Agni jóga

From TSL Encyclopedia
Revision as of 13:13, 26 September 2024 by Hbraga (talk | contribs)
Other languages:
Múhameð á Hírafjalli, Nicholas Roerich (1925)

[Sanskrítarorð Agni: 'eldur'. jóga: 'ok (binda á klafa)', skylt latínuorðinu jungere 'að taka þátt'; guðleg sameining] Sameining mannsins við Guð í gegnum hinn helga eld. Agni jóga, eða jóga eldsins, er jóga athafna frekar en meinlætalifnaðar.

Eins og útskýrt er í bókinni Agni jóga,

Eldur mun ekki leiða frá lífinu; hann mun virka sem áreiðanlegur leiðarvísir til fjarlægra heima. ... Sá sem vill synda verður að kasta sér óttalaus og kafa í vatnið. Og sá sem hefur ákveðið að ná tökum á Agni jóga verður að umbreytast og taka stakkaskiptum með ástundun sinni allt sitt líf. ... Sannlega, allar aðgerðir verða að vera vera gæddar hreinsandi brennandi átökum viðleitninnar. ...

Rétt eins og eldurinn er alltumlykjandi grundvöllur [tilverunnar], þnnig gegnsýrir Agni Yoga allt lífið. Maður getur tekið eftir því hvernig meðvitundin skerpist smám saman, hvernig raunveruleg verðmæti umhverfisins koma fram, hvernig óumbreytanleg samvinna heimanna vex. Þannig fyllist lífið af táknum hins æðsta skilnings. Sannleikurinn fær raunverulegt gildi og verður hluti daglegs lífs.[1]

Hinir uppstignu meistarar kenna að leið agni jóga sé eldleg tjáning Orðs og athafna Drottins. Það er ekki aðeins ákall hins helga elds með vísindum hins talaða Orðs og fjólubláa logans, ris hins helga Kúndalíni elds frá orkustöð mænurótarinnar til hvirfilorkustöðvarinnar, heldur er hún einnig eldheit aðgerð fyrir réttindi, fyrir sannleikann og til varnar hins lifandi Krists í Guðs-börnum.

Hið æðsta jóga

Hið æðsta jóga er agni jóga. Þetta er jóga eldsins — helgur eldur. Það fer handan við hin fjögur jógakerfin sem eiga við um fjóra lægri líkamana því það leiðir til uppstigningar. Þetta jóga hafa allir boðberar Stóra hvíta bræðralagsins kennt mönnum. Jafnvel spámenn Ísraels iðkuðu eldjóga.

Á 2. áratug [síðusta aldar] fóru Nicholas Roerich og Helena Roerich að gefa út kenningar El Morya og annarra meistara hins Stóra hvíta bræðralags með bókum sem Agni Yoga Society gaf út. Agni jóga er jóga hins helga elds Guðs-móðurinnar, helgur eldur Orðsins holdgerður með hinu talaða Orði (virkum möntrufyrirmælum), helgur eldur föðurins og heilags anda. El Morya talar um agni jóga sem jóga 21. aldarinnar:

All preceding Yogas, given from the highest Sources, took as their basis a definite quality of life. And now, at the advent of the age of Maitreya, there is needed a Yoga comprising the essence of the entire life, all-embracing, evading nought, precisely like the unignitible youths in the biblical legend who valiantly sacrificed themselves to the fiery furnace and thereby acquired power.[2]

You may suggest to Me a name for the Yoga of life. But the most precise name will be Agni Yoga. It is precisely the element of fire which gives to this Yoga of self-sacrifice its name.... Fire will not lead away from life; it will act as a trustworthy guide to the far-off worlds....

Let us see in what lie the similarities and differences between Agni Yoga and the preceding Yogas. Karma Yoga has many similarities with it when it acts with the elements of Earth. But when Agni Yoga possesses the ways to the realization of the far-off worlds, then the distinction becomes apparent. Raja Yoga, Jnana Yoga, Bhakti Yoga are all isolated from the surrounding reality; and because of this they cannot enter into the evolution of the future. Of course, an Agni Yogi should also be a Jnani and a Bhakta, and the development of the forces of his spirit makes him a Raja Yogi. How beautiful is the possibility of responding to the tasks of the future evolution without rejecting the past conquests of spirit!”[3]

Innhverfing hins helga elds

Það eru engar framfarir án elds. Þetta er það sem vegferð dýrlinga (helgra manna) snýst um. Þeir sem ekki innbyrða hinn helga eld — því að þeir hafa ekki beygt kné frammi fyrir Guði vorum, sem er eyðandi eldur[4]—upplifðu eldinn sem streitu. Þeir leitast við að flýja bæði eldinn og álagið með því að „komast í burtu frá öllu“.

Þeir sem upplifa eld sem eld læra að innhverfa hann með millispili hugleiðslu, samneyti við móður jörð, jóga, pranayama öndunaræfingum, tilbeiðslu, möntrufyrirmælum eða líkamsstarfsemi sem fjörgar og stillir líffærin. Aðrar aðferðir sem örva aðlögun elds í fjórum lægri líkömunum er að hlusta á sígilda eða andlega tónlist, taka þátt í taktföstum og skapandi athöfnum, reisa Kúndalini kraftinn[5] — jafnvel djúpsvefn þar sem gangið er til þjónustu við hinar himnesku hersveitir á ljósvakasviðinu með því að yfirgefa líkamsmusterið [að næturlagi]. Vinnan sjálf er leið til að samlagast eldinum.

Í bókinni Heart (Hjartað) má lesa: "Jafnvel æðstu verur verða að brenna í anda til að vera starfshæf."[6] Þegar þið náið ákveðnu stigi á andlegu brautinni, gætuð þið orðið fyrir áföllum og hörmungum í lífinu nema þið brennið í andanum á þeirri stundu og ávallt eftir það. Það er ógerlegt að birta og viðhalda ákveðnu andlegu stigi án þess að kynnast eldinum.

Sjá einnig

Jóga

Heimildir

Pearls of Wisdom, 33. bindi, nr. 44.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and the Spiritual Path.

Mark L. Prophet og Elizabeth Clare Prophet, Vísindi hins talaða Orðs, Bræðralagsútgáfan, Bræðralagsútgáfan, Reykjavík, 2022.

  1. Agni Yoga, 5. útgáfa, endursk. (New York: Agni Yoga Society, 1980), bls. 101, 103, 108
  2. See Daniel 3.
  3. Agni Yoga, pp. 100–102.
  4. 5. Mós 4:24; Heb 12:29.
  5. Sumum sem vilja reisa Kúndalíni eldinn er óráðlegt að grípa til óskynsamlegrar og tilviljunarkenndrar notkunar á ýmsum gerðum jóga eða jafnvel ólöglegum ofskynjunarlyfjum. Ris Kúndalíni undir handleiðslu uppstignu meistaranna er ekki skyndilegur eldblossi, heldur mild vitundarvíkkun og efling. Lykillinn að því að ræsa þennan kúndalíni kraft er tilbeiðsla á móðurgyðjunni. Rósakransbænin er örugg og áhrifarík aðferð til að vekja ljós Guðs-móðurinnar með brennandi kærleikshita og tilbeiðslu, án ofsafengins orkugoss.
  6. Heart (New York: Agni Yoga Society, 1944), bls. 244.