Gull

From TSL Encyclopedia
Revision as of 22:21, 11 October 2024 by Hbraga (talk | contribs) (Created page with "Ástvinir, það er ástin á peningum sem er rót alls ills. Og þess vegna er ótenging við mynt ríkisins algjörlega nauðsynleg. Þú verður að sjá það sem tæki og sem gullgerðarformúlu. Þið verðið að sjá, ástvinir, að þessi orka – þegar hún er í flæði, þegar hún berst hönd í hönd, þegar hún er hluti af verslunarhreyfingu – stjórnar þeim viðskiptum í eðli sínu innra með sér. Er þetta ekki dásamleg uppgötvun, að átta...")
Other languages:
Gull á milli kvarsdíla, frá Idarado námunni, Telluride, Colorado

Gull er útfelling sólarljóss; leiðarsteinn Alfa og Ómega; áminning til hvers barns Guðs um stóra hásætissalinn sem er hvítt og gyllt í Meginsólinni miklu.

Gullguðinn útskýrir merkingu og mikilvægi gulls:

Hugtakið gullöld varð ekkt til af engu. Gullöld merkir öls sem byggist á gullfætinum – gullfæti Krists-vitundarinnar, gullnu reglunnar, gulls sem er útfelling sólarljósss fyrir jafnvægi hugans og tilfinninganna og flæði lífsins jafnvel í líkamsmusterinu.

Gull, ástvinir, er nauðsynlegt fyrir stöðugleika vitundarinnar sem og fyrir stöðugleika hagkerfis þjóðanna. Nema ákveðinn hluti af gulli sé til staðar, jafnvel í musteri líkamans, helst jafnvægi frumefnanna ekki.[1] Þegar fólkið hefur ekki lengur gulli í fórum sínum né klæðist gulli, á sér stað miklu meiri andleg og geðræn truflun en ella.

Gull er leiðarsteinn Alfa og Ómega. Það er áminning fyrir hvert barn Guðs, á sálarstigi, um hinn mikla náðarstól, um stóra hásætissalinn sem er hvítur og gylltur í Meginsólinni miklu. Það er úr þessum sal sem ljóssálir sögðu skilið við áttundarsvið andans, sem stigu niður á efnissviðið.

Það var verkefni mitt frá Alfa og Ómega fyrir ævalöngu að reisa gullstall á efnissviðinu meðal vetrarbrautanna og kenna þar með náttúruöndunum (undir helgiveldunum fjórum og í gegnum elóhím) að jarðtengja jafnvægi kraftanna á fjórum sviðum efnisins í gegnum segulmagnaða eiginleika þessarar útfellingar sólarljóssins. Þannig lærðu náttúruandarnir að fella út gull. Og þannig vex gull í jörðinni, æðar þenjast út; og þetta jafnvægi orkunnar samsvarar fyrst og fremst beint formgerð Krists-vitundarinnar um þróun jarðarinnar eða heimskerfa og síðan þess sem hefur verið lýst í gegnum þrígreinda logann.

Gull í umferð táknar árangur á ytra sviðinu. Gull sem enn er ófundið táknar þann hluta af vaxtarmegni Krists-hugans sem á eftir að koma fram. Þið getið ekki sýnt ljós og vitund Krists án samsvarandi birtingar gulls í heimi ykkar. ...

Einka gullfótur

Nú, ástvinir, mæli ég með því við ykkur öll að þið komist aftur á einka hagkerfi ykkar á gullfætinum, að þið takið frá hálft til eitt prósent af mánaðartekjum ykkar og færið það yfir í gull. Það gæti þurft sparnað í nokkra mánuði eða lengur, en það er nauðsynlegt að það sé stöðugur flutningur á að minnsta kosti einu prósenti af orku ykkar sem aðflutningi í gull sem mót, sem skurðpunkt. Og það væri gott að eitthvað af þessu væri borið á líkamanum og afgangurinn geymdur á vel vörðum stað.

Líkamsmusterin þín verða að aðlagast tíðnisviði gulls. Börnin þín verða að aðlagast tiðnisviði þess. Og þess vegna fer vel á því að þau beri myndarnisti af hinni ástkæru Maríu guðsmóður af kraftaverkaorðu, sem beinir ekki aðeins gulli vitundar minnar heldur móðurvitund gulls í vernd hennar og í rafrænni nærveru meyjarmóðurinnar, en hin gullna vitund hennar gat tekið á móti guðdómlega sveinbarninu. Og í gegnum þetta gull, sjáið þið, jarðtengjum við hinn flekklausa getnað alheimsmeyjunnar þar sem börn ykkar og þið sjálf getið tekið á móti innra loga hjarta ykkar hina sönnu fæðingu hins guðdómlega sveinbarns, Krists-vitundarinnar á þessari öld.

Ástvinir, það er ástin á peningum sem er rót alls ills. Og þess vegna er ótenging við mynt ríkisins algjörlega nauðsynleg. Þú verður að sjá það sem tæki og sem gullgerðarformúlu. Þið verðið að sjá, ástvinir, að þessi orka – þegar hún er í flæði, þegar hún berst hönd í hönd, þegar hún er hluti af verslunarhreyfingu – stjórnar þeim viðskiptum í eðli sínu innra með sér. Er þetta ekki dásamleg uppgötvun, að átta sig á því að alheimslögmálið um framboð og eftirspurn virkar í raun og veru í hagkerfum þjóðanna með frjálsu flæði gulls sjálfs? Geturðu ímyndað þér hvort mannkynið þekkti þennan lykil og gæti samþykkt hann laus við hjátrú?

Gold, in fact, is a talisman of the Great Central Sun. And therefore, when you give and receive in gold, you cannot misqualify that gold with greed, because gold resists the vibration of greed, whereas you take the paper money and the copper and the nickel coins, and you find that even silver itself is able to retain a vibration of greed. But not gold, beloved ones. It repels it instantaneously and, therefore, retains that purity of the Goddess of Purity, focused by her, that comes from Alpha and Omega. And therefore, there is an upward spiral in the consciousness, and gold becomes an instrument of the soul liberation of a planet and a people.

Sjá einnig

Gullguðinn

Gullfótur

Til frekari upplýsinga

The God of Gold with God Tabor, Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 23. og Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 24., 1. og 15. desember, 2010.

Heimildir

The God of Gold with God Tabor, Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 23. og Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 24., 1. og 15. desember, 2010.

  1. Meðalmannslíkaminn inniheldur um 0,23 mm af gulli, nóg til að mynda tening sem er um 0,22 mm að stærð.