Með aðfinnslusömum augum höggormsins „sá konan að tréð var gott að eta af“. Þetta var freisting bláa skúfsins, fyrstu persónu þrenningarinnar, föðurins. Höggormurinn sýndi konunni að orkuauðlindir föðurins mætti neyta eða misneyta, eins og hann orðaði það, til að ná öllum efnisgæðum heimsins, til að eignast auð og allt sem þurfti til að mæta kröfum hins holdlega manns.