Translations:Lemuria/10/is

From TSL Encyclopedia
Revision as of 18:53, 2 October 2024 by Hbraga (talk | contribs)

Langt umfram okkar eigin lítilfjörlegu afrek urðu til miklar tækniframfarir á öldum samfelldrar menningar á Mu í gegnum alhliða samstöðu með hinni guðdómlegu móður en vitund hennar spannar lögmálin sem stjórna allri efnisbirtingu á jörðinni. Atgervi þjóðar sem helgaði sig ráðagerð Guðs á öllum sviðum sem opinberaðist í gegnum alsjáandi auga hans. Það sýnir til hvaða hæða siðmenning getur risið þegar móðurloginn er heiðraður og vegsamaður í hverju hjarta og verndaður og efldur í helgiskrínum tileinkuðum nafni hennar. Og það verður ljóst að fall mannsins úr náð var í raun afleiðing þess að hann féll frá dýrkun guðsmóðurinnar og misnotkun hans á orku sæðisfrumeindarinnar í brennidepli mænurótarstöðvarinnar sem reisir ljós móðurlogans í líkamanum.