Gull

From TSL Encyclopedia
Revision as of 09:49, 12 October 2024 by Hbraga (talk | contribs)
Other languages:
Gull á milli kvarsdíla, frá Idarado námunni, Telluride, Colorado

Gull er útfelling sólarljóss; leiðarsteinn Alfa og Ómega; áminning til hvers barns Guðs um stóra hásætissalinn sem er hvítt og gyllt í Meginsólinni miklu.

Guð gullsins útskýrir merkingu og mikilvægi gulls:

Hugtakið gullöld varð ekkt til af engu. Gullöld merkir tímabil sem byggist á gullfætinum – gullfæti Krists-vitundarinnar, gullnu reglunnar, gulls sem er útfelling sólarljósss fyrir jafnvægi hugans og tilfinninganna og flæði lífsins jafnvel í líkamsmusterinu.

Gull, ástvinir, er nauðsynlegt fyrir stöðugleika vitundarinnar sem og fyrir stöðugleika hagkerfis þjóðanna. Nema ákveðinn hluti af gulli sé til staðar, jafnvel í musteri líkamans, helst jafnvægi frumefnanna ekki.[1] Þegar fólkið hefur ekki lengur gulli í fórum sínum né klæðist gulli, á sér stað miklu meiri andleg og geðræn truflun en ella.

Gull er leiðarsteinn Alfa og Ómega. Það er áminning fyrir hvert barn Guðs, á sálarstigi, um hinn mikla náðarstól, um stóra hásætissalinn sem er hvítur og gylltur í Meginsólinni miklu. Það er úr þessum sal sem ljóssálir sögðu skilið við áttundarsvið andans, sem stigu niður á efnissviðið.

Það var verkefni mitt frá Alfa og Ómega fyrir ævalöngu að reisa gullstall á efnissviðinu meðal vetrarbrautanna og kenna þar með náttúruöndunum (undir helgiveldunum fjórum og í gegnum elóhím) að jarðtengja jafnvægi kraftanna á fjórum sviðum efnisins í gegnum segulmagnaða eiginleika þessarar útfellingar sólarljóssins. Þannig lærðu náttúruandarnir að fella út gull. Og þannig vex gull í jörðinni, æðar þenjast út; og þetta jafnvægi orkunnar samsvarar fyrst og fremst beint formgerð Krists-vitundarinnar um þróun jarðarinnar eða heimskerfa og síðan þess sem hefur verið lýst í gegnum þrígreinda logann.

Gull í umferð táknar árangur á ytra sviðinu. Gull sem enn er ófundið táknar þann hluta af vaxtarmegni Krists-hugans sem á eftir að koma fram. Þið getið ekki sýnt ljós og vitund Krists án samsvarandi birtingar gulls í heimi ykkar. ...

Einka gullfótur

Nú, ástvinir, mæli ég með því við ykkur öll að þið komist aftur á einka hagkerfi ykkar á gullfætinum, að þið takið frá hálft til eitt prósent af mánaðartekjum ykkar og færið það yfir í gull. Það gæti þurft sparnað í nokkra mánuði eða lengur, en það er nauðsynlegt að það sé stöðugur flutningur á að minnsta kosti einu prósenti af orku ykkar sem aðflutningi í gull sem mót, sem skurðpunkt. Og það væri gott að eitthvað af þessu væri borið á líkamanum og afgangurinn geymdur á vel vörðum stað.

Líkamsmusterin þín verða að aðlagast tíðnisviði gulls. Börnin þín verða að aðlagast tiðnisviði þess. Og þess vegna fer vel á því að þau beri myndarnisti af hinni ástkæru Maríu guðsmóður af kraftaverkaorðu, sem beinir ekki aðeins gulli vitundar minnar heldur móðurvitund gulls í vernd hennar og í rafrænni nærveru meyjarmóðurinnar, en hin gullna vitund hennar gat tekið á móti guðdómlega sveinbarninu. Og í gegnum þetta gull, sjáið þið, jarðtengjum við hinn flekklausa getnað alheimsmeyjunnar þar sem börn ykkar og þið sjálf getið tekið á móti innra loga hjarta ykkar hina sönnu fæðingu hins guðdómlega sveinbarns, Krists-vitundarinnar á þessari öld.

Ástvinir, það er ástfóstur við peninga sem er rót alls ills. Og þess vegna er óhæði við mynt ríkisins algjörlega nauðsynleg. Þið verðið að líta á þá sem tæki og sem gullgerðarformúlu. Þið verðið að sjá, ástvinir, að þessi orka – þegar hún er í flæði, þegar hún berst hönd í hönd, þegar hún er hluti af verslunarhreyfingu – stjórnar þeim viðskiptum í eðli sínu innra með sér. Er þetta ekki dásamleg uppgötvun, að átta sig á því að alheimslögmálið um framboð og eftirspurn virkar í raun og veru í hagkerfum þjóðanna með frjálsu flæði gulls sjálfs? Getið þið ímyndað ykkur ef mannkynið þekkti þennan lykil og gæti tekið við honum hjátrúarlaust?

Gull er í raun töfragripur Meginsólarinnar miklu. Og þess vegna, þegar þið gefið og þiggið gull, getið þið ekki misnotað gullið með græðgi, vegna þess að gull veiti orkutíðn græðginnar viðnám, en þegar þið takið við seðlum og kopar- og nikkelpeningum, þá komist þið að því að jafnvel silfur getur dregið til sín orkutíðni græðginnar. En ekki gull, elskurnar. Það hrindir því frá sér samstundis og heldur því hreinleika gyðju hreinleikans sem beitir sér fyrir, sem kemur frá Alfa og Ómega. Og þess vegna hækkar gull vitundina í spíral upp á við og gull verður því verkfæri fyrir sálarfrelsi plánetu og fólks.

Sjá einnig

Gullguðinn

Gullfótur

Til frekari upplýsinga

The God of Gold with God Tabor, Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 23. og Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 24., 1. og 15. desember, 2010.

Heimildir

The God of Gold with God Tabor, Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 23. og Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 24., 1. og 15. desember, 2010.

  1. Meðalmannslíkaminn inniheldur um 0,23 mm af gulli, nóg til að mynda tening sem er um 0,22 mm að stærð.