Translations:Lemuria/10/is
Langt umfram okkar eigin lítilfjörlegu afrek urðu til hinar miklu tækniframfarir á öldum samfelldrar menningar á Mu í gegnum alhliða samstöðu með hinni guðdómlegu móður, en vitund hennar spannar lögmálin sem stjórna allri efnisbirtingu á jörðinni. Árangurinn á öllum sviðum þjóðar sem helgaði sig áætlun Guðs sem opinberað er í gegnum Alsjáandi auga hans sýnir til hvaða hæða siðmenning getur risið þegar móðurloginn er heiðraður og dáður í hverju hjarta og varinn og efldur í helgiskrínum tileinkuðum nafn hennar. Og það verður ljóst að fall mannsins frá náð var í raun afleiðing þess að hann féll frá dýrkun móðurinnar og misnotkun hans á orku sæðisfrumeindarinnar sem er í brennidepli í mænurótarorkustöðinni sem reisir ljós móðurlogans í líkamanum.