Translations:Serpent (fallen angel)/5/is
Þeir voru kallaðir höggormar vegna þess að þeir höfðu ofurfærni í að meðhöndla kúndalíni lífskraftinn. Kúndalíni er eins og höggormur í útliti sem hringar sig saman við mænurótarbotn hryggsúlunnar sem fullnuminn getur reist til þriðja augans. Þegar kúndalíni er vakinn byrjar hann að rísa upp mænugöngin. Við sjáum þetta táknað með merkúrsstafnum, tákni læknastéttarinnar (og verslunarstéttarinnar). Merkúrsstafurinn er myndskreyttur sem stafur með tveimur samtvinnuðum snákum sem rísa upp í vængi efst. Þegar hinn helgi eldur rís á mænualtarinu í gegnum slöngurnar tvær (þ.e. karl- og kvenorkan) læknar hann sjúkdóma mannkyns.