Translations:Zadkiel and Holy Amethyst/1/is
Sadkíel er erkiengill sjöunda geislans. Erkienglarnir Sadkíel og heilög Ametýst standa fyrir frelsi Guðs, alkemíu (dulefnafræði gullgerðarlistarinnar), alkemíska umbreytingu, fyrirgefningu og réttlæti, nákvæmlega sömu eiginleika sem Saint Germain og tvíburalogi hans, kvenmeistarinn Porsja eru fulltrúar fyrir. Starfsemi þeirra virkir orkustöð sálarsetursins og liturinn er fjólublár. Dagur sjöunda geislans er laugardagur sem þýðir að við getum fengið meiri losun ljóss, orku og algeimsvitundar frá orsakalíkama Sadkíels og Ametýstar þann dag.