Translations:Mighty Victory/5/is

From TSL Encyclopedia
Revision as of 10:07, 15 November 2024 by Hbraga (talk | contribs)

Þegar hann kom fram til að standa á bak við frelsismeistarann og til að ljá verkefnum Saint Germains uppsafnaðan sigurstyrk sinn, tilkynnti hann undanþágu Karmadrottnanna frá því að uppfylla hin gömlu dulrænu lögmál fyrir þróun þessarar plánetu. Fyrir vikið er einstaklingum unnt að ganga í gegnum uppstigninguna með því að jafna aðeins 51 hundraðshluta af karma sínu; að öðlast aðgang að ljósvakaathvörfunum á meðan líkamar þeirra sofa á nóttunni þó að karma þeirra gefi ekki tilefni til þess; og að veita fræðslu um ÉG ER-nærveruna í heiminum almennt frekar en að þessum upplýsingum sé haldið frá þeim sem ekki eru færir um að taka sér á hendur hið viðsjárverða ferðalag til athvarfa meistaranna í efnislíkama sínum.