Translations:Brahma/3/is
Litið er á Brahma sem föðurímyndina og fyrstu persónu þrenningarinnar, sem hina ómælanlegu verund – skapara, æðsta stjórnanda, löggjafa, viðhaldara og uppsprettu allrar þekkingar. Brahma er guðlegt almætti holdgert. Guðdómleg samfella hans, eða shaktí, er Sarasvatí, virkur grunnþáttur Brahma. Þessir guðlegu elskendur eru dæmi um karllæga og kvenlega holdtekningu kosmíska kraftsins.