Heil sért þú María

From TSL Encyclopedia
Revision as of 11:04, 17 October 2024 by Hbraga (talk | contribs)
Other languages:
The Virgin Mary holding the globe of the earth in her hands
Hnattmeyjan

Template:Vísindi hins talaða Orðs/is

Kveðja sem þýðir „heil sért þú, Móður-geisli“; lofgjörð til Móður-logans á öllum sviðum lífsins.

Í hvert skipti sem við segjum heil sért þú María erum við að heilsa guðsmóður-geislanum í okkar eigin verund, orkunni – hinu hreina hvíta ljósi Guðs – sem beinist að mænurótarstöðinni.

Þegar við segjum: „Sæll sért þú guðsmóður-geisli,“ virkjar það kraftsviðið og smám saman með auknum skrefum rís hann hægt, náttúrulega og í samræmi við lög Guðs, án þess að vera þvingaður og án þess að stofna sálarþroskanum í hættu.

Uppruni bænarinnar

Fyrsti hluti heil sért þú María er englakveðja Gabríels, „Heil sért þú, María, full náðar, Drottinn er með þér. (Lúkas 1:28) Við þetta bættist kveðja Elísabetar til Maríu: „Blessuð ert þú meðal kvenna, og blessaður er ávöxtur móðurlífs þíns. (Lúkas 1:42)

Þriðji hluti heil sé þér María var innblásinn af ráðinu í Efesus árið 470 f.Kr. Bænin „Heilög María, guðsmóðir, biddu fyrir oss syndugum mönnum, nú og á dauðastundu vorri“ leysti hina nestorísku villutrú sem Anastasíus lét út úr sér. „Enginn segir að María sé guðsmóðir því að María var mannvera; og að Guð skuli fæðast af mannveru er ógerlegt.“[1] Með þessari viðbótarstaðfestingu staðfesti ráðið í Efesus guðsmóður hlutverk Guðs fyrir allan kristna heiminn.

Merking “guðsmóður”

María guðsmóðir útskýrir köllun sína sem Guðs-móðir

ÉG ER kosmísk móðir og ekki síður móðir þín og ég er móðir ástkærs Jesú. Sumir sem eru fylgjendur kristinnar trúar kalla mig móður Guðs. Fyrir þá sem eru í mótmælagrein rétttrúnaðarkristninnar virðist þetta vera helgispjöll; Því að menn gætu vel spurt: "Hver er verðugur þess að vera móðir Guðs?"

En þetta hugtak, þegar það er skilið sem móðir holdtekju hins guðlega anda, opinberar þann dýrlega sannleika að sérhver móðir sem skilur það sem talað var — "Og Orðið varð hold, hann bjó með oss"[2] — getur verið móðir Guðs.[3]

Að mæðra þýðir að fæða, ala upp, sjá um og vernda. Þess vegna er það að vera móðir Guðs að fæða, ala upp, sjá um og vernda loga hans á jörðu. Að mæðra loga andans á efnissviði er köllun kvenlega geislans í bæði karli og konu.

Staðfesta sigur okkar frekar en dauða okkar

Þriðji hluti Heil sért þú Maríu tókst að staðfesta móðurhlutverk Guðs; þó, það úthlutaði manninum líka hlutverk syndarans og lagði áherslu á dauðann sem endalok lífs syndarans. Móðir María hefur sagt að Logavarðarmenn ættu ekki að staðfesta syndugt eðli sitt, heldur réttmæta arfleifð þeirra sem synir og dætur Guðs; né ættu þeir að dvelja við dauðastundina, heldur á sigurstundinni.

Móðir Jesú bað þess vegna að við biðjum um fyrirbæn hennar „nú og á stund sigurs okkar yfir synd, sjúkdóma og dauða“ og vekjum þar með athygli allra á sigurstundinni yfir öllum aðstæðum tíma og rúms sem blessaður sonur hennar sannaði í lífi sínu og á stundu sigursælrar uppstigningar sinnar. Hún staðfesti að „stund sigurs okkar“ væri ellefta stundin þegar mesta árvekni er nauðsynleg til að stemma stigu við bakslagi hala drekans sem reiddist konunni og fór burt til þess að heyja stríð við aðra afkomendur hennar, samkvæmt lýsingu Jóhannesar hins elskaða.

Hún lofaði að aðstoða verði logans, lærisveina Krists og trúrækna fylgjendur guðsmóður logans við að vinna sigur sinn og sigur alls mannkyns ef þeir myndu biðja til hennar þannig:

Heil sért þú María, full náðar.
Drottinn er með þér.
blessuð ert þú meðal kvenna
og blessaður er ávöxtur lífs þíns, Jesús.
Heilaga María, guðsmóðir,
bið þú fyrir oss sonum og dætrum Guðs,
nú og á sigurstundu okkar
yfir synd, sjúkdómum og dauða.

Markmið Maríu guðsmóður

Þegar við segjum: "Heil María!" erum við að heilsa konunni klæddri sólinni, hinum kvenlæga grunnþætti guðdómsins, sem við auðkennum og elskum vissulega og umfram allt í hinni fögru guðsmóður Krists sem dvelur einnig, en þó í dái, í karli, í konu og sem ljósið í okkar innsta verund. Hið hvíta hvel guðsmóðurinnar er innsiglað í hinni helgu mænurótarstöð uns við elskum hana nógu mikið til að laða hana – til að lokka hana í raun til að rísa upp hringstigann og hafa stefnumót við sálina í hjarta okkar. Hér í hinu allra helgasta þyljum við með henni heil sé þér María, við krýnum hana sem ástkæra guðsmóður okkar og hún sameinar okkur við þrenninguna, þrígreinda loga lífsins. Hún tekur okkur við hönd sér og leiðir okkur alla leið á tind tilverunnar, kórónuorkustöðina þar sem Guð er allt í öllu.

María guðsmóðir hefur fullvissað okkur um að kúnalíni jógaleiðin sé svo sannarlega hluti af vestrænni hefð. Og þetta er ástæðan fyrir því að hún birtist nokkrum dýrlingum og færð þeim þessa öruggu og traustu aðferð að reisa ljós guðsmóðurinnar með rósakransbæninni. Þetta er ástæðan fyrir því að dýrlingarnir hafa verið sýndir með hvítu ljósi á höfði sínu – vegna þess að þeir hafa opnað hvirfilorkustöðvar sínar og gengið í beina einingu við ÉG ER-nærveruna. Þeir hafa gengið inn í sælu Guðs.

Sjá einnig

Rósakransbæn

Frekari upplýsingar

Elizabeth Clare Prophet, Mary’s Message for a New Day.

Heimildir

Elizabeth Clare Prophet, Inner Perspectives, 50. og 55. kafli

Elizabeth Clare Prophet, Mary’s Message for a New Day, Inngangur.

Elizabeth Clare Prophet, Mary’s Message for a New Day, 2. hluti, "Kristin bænagerð og þróun rósakransins."

  1. Encyclopaedia Britannica, 1949, s.v. „Nestorius.“
  2. Jóhannes 1:14
  3. ary, “A Letter from Mother Mary,” Keepers of the Flame, 16. heimadæmi, bls. 9.