Translations:Goddess of Purity/2/is

From TSL Encyclopedia
Revision as of 09:30, 21 November 2024 by Hbraga (talk | contribs)
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)

Yfirstjórnendur höfuðskepnanna fjögurra magna hreinleika hennar í þjónustu þeirra við jarðarþróunina. Hún myndar grundvöllinn fyrir hreinleika Móður-gyðjunnar sem hún beinir í gegnum kraftsprota sinn sem ber gífurlegan uppsafnaðan kraft hreinleikans. Með honum sviptir hún hulunni af myrkrinu í huga mannanna og dregur þá sem kalla fram hreinleika hennar upp úr forarvilpu maya-tálsýnarinnar, hins falska glamúr-töfraljóma og karma-ástands af völdum misskapnaðar þeirra. Á oddi kraftsprotans er demantur. Þessi beinir, sem er skarpari en tvíeggjað sverð hins logandi vilja Guðs, nota englar hreinleikans í samvinnu við erkienglana Gabríel og Von og Gyðju hreinleikans og Astreu til að frelsa mannkynið úr ánauð hinna lægri sviða geðheimsins.