Athvarf Herkúlesar og Amasónu
Athvarf Herkúlesar og Amasónu er staðsett á ljósvakasviðinu í og uppi yfir Half Dome, stórfenglegri móttöku- og sendistöð (beini) sem rís næstum hálfan annan km frá dalbotni Yosemite Valley vestan megin við Sierra Nevada fjallgarðinn í Kaliforníu. Ljósvakaathvarfið er ofan á berginu. Þar beina Herkúles og Amasoníu viljakrafti Guðs í þessari orkumiðstöð sem tengist hálsorkustöð plánetunnar.
Lýsing
Við förum inn um stórt skrauthlið sem prýtt er tveimur gríðarstórum hvítum súlum. Forstofan er átthyrnd, hver hlið liggur inn í annað rúm. Við hrífumst af þeirri staðreynd að þetta er annasamt athvarf — hávaxinna blárra logaengla um þrír metrar á hæð, voldugra serafa, kerúba, englatíva þar sem þeir sem þjóna öllum geislunum sjö koma og fara, hver og einn staðráðinn í að veita Bræðralaginu sérstaka þjónustu. Þetta átthyrningsherbergi geislar af mikilli trúfestu elóhímanna og englanna fyrir vilja Guðs. Bjartur blár litur gegnsýrir andrúmsloftið og er bæði aðlaðandi og hressandi fyrir þá sem njóta þeirra forréttinda að koma hingað.
Þegar við förum í gegnum þennan sal göngum við niður stiga inn í hringlaga rúm. Í miðju er móttöku- og sendistöð (beinir) stórs bláhvíts demants með loga Herkúlesar og Amasóníu sem blossar í gegnum hann. Í hverju athvarfi Hvíta bræðralagsins er logabeinir og venjulega er loginn jarðtengdur í einhvers konar gimsteini. Gimsteinn fyrsta geisla og fyrsta geisla meistaranna er demantur. Vilji Guðs rennur saman við hörku demantsins vegna þess að hann er óbilandi hollusta við hið innra forsnið, brennandi kjarna sjálfsmyndar hvers manns. Demanturinn táknar einnig kristalskýrleika sálarinnar og útfellingu Krists.
Hringlaga stigi liggur upp um jaðar þessa salar til annars hringlaga þingsalar á hæðinni fyrir ofan. Þessi salur samanstendur af röð hringlaga palla og á annarri hliðinni eru hásæti Herkúlesar og Amasóníu. Í byggingunni eru gistirými fyrir nokkur hundruð gesti félaga Stóra hvíta bræðralagsins – sem hittast oft með elóhímunum til að ræða leiðir og aðferðir til að framfylgja kraftmiklum vilja Guðs í efnisheiminum. Á bak við hásæti Herkúlesar og Amasóníu er gangur sem leiðir að öðru herbergi. Þeir sem sitja fundi ráðsins fara inn um aðrar dyr til hægri og vinstra megin við hásætin inn í aðra hringlaga stofu sem geymir meginbeini loga Guðs-viljans.
Aðlögun við athvarfið
Þegar þið hugleiðið vilja Guðs getið þið leyft vitund ykkar að flytjast til þessa athvarfs vegna þess að þið hafið þekkingu á tilvist þess og meðvitund um þetta átthyrnda kraftsvið. Í möntrufyrirmælum ykkar til Herkúlesar og áköllum ykkar getið þið fyllt áru ykkar og ljóssviðið í kringum hjartað með orku athvarfs Herkúlesar og Amasóníu.
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Hercules and Amazonia’s Retreat”.