Samúel og Karítas

From TSL Encyclopedia
Revision as of 09:42, 6 August 2024 by Hbraga (talk | contribs)
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Kvenerkiengillinn Karítas

Samúel og Karítas eru erkienglar og kvenerkienglar þriðja geislans.

Erkiengillinn Samúel, nafn hans merkir „sá sem leitar Guðs“, og guðleg samfella hans, Karítas kvenerkiengill, þjóna á þriðja geisla guðdómlegs kærleika og halda ljósvakaathvarfi uppi yfir St. Louis, Missouri – musteri kristals-rauðgula logans. Bogi guðlegs kærleika myndar brú á milli þessa athvarfs og elóhíms þriðja geislans, Heros og Amoru, á ljósvakasviðinu nálægt Winnipegvatni í Manitoba, Kanada.

Saman með liðsveitum sínum, englum rauðgula logans, felst þjónusta Samúels og Karítasar í að efla tilbeiðslulogann og guðdómlega ást í hjörtum manna og náttúruvera. Þeirra máttur og megin er að veita leiðbeiningar í réttri notkun á sköpunarkrafti guðdómsins í fögnuði Krists.

Babelsturninn, Pieter Bruegel eldri

Babelsturninn

Samúel er erkiengillinn sem gaf tilskipunina sem ruglaði tungumál þeirra sem reyndu að byggja Babelsturninn, reistur af Nimrod til dýrðar Nimrod. Rúbíngeisla-dómur DROTTINS sló niður í gegnum Samúel og á augabragði talaði fólkið mismunandi tungumál.[1] Allt varð að einni ringulreið og ótti breyttist í reiði — reiði gegn DROTTNI og hefndarengli hans. Vegna þess að fólkið gat ekki lengur átt samskipti sín á milli gat það ekki lengur lagt á ráðin um að gera illt og ruglun á tungumáli þeirra kom í veg fyrir hraða útbreiðslu illsku samfélagsins. Þannig heldur kærleikur Guðs mannkyninu aðskildu uns það er fullkomnað í kærleikanum.

Nimrod var uppreisnarengill sem hafði metnað til að stjórna heiminum. Uppreisnarenglar á háum stigum eru staðreynd lífsins á jarðarplánetunni; þeir hafa verið hér síðan þeir töpuðu stríðinu á himnum og Mikael erkiengill og hersveitir hans vörpuðu þeim niður á jörðina. Þeir lifa og hrærast á meðal okkar í efnislíkömum sem eru oft stærri en hjá meðalmanni. Erkienglarnir heyja enn stríð við fallna engla fyrir hönd barna ljóssins. Þið getið fengið hersveitir þeirra til liðs við ykkur til að berjast fyrir málstað barna, fátækra, heimilislausra og allra sem þjást undan oki karma þeirra sem og undan harðstjórn fallinna engla.

Þjónusta þeirra

Hersveitir Samúels og Karítas geta birst í fullum tignarlegum herklæðum eða í hátíðarskrúða eftir atvikum. Þeir geta komið í mýkt móðurinnar til að hughreysta. Stundum eru þeir klæddir í það sem virðist vera lag af fíngerðum rauðgulum skrautbúningi eða dýpkandi litum rósar og rúbíngeisla; þetta eru í raun og veru lög af ljósi úr híalíni.

Erkienglarnir Samúel og Karítas kenna ykkur að þroska miskunn, samlíðan og kærleiksríka góðvild fyrir öðrum. Þeir kenna ykkur að hafa umskipti á óréttlætiskennd ykkar yfir í fullkomið traust á endanlegri úrlausn hins guðdómlega kærleika. Þeir kenna ykkur að efla kærleikslogann í hjarta ykkar og búa ykkur undir niðurstigningu heilags anda í musteri ykkar. Þeir munu lækna lögin í áru ykkar þegar þið sýnið guðrækni og þjónustu við Guð í þeirra nafni.

Samúel og Karítas segja:

Í hvert sinn sem þið gefið möntrufyrirmæli með fjólubláa loganum, lofsyngið Guð almáttugan og farið með innilegar bænir er englunum leyft að létta af áru ykkar og líkama eitthvað af byrðunum sem þið berið.

Ef þið bjóðið okkur komum við heim með ykkur. Við hjálpum ykkur í erfiðum fjölskylduaðstæðum. Við munum snúa okkur að því sem er hjarta ykkar mest íþyngjandi. Við munum jafnvel hjálpa ykkur að finna starf — eða bílastæði! Við munum gera allt sem þið biðjið um, svo framarlega sem það er lögmætt fyrir okkur að gera það fyrir augliti Guðs.[2]

Sjá einnig

Musteri kristals-rauðgula logans

Babelsturninn

Um kosmísku veruna Karítas, sjá Karítas, kosmíska veran.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Samúel og Karítas”.

  1. 1. Mós. 11:1–9.
  2. Elizabeth Clare Prophet, 10. mars, 1996.