Rósakransbænin

From TSL Encyclopedia
Revision as of 18:42, 19 October 2024 by Hbraga (talk | contribs)
Other languages:
 
Hluti af greinasafni um
Vísindi hins
talaða Orðs



   Megingreinar   
Hið talaða Orð



   Ýmsar gerðir hins talaða Orðs   
Staðfesting
Ákall
Söngl
Möntrufyrirmæli
Tilskipun
Bænaávarp
Mantra
Bæn



   Austrænir hættir   
AUM
Bhajan
Bija mantra
Gullna mantran
Om mani padme hum



   Vestrænir hættir   
Heil sé þér María
Rósakransbæn



   Sérstakir helgisiðir   
Ljóshringur Maríu guðsmóður
Fjórtán rósakransbænir
Rósakransbæn Mikaels erkiengils
Helgihald uppstigningarlogans
Kristal rósakransbæn Kuan Yins



   Skyld efnisatriði   
Fjólublái loginn
Möntrufyrirmæli fjólubláa logans
Jafnvægi á milli fjólublárra og blárra möntrufyrirmæla
Pranayama
Öndunaræfingar Djwal Kúls
 

Á haustmorgni árið 1972 birtist María guðsmóðir Elizabeth Clare Prophet guðsmóður logans við morgunhugleiðingu sína í bænaturni athvarfsins í upprisuspíralnum í Colorado Springs, og sagði:

Ég vil færa ykkur rósakransbænir ætluðum Vörðum logans. Það eiga að vera rósakransbænir með ritningarversum fyrir þá sem aðhyllast hinar sönnu kenningar Krists eins og uppstignu meistararnir kenna þær og fyrir innleiðingu gullaldarinnar. Þær eru ætlaðar fólki af öllum trúarbrögðum til almennrar tilbeiðslu á loga guðsmóðurinnar. Því að þú sérð, kveðjan „heil sért þú María“ þýðir einfaldlega „Heil sért þú geisli guðsmóðurinnar“ og er staðfesting á lofgjörð til loga guðsmóðurinnar á öllum sviðum lífsins. Í hvert sinn sem hún er mælt vekur hún virkni ljóss guðsmóðurinnar í hjörtum alls mannkyns.

Þannig er rósakransinn helgisiður þar sem öll börn Guðs geta fundið leið sína aftur til óaðfinnanlegs getnaðar síns í hjarta Kosmísku meyjunnar. Nýaldarrósakransinn er tækið til að frelsa mannkynið frá syndakennd og frá falskenningu frumsyndarinnar því að sérhver sál er flekklaus getin af almáttugum Guði og Guð faðir er upphaf allra hringrása mannsins. Það sem er getið í synd er ekki frá Guði og hefur hvorki kraft né varanleika raunveruleikans. Allt sem er raunverulegt er frá Guði; allt sem er óraunverulegt mun líða undir lok þegar mannkynið verður eitt með loga guðsmóðurinnar. Daglegur flutningur rósakransins er ákveðin leið að þessari einingu.

Þróun rósakransbænarinnar

Mynstur rósakransins má rekja til níundu aldar Írlands þegar munkar sungu 150 Davíðssálma daglega. Ólæsir bændur, sem vildu taka þátt í guðrækninni, fengu að skipta bæn Drottins (faðirvorinu) út fyrir hvern sálm. Á meðan ákallanir voru í Austurlöndum til Brahma, Vishnú og Shíva og til Dúrga sem innskot hins himneska þríeykis, fluttu margir unnendur Maríu í Evrópu englakveðju Gabríels: „Heil sért þú María, full náðar, Drottinn er með þér.“[1]

Við þetta bættist kveðja Elísabetar til Maríu: „Blessuð ert þú meðal kvenna, og blessaður er ávöxtur lífs þíns.“[2] Þannig fóru þeir sem leituðu að meyjunni sem móður Krists og milligöngumanni föðurins að bera fram bænir sínar til hennar sem rósavönd. Með tímanum urðu þessar bænir mikilvægur kristinn helgisiður þekktur sem rósakransinn (úr latínu rosārium, rósagarður).

Síðar bættist setningin við: „Heilaga María, guðsmóðir, bið þú fyrir oss syndugum mönnum, nú og á dauðastundu vorri.

María sem “guðsmóðir”

María útskýrði köllun sína sem guðsmóðir fyrir Vörðum logans:

ÉG ER kosmísk móðir og ekki síður móðir þín og ég er móðir ástkærs Jesú. Sumir sem eru fylgjendur kristinnar trúar kalla mig móður Guðs. Fyrir þá sem eru í mótmælagrein rétttrúnaðarkristninnar virðist þetta vera helgispjöll; Því að menn gætu vel spurt: "Hver er verðugur þess að vera móðir Guðs?" En þetta hugtak, þegar það er skilið sem móðir holdtekju hins guðlega anda, opinberar þann dýrlega sannleika að sérhver móðir sem skilur það sem talað var — "Og Orðið varð hold, og hann bjó með oss" — getur verið móðir Guðs.[3]

Að mæðra þýðir að fæða, ala upp, sjá um og vernda. Þess vegna er það að vera móðir Guðs að fæða, ala upp, sjá um og vernda loga hans á jörðu. Að mæðra loga andans á efnissviði er köllun kvenlæga geislans í bæði karli og konu.

María guðsmóðir hefur sagt:

Kristur verður að fæðast í hverjum manni og konu. Sáðkorn Krists verður að hlúa að og stækka sem þrígreindur logi kærleika, visku og máttar sem drottnar yfir sérhverju hugarfóstri mannsins, yfir hverri markhyggju sem kosmísk lög mæla fyrir um og ræður æðsta hlutverki lífsins. Þá verð ég (Guðs-loginn í mér) sjálfkrafa (vegna þess að Guðs-loginn í mér er svo helgaður) kosmísk móðir hvers sonar og dóttur himinsins. Þá verðið þið sjálfkrafa það sem þið hafið helgað orku ÉG ER-nærveru ykkar til. Það sem ÉG ER getið þið líka verið ef þið viljið það með krafti og valdi ÉG ER.[4]

Síðari saga rósakransbænarinnar

Maríubænir sem kristnir Evrópumenn gáfu síðar styrktu hollustuna við guðsmóðurina og hvatti til frekari stækkunar rósakranssins á þrettándu öld. Ný gerð rósakransins birtist. Eitt hundrað og fimmtíu lofgjörðir um Jesú, helgistundir sem tengdu sálmana við líf Jesú, voru samin. Og stuttu eftir að þessi gerð rósakranssins var tekin í notkun birtust 150 Maríulofgjörðir. Þegar aðeins 50 af lofgjörðunum til Maríu voru veittar, var það kallað rósaríum (rósagarður).

Allt þetta tímabil voru fjórar aðskildar gerðir rósakransins í notkun: (1) 150 feðurvorir, (2) 150 Maríubænir, (3) 150 lofgjörðir um Jesú og (4) 150 eða 50 lofgerðir um Maríu. Fyrsta samsetning þessara fjögurra gerða átti sér stað á fjórtándu öld þegar Henry de Kalker, kartúsískur munkur, samtengdi faðirvorið og 150 Maríubænir og flokkaði Maríubænir í tugi með einum föðurvor á hverjum áratug.

Frekari samsetningar áttu sér stað árið 1409 þegar Dóminíkus hinn prússneski úthlutaði hugleiðingar úr lífi Maríu og Jesú við hverja perlu Maríubænarinanar. Maríubænin var aftur flokkuð í tugatali með faðirvorið á milli hvers tugar. Árið 1470 dreifði Alan frá Rúpíu þessum tilteknu rósakransbænum um alla Evrópu og gerði notkun þessarar gerðar svo vinsælar að hún lagði grunninn að nútíma rósakransbænum með ritningarversum.

Rósakransbænir urðu vinsælar um 1500 þegar tréskurðir voru endurgerðir á ódýran hátt í fyrsta skipti. Vegna þess hve flókið það er að prenta 150 myndir fyrir Maríubænaperlurnar var ný rósakransbæn með 15 myndum kynnt (eina fyrir hverja faðirvor perlu). Á endurreisnartímanum voru 150 hugleiðingar fyrir hverja perlu Maríubænarinnar notaðar æ minna uns aðeins 15 hugleiðingar um faðirvorið voru enn þá til sem 15 leyndardómar sem notaðir eru í kaþólsku kirkjunni í dag. Viðbótarbænir eða hugleiðingar voru venjulega lesnar fyrir hvern tug perla til að auka stuttu leyndardómana. Afturhvarf til miðaldagerðar rósakranssins hófst á tuttugustu öld með birtingu nokkurra raða af Maríubæna hugleiðingum í Þýskalandi, Sviss og Kanada.

Rósakransbænir sem María guðsmóðir gaf út

María guðsmóðir hefur gefið eftirfarandi rósakransrunur.

Rósarkransbænir með ritningaversum

Þegar María guðsmóðir kom til Elizabeth Clare Prophet og sagði henni frá löngun sinni til að láta fylgjendur um allan heim fara með rósakransbænir með ritningarversum fyrir nýja öld, tilkynnti hún fyrst leyndardómana sjö fyrir geislana sjö ásamt bænasniðinu sem átti að nota. Þessir leyndardómar eru:

  • Fyrsti geislinn: Fagnaðarleyndardómar sem magna vilja Guðs
  • Annar geislinn: Fræðsluleyndardómarnir sem upphefja visku Guðs
  • Þriðji geislinn: Kærleiksleyndardómarnir sem magna kærleika Guðs
  • Fjórði geislinn: Dýrðarleyndardómar sem sýna hreinleika Guðs
  • Fimmti geislinn: Heilunarleyndardómarnir sem sýna sannleika og vísindi Guðs
  • Sjötti geislinn: Vígsluleyndardómarnir sem dæmigera guðþjónustu og þjónustu Guðs
  • Sjöundi geislinn: Kraftaverkaleyndardómarnir sem bera vitni um umbreytingu, frelsi og fyrirgefningu Guðs

Þegar útsetningum þessara rósakransa var lokið undir hennar stjórn gaf hin blessaða guðsmóðir út hina Meistaralegu leyndardóma fyrir áttunda geisla sem leggur áherslu á hátign og vald Guðs. Í þriðju framkomu sinni kynnti hin heilaga meyja leyndardóma og bænagerðina fyrir leyndu geislana fimm sem hún sagði að ætti að flytja frá mánudagi til föstudags. Þessi flokkur rósakransa eru:

  • Fyrsti leyndi geislinn: Innblástursleyndardómar
  • Annar leyndi geislinn: Aðgerðarleyndardómar
  • Þriðji leyndi geislinn: Opinberunarleyndardómar
  • Fjórði leyndi geislinn: Yfirlýsingaleyndardómar
  • Fimmti leyndi geislinn: Hvatningarleyndardómar

Fjórtánda rósakransbænin

Aðalgrein: Fjórtánda rósakransbænin

María guðsmóðir sagði að þegar nægjanlegur fjöldi fólks færi daglega með helgisiði sína með flutningi þessara rósakransbæna myndi hún lesa fyrir Fjórtándu rósakransbænina, „Leyndardóma afsalsins“ sem hún hefur lesið fyrir og gefið út.

Rósakransbæn fyrir börn

Móðir María kom einnig fram með nýja rósakransbær fyrir börn sem kallast „Rósakransbæn barns til Maríu guðsmóður,“ með eftirfarandi áminningum:

Ástvinir, ÉG ER alltaf í hjarta ykkar í nálægð logans. Löngun mín til að innsigla ykkur í hreinleika, í vilja Guðs og í ævarandi vitund um lífið sem er í ykkur, getur uppfyllst með frjálsum vilja ykkar á hverjum degi þegar þið minnist rósakranssins með mér. Ég hef komið fyrir í hjarta guðsmóðurinnar rósakransbæn fyrir börn sem mörgum fullorðnum munu líka finnast við hæfi. Þessi rósakransbæn verður styttri rósakrans, nokkru styttri en sá sem fluttur er [venjulega] svo að enginn hafi þá afsökun að fara ekki með rósakransinn vegna þess að hann sé of langur svo að þið getið öll farið að minnsta kosti með rósakrans á hverjum degi sem uppfyllir hina stundarlegu beiðni í Fátima.[5]

Beiðnin um að gefa þessa rósakransbær er því ekki undanþegin börnum á hvaða aldri sem er. Því að börnin hin blessuðu börn hafa stórfengleg ljóshjörtu og eru stórkostlegar guðdómlega frjálsar verur á innri stigum. ...

Ástvinir, látup það því ekki gerast aftur að við verðum að koma til að minna ykkur á daglegan flutning rósakranssins. Þetta eru ekki orðin tóm. Þetta er krafturinn sem sjálf bjargræði Bandaríkjanna, þessa heimshluta og plánetu hvílir á.[6]

Sjá einnig

Heil sé þér María

Fjórtán rósakransbænir

Til frekari upplýsinga

Elizabeth Clare Prophet, Mary’s Message for a New Day. Inniheldur heildartexta af rósakransi úr ritningunni fyrir geislana sjö og áttunda geislann.

Elizabeth Clare Prophet, Mary’s Message of Divine Love. Inniheldur heildartexta af rósakransi úr ritningunni fyrir leynigeislana fimm.

A Child’s Rosary to Mother Mary. Hljóðupptaka af öllum 62 rósakrönsum fyrir börn.

Heimildir

Elizabeth Clare Prophet, Mary’s Message for a New Day.

  1. Lúkas 1:28.
  2. Lúkas 1:42.
  3. Mary, Keepers of the Flame Lesson 16, bls. 11.
  4. Ibid.
  5. Fyrsta af þremur beiðnum Maríu guðsmóður sem börnunum í Fátima var gefin er um bæn, sérstaklega rósakransbæn.
  6. Móðir María, 22. mars 1978.