Hatha jóga

From TSL Encyclopedia
Revision as of 10:43, 5 October 2024 by Hbraga (talk | contribs) (Created page with "<blockquote> Þannig þjóna fegurð og stærðfræði, hlutfall og gullna hlutfallið til að auka boðskap orðsins sjálfs. Þannig leituðum við og leitum alltaf í athvarfi okkar að lífga upp á fornar heimildir akasha um stóru sálirnar sem hafa andað lifandi loga. Við rannsökum rúmfræði dyggðarinnar eins og hún sést á eteríska sviðinu. Við rannsökum víddir aura og hvernig titringur ljóssins og samhljómur þeirr...")
Other languages:

Í huga flestra á Vesturlöndum er jóga sama og hatha jóga, sem er kerfi líkamlegra æfinga sem gerir mönnum kleift að stjórna önduninni og líkamsstarfseminni. Þetta jóga er aðeins eitt af mörgum jógakerfum sem kennt er í Austurlöndum.

Þegar það er stundað sem markmið í sjálfu sér getur hatha jóga í raun leitt mann afvega frá Guðs-birtingu, eða sameiningu við Guð. En hinn uppstigni meistari Chananda, yfirmaður Indverska ráðsins, mælir með hatha jóga sem

... viðeigandi röð líkamsæfinga sem hafa gagnverkandi áhrif við hina andlegu líkama mannsins og orkustöðvarnar. ...

Markmið þess er ekki þjálfun líkamans. Það byggir á guðdómlegum hreyfingum fyrir losun ljóss sem er jafnvel njörvað í frumum líkamans og frumeindum, í hjarta líkama ykkar. Að leysa þetta ljósi vinnur gegn eiturefnum, þreytu og andstöðu við sigur ykkar. Og þess vegna munuð þið ekki uppskera mikið þó þið æfið endalaust [hatha jóga] nema því aðeins að þið gerið þær í samblandi við hugleiðslu og einbeitingaæfingar. Það mun veita ykkur vörn gegn [óhóflegri] streitu sem fylgir því að bera byrðar heimskarmans og byrði þessarar ákveðnu gerðar óreiðuorku sem er einkennandi fyrir vestræna sveiflutíðni sem stafar frá múgvitund stjórnlausra geðlíkama og orkusóun og kæruleysislegri misnotkun á huglíkamanum.

Þið getið tekið þessa leið til handagagns en látið hana samt ekki standa í vegi fyrir venjulegri þjónustusemi. Við óskum þess að sjá [hjá ykkur] einhug og aga [sem verður til þess að slöngukrafturinn] rís upp frá grunni pýramídans í orkustöð mænurótarinnar og stígur upp í hvirfilorkustöðina. Mörg ykkar hafið agað ykkur með ástundun andlegra æfinga og dregið fram ljós hinnar voldugu ÉG ER-nærveru niður í hjartað og inn í lægri starfstæki [líkamans]. Og þetta er eins og það á að vera, þar sem vegur Guðs föður er lækkandi ljós og leið guðsmóður er stígandi ljós. Þannig byggjum við frá þeim grunni.[1]

Umsögn uppstignu meistaranna um hatha jóga

Saint Germain:

Ég segi, haldið áfram því að englarnir vaka yfir ykkur, fullnumar komið nær, skrásetningarenglarnir gefa skýrslu til skrásetjaranna. Og ég fylgist með og bíð líka. Við erum reiðubúin til að flytja ykkur blessanir og vígslur og hvata til aukinna lífsgæða í musteri ykkar. Ég bið ykkur því að kynna ykkur allt það sem fullnumar hafa kennt, að stunda eitthvert jóga, einhvers konar hugleiðslu og gera það með það í huga að upplifa nýjar vitundarvíddir. Já, meginlönd hugans eru ykkur opin, en þið hættið ykkur ekki þangað nema þið hafið hæfnina.[2]

Jesús:

Bæn, fasta, íhugun nærveriunnar — líkamsrækt, jóga, anda að sér fersku lofti og sólskini, o.s.frv. — og umfram allt, jafnaðargeð, háleitt hugarfar, hæfileg hvíld og heilnæmt mataræði mun bæta notkun ykkar á hinu talaða Orði og flýta fyrir því að vekja guðlegar minningar úr huga Guðs innan ljósvakalíkama ykkar og jarðtengir þær í heilafrumunum og miðtaugakerfinu. Að fylgja eftir ofangreindum skrefum stuðlar að því nauðsynlega jafnvægi sem gerir ykkur bæði friðsæl og frjálsleg í fasi, sjálfsörugg á hinni andlegu leið ykkar og gerir ykkur að glaðlegu fordæmi sem breiðir út gleði og eldmóði til allra! Þannig andar maður að sér helgum tilgangi og nær honum![3]

Porsja:

Þess vegna, ástkæru vinir, hafið þá tilfinningu fyrir jafnri stöðu að [koma] Krists-fyllingarinnar í ykkur ætti að gera ykkur jafningjum hinna óuppstignu meistara Austurlanda fjær. Skiljið að þó að Krists-hugur ykkar geti tekið sér bólstað í ykkur og þjónað í gegnum ykkur, þá krefst fulla bólstaða þess í musteri ykkar meiri styrks heilags anda sem er jarðtengdur í líkamlegu formi, frumeindum, frumum og orkustöðvum.

Vitið því, ástvinir, að líkamleg geta þessa líkama, rétt hreyfing og jóga að eigin vali, sem þýðir líkamleg umhyggja við eigin ÉG ER-nærveru ykkar er nauðsynlegur þáttur í hvaða mataræði sem fylgt er. Vitið því að heilnæmi lífsins, siðferði, varðveisla lífskraftsins, þess sem er ljúft og hreint og kærleiksríkt, upplífgandi, allt þetta stuðlar að heilsu sem verður jafnvel heilleiki [heilagleiki] og ker fyrir [úthellingu] heilags anda.[4]

The Gullguðinn:

Ef þið getið hugsað ykkur voldugan staf — efri hluti stangarinnar er Alfa, neðri hluti stangarinnar er Ómega og miðja stangarinnar er á deplinum á milli ljósvakaáttundarinnar fyrir ofan og áttund efnissviðsins fyrir neðan (þ.e. miðja stangarinnar er þar af leiðandi í hjartastað) — þið gætuð því séð fyrir ykkur hönd Elóhíms sem grípur þessa stöng, snýr henni nú. Og þar sem henni er snúið beint á sinn stað, snúast skautin við.

Og sjá, á örskotsstundu er ljósvakaáttundin á jörðinni og efnislega áttundin skipar nú þann stað sem ljósvakabandið hafði áður. Hið neðra stígur upp til umbreytingar; hið efra lækkar til samlögunar. Og þannig á jöfnun sér stað á milli krafta Alfa og Ómega sem er endurtekið á ykkar eigin rafskautsvaldsviði sem er mænualtari ykkar eigin kúndalíni elds.

Og þannig sjáið þið, þegar þið stundið þessar guðdómlegu jógastöður og þið standið á höfði eruð þið, ástvinir, að líkja eftir þessum viðsnúningi stangarinnar og draga þess vegna ljósvakalíkamann niður og gefa efnislega líkamanum tækifæri til að hlaðast með æðra ljósi. Og axlarstaðan mun duga því það geta ekki svo margir á Vesturlöndum, hættulaust, stundað þá höfuðstöðu.

Ástvinir ljóssins, gerið ykkur grein fyrir hinum mikla krafti, jafnvel þegar þið hangið á hvolfi í nútíma æfingatækjunum ykkar. Sama meginreglan gildir — að vera á hvolfi dregur kraft hins helga elds og ljósvakalíkamanss inn á jarðarsviðið til ykkar. Og þannig er þetta merking eins augnabliks Guðs. Ég gef ykkur æfingu til sjónsköpunar, fyrir alkemíska umbreytingu og fyrir líkamlega áreynslu.[5]

Páll feneyingur:

Þannig þjóna fegurð og stærðfræði, hlutfall og gullna hlutfallið til að auka boðskap orðsins sjálfs. Þannig leituðum við og leitum alltaf í athvarfi okkar að lífga upp á fornar heimildir akasha um stóru sálirnar sem hafa andað lifandi loga. Við rannsökum rúmfræði dyggðarinnar eins og hún sést á eteríska sviðinu. Við rannsökum víddir aura og hvernig titringur ljóssins og samhljómur þeirra gerir einstaklingnum kleift að bera meira og meira ljós.

Við myndum færa kennurum okkar í skólunum okkar hér einhvern skilning á nauðsyn náðar og línu og hreyfingar, sem færir okkur að efninu – hvort sem um er að ræða jóga eða ballett eða dansinn eða gönguna – á náttúrulegri náð sálarinnar sem ætti að vera tjáð í líkamsformi til að losa fohat, til að losa hinn heilaga eldanda. Hljóð- og tónlistarmynstur sem lýst er upp verða leiðin til að opna hjartastöðin, minnka spennu og þar af leiðandi auka ástina og þakklætið fyrir lífið.[6]

Kyklópea:

Munið að við höfum samþykkt og talað fyrir ýmsum jógakerfum til að viðhalda takti lífsins. Þegar þetta er sameinað öndunaræfingu Djwal Kúls og sjónmyndun þrígreinda logans til að ljósið flæði í orkustöðvunum, jógataktinum, takti kraftmikilla möntrufyrirmæla, réttu mataræði, líkamsæfingum og að stara á sólina einu sinni á dag í tíu mínútur þegar þið ákallið Helios og Vestu (gæta þess um leið að gera ekki augun berskjölduð fyrir beinum glampa sólar) gefur það ykkur samband við voldugan ljósforða í hjarta Helíós og Vesta sem er orkujöfnun fyrir þetta sólkerfi.[7]

Djwal Kúl:

Those who are students of the ascended masters need not practice the traditional forms of yoga to attain the immortal reunion. Nevertheless, they will find in these sciences the presaging of the higher way of fulfillment through the energies of the Holy Spirit invoked as the fires of transmutation and liberation. When your aura becomes filled with the fire of God through daily invocations made in the name of the I AM Presence, fiats of the Word, and decrees of definition, there is a pressure that is brought to bear upon the soul and consciousness whereby its true identity, its individuality, is literally catapulted into the Holy of Holies, the secret place of the Most High God that is the I AM Presence.[8]

Sjá einnig

Jóga

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and the Spiritual Path, 1. kafli, “The Highest Yoga.”

  1. Chananda, 29. desember, 1979.
  2. Saint Germain, "The Greatest Service You Can Render: Presage the Coming Age of Enlightenment," Pearls of Wisdom, 47. bindi, nr. 52, 26. desember, 2004.
  3. Jesus and Kuthumi, Corona Class Lessons: For Those Who Would Teach Men the Way, 39. kafli.
  4. Portia, "The Mother of Aquarius," Pearls of Wisdom, 31. bindi, nr. 41, 17. júlí, 1988.
  5. The God of Gold, "The Divine Alchemy of the Cosmic Interchange," Pearls of Wisdom, 52. bindi, nr. 7, 1. apríl, 2009 .
  6. Páll Feneyjarinn, „List ástarinnar,“ Pearls of Wisdom, vol. 27, no. 3, 15. janúar 1984.
  7. Cyclopea, "The Personal Path of Christhood," Pearls of Wisdom, 25. bindi, nr. 40, 3. október, 1982.
  8. Kuthumi and Djwal Kul, The Human Aura: How to Activate and Energize Your Aura and Chakras, book 2, chapter 14.