Páll Feneyingur

From TSL Encyclopedia
Revision as of 00:43, 10 January 2025 by Hbraga (talk | contribs)
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Other languages:
caption
Nærmynd af Páli Feneyingi eftir tvíburaloga hans, Ruth Hawkins

Páll Feneyingur er chohan-meistari af þriðja geisla guðdómlegs kærleika. Hann er yfirstjórnandi Château de Liberté (Frelsishallarinnar), athvarfs hans á ljósvakasviðinu uppi yfir Suður-Frakklandi við Rhône ána.

Páll er bakhjarl fyrir menningu hinna uppstignu meistara fyrir núverandi tímabil og vinnur með öllum sem vilja koma þeirri menningu á fyrir hönd mannkyns. Menning hinna uppstignu meistara er hornsteinninn í pýramída gullaldar; Því að þeir hafa sagt að það sé í gegnum menningu sem mannkynið muni bregðast við andlegum sannleika og kenningum hins Stóra hvíta bræðralags.

Fyrri jarðvistir

Yfirmaður menningarmála á Atlantis

Á dögum Atlantis starfaði Páll í ríkisstjórninni sem menningarmálastjóri. Áður en álfan sökk setti hann beini frelsislogans í Perú sem ýtti undir menningu, fegurð og auð Inka siðmenningarinnar.

Listamaður í Inka siðmenningunni

Hann endurfæddist í Inkaveldinu sem listamaður sem notaði málningu sem dofnaði ekki (leikni sem hann kom með aftur í lokaendurfæðingu sinni). Þökk sé gífurlegum uppsöfnuðum krafti sem hann dró fram blómstraði Inka siðmenningin.

Meistari í arkitektúr í Egyptalandi

Síðar endurfæddist hann í Egyptalandi sem meistari í dulspekilegum arkitektúr og vann náið með l Morya, þá múrarameistara, á þeim tíma sem pýramídarnir voru reistir.

caption
Nærmynd af manni, Paolo Veronese (c. 1577), álitið vera sjálfsmynd

Paolo Veronese

Aðalgrein: Paolo Veronese

Síðast endurfæddist hann sem Paolo Veronese, einn af helstu listamönnum feneyska skólans á 16. öld. Paolo Cagliari fæddist í Verona á Ítalíu árið 1528, öðlaðist snemma listræna þjálfun sem færði honum frægð á unga aldri sem hæfileikaríkur málari. Tuttugu og fimm ára var hann boðinn velkominn til Feneyja sem listmálarameistari. Mikilfengleg prýði þessarar borgar, perlur hennar og silki úr austri, glæsileg veggteppi og glitvefnaður auðguðu verk hans sem risu til hæða skrautlegra yfirburða.

Skreytingar Veronese leiddu fljótlega til stórkostlegra tilrauna með nýja liti. Í leit sinni að fegurð losaði hann sig við daufa brúna og gráa liti forvera sinna með því að móta upplýstar fyrirmyndir, sem gerði þokkafullar fígúrur hans ljómandi og næstum gegnsæjar. Hann þróaði með sér glitrandi pastellblæ af bláum, kóral, perlu, ljósrauðum og sítrónugulum litum sem undraði og heillaði velgerðarmenn hans. Hann elskaði djúpa, djarfa andstæða liti og hann sameinaði litatóna sem aldrei hafa verið notaðir áður — rúbín og flauelsgrænan, rauðgulan og smaragðsgrænan, vatnsbláan og fjólubláan.

Eins og til að leggja áherslu á að sönn fegurð varir að eilífu, leitaði Veronese að tækni og uppgötvaði aðferð til að undirbúa litarefni sem eru óviðjafnanleg til að varðveita málningu. Stórkostlegir litir hans geisla enn ljómandi vel í dag, samanborið við fölnandi loft Sixtínsku kapellunnar og jafnvel freskur Tiepolo, sem fara hrörnandi tveimur öldum eftir að þær voru málaðar.

Veronese var andlegur byltingarmaður sem háði baráttu gegn andstæðum lífsöflum í listunum. Hann leit á fegurðina sem öflugasta hvatann fyrir uppljómun og hann gaf myndum af Jesú, postulum og dýrlingum lífleg svipbrigði. Með því að tengja þær við auðgreinanlega staði og muni gerði hann þær aðgengilegar fyrir almúgann. Meistarinn yfirsteig hefðbundnar flatar, líflausar og kuldalegar hliðar miðaldarlistarinnar; biblíulegar sviðsmyndir hans og söguleg viðfangsefni, hátíðir og viðhafnir voru frísklega gerðar með glaðlegum og yfirgripsmiklum mikilfengleika.

Gifting í Kana. Þetta stórmerkilega málverk (6.7 x 10 metrar að stærð) var falið að hylja allan bakvegginn í matsal San Giorgio-klaustursins í Feneyjum, notkun sjónarhorns gefur til kynna að vettvangurinn sem sýndur er hafi verið framlenging á herberginu. Ásamt Kristi og postulunum sýndi Veronese margar sögulegar persónur og samtímamenn, þar á meðal Maríu I af Englandi, Salómon hinn stórbrotna og hinn heilaga rómverska keisara Karl V. Helstu listamenn Feneyja eru sýndir sem tónlistarmennirnir; samkvæmt hefðinni sýndi listamaðurinn sig sem tónlistarmanninn í hvítum kyrtli sem lék á viola da braccio.

Hann sýndi sporin á vígslubraut Krists-fyllingarinnar og var afkastamikill í að mála píslarvætti hinna heilögu. Áhrifamesta verk hans er hin tilkomumikla gifting í Kana, sem hangir í Louvre-safninu. Önnur málverk hans voru meðal annars freisting heilags Antoníusar, Krýning meyjar, Krossfestingin, Kvöldmáltíðin í Emmaus, Heilaga fjölskyldan og Uppvakning Lasarusar — hvert og eitt af þessu mikilvæg vígsla í Krists-fyllingu.

caption
Hátíð í húsi Levís, Paolo Veronese

Einu sinni var hann stefndur fyrir dómstól rannsóknarréttarins grunaður um villutrú vegna „virðingarleysis“ í málverki sínu af Síðustu kvöldmáltíðinni sem innihélt dverg, páfagauk, varðmenn í þýskum herklæðum, hunda og hirðfífl. Veronese varði staðfastlega rétt listamannsins til frelsis ímyndunaraflsins. Dómstóllinn fann lausn með því að leggja til að málverkið yrði nefnt Hátíð í húsi Levi.

Árið 1588, 9. apríl, fékk hann hita og lést eftir nokkurra daga veikindi. Bróðir hans og synir létu grafa hann í kirkjugarði San Sebastiano, þar sem brjóstmynd var sett fyrir ofan gröf hans. Hann steig upp frá Château de Liberté (Frelsishöllinni), 19. apríl, 1588.

Hér á Château, fyrir uppstigningu hans hafði hann byrjað á tignarlegustu verki sínu, þekktu sem „Hin heilaga þrenning“. Hinn himneski faðir er sýndur á tignarlegan hátt, hún sýnir soninn Jesú og áhrifamikla hvíta dúfa með um þriggja metra vænghaf sem táknar heilagan anda. Striginn hefur þá fordæmalausa sérstöðu að miðla bylgjutíðni af athafnasviði beggja vídda – hins jarðneska og himneska – sem Paolo hafði svo mikinn áhuga á, því striginn var fullgerður eftir uppstigningu hans. Undir málverkinu hina „Heilögu þrenningu“ hefur Páll letrað með gullstöfum: „Fullkominn kærleikur rekur óttann út.”

Erindi hans í samtímanum

Páll Feneyingur er tignarleg vera um 1.90 metrar á hæð. Hann er ljóshærður með djúpblá augu og gyllt, bylgjað hár. Hann er venjulega klæddur í smaragðgrænt flauel. Þar sem hann er innfæddur á plánetunni Venus, þar sem íbúarnir eru logameistarar og geisla því af jafnvægi og guðdómlegum kærleika, er eðlishneigð Páls fegurð og þokki, lipurð og háttvísi. Rödd hans er hljómmikil og góðleg, veitir huggun og frið til allra sem komast í snertingu við nærveru hans.

Hinn uppstigni meistari Páll Feneyingur er mikill kennari á kærleiksveginum. Hollusta hans er við fegurð, fullkomnun sálarinnar með hluttekningu, þolinmæði, skilningi, sjálfsaga og þróun innsæis og skapandi hæfileika hjartans með alkemískum umbreytingarmætti sjálfsfórnar, óeigingirni og eftirgjafar. Hann vígir hjartastöðina og hann þjálfar okkur í náðargáfunni að greina gott að og illt, ljós og skugga og fíngerð blæbrigði allrar fegurðarsköpunar okkar. Dómgreind er raunverulegt innra næmi hvert fyrir öðru.

Athvörf

Aðalgrein: Château de Liberté (Frelsishöllin)

Aðalgrein: Sólarmusterið

Heimili Pauls, Château de Liberté, á sér efnislega hliðstæðu í kastala sem nú er í eigu franskrar einkafjölskyldu. Á ljósvakasviðinu eru kennslustofur með málverkum og listaverkum af öllum gerðum frá öllum tímum og kynþáttum og menningum, auk vinnustofna fyrir tónlistarmenn, rithöfunda, myndhöggvara og söngvara. Hér kynna meistarar nýja tækni á hverju listasviði.

Sem stendur heldur hann námskeið í Sólarmusterinu, í ljósvakaathvarfi frelsisgyðjunnar uppi yfir Manhattan. Þetta er ljósvakaathvarf andlegrar guðsmóður Páls, sem er frelsisgyðjan – kosmíska veran á bak við styttuna, sem er svo nefnd fyrir fullkomna samsömun sína við frelsisvitund Guðs. Það var hún sem fyrst festi frelsislogann í sessi á jörðinni og, rétt áður en Atlantis sökk, flutti hann frá þáverandi efnislegu Sólarmusterisins til Château de Liberté.

Flutningur Frelsislogans frá athvarfi hans

Það var frelsisgyðjan sem veitti innblástur um Frelsisstyttuna sem gjöf franskra íbúa til íbúa Bandaríkjanna, sem var vígð á Bedloe's Island 28. október, 1886. Sem tákn um vináttu þeirra og fleira spanna frelsisboginn frá Château de Liberté til Sólarmusterisins með það í huga að afkomendur Atlantis endurfæddust við bæði austur- og vesturhlið þess (í Frakklandi og Bandaríkjunum) myndu halda kyndlinum sínum hátt þar til frelsismenning birtist aftur á gullöld byggð á jöfnuðum og útvíkkuðum þrígreindum loga í hjörtum frelsiselskandi fólksins í löndum þessara systraþjóða.

Aerial view of the Washington Monument and the White House
Washington minnismerkið

Sjötíu og sex árum síðar, í fyrirlestri sem gefin var í Washingtonborg, 30. september, 1962, tilkynnti hinn uppstigni meistari K-17 um úthlutun annarrar gjafar frá Frakklandi til Ameríku, að þessu sinni frá Páli Feneyingi:

Það hefur verið haldið fallegt og dásamlegt þing á athvarfi Chananda á Indlandi og ákvörðun var tekin af hálfu hins ástkæra Páls Feneyings þar sem flutt var frá athvarfi hans í Frakklandi í dag, klukkan ellefu á ykkar tíma, fullur hjartsláttur hins mikla frelsisloga.

Þessum loga var varanlega komið fyrir innan kraftsviðs Washingtons minnisvarðans; og hjartslætti frelsislogans er ætlað að prýða hjarta Ameríku sem gjöf frá Bræðralaginu og frá hjarta hins ástkæra Páls Feneyings. ...

Hann er gefinn sem fjársjóður frá hjarta Frakklands, frá andlegri ríkisstjórn Frakklands til andlegrar ríkisstjórnar Ameríku. ... Frelsisloginn er stærri gjöf en fyrri gjöf Frakklands, Frelsisstyttan, eins og til heiðurs þeirrar miklu veru, frelsisgyðjunni. Það er óviðjafnanlegt, því að loginn sjálfur smýgur í gegnum byggingu minnisvarðans og rís hátt upp í andrúmsloftið fyrir ofan hann. Og allir sem heimsækja hann munu finna fyrir, jafnvel án þess að verða þess varir, innrennsli frá hjartslætti frelsislogans í hjarta Ameríku.

Að leggja stund á nám með Páli Feneyingi

caption
Gullna reglan, eftir Norman Rockwell. Forsíða Saturday Evening Post, 1. apríl, 1961.

Mannkyn á jörðinni sem þjónar í listum, sækir helgihald Páls Feneyings til að fá kennslu í öllum listum, og með þjónustu sinni læra það að jafna og stækka hinn þrígreinda loga í hjartanu. Páll útskýrir að tilgangur listarinnar sé að efla kærleika Krists alltaf.

Einn sem stundaði nám við athvarf Páls Feneyings var Norman Rockwell, bandarískur listmálari og teiknari (1894–1978). Páll talar um leiðsögn sína við hann:

Ég man þegar Norman Rockwell kom til mín á innri stigum til að læra í ljósvakaathvarfinu. Og ég man þegar ég ráðlagði honum að sýna Krist í bandarísku þjóðinni, í hversdagslegum atburðum þar sem gamansemi, auðmýkt, undrun, samheldni, hetjuskapur kemur fram. Og allt þetta hefur komist til skila, minnst og metið mikils vegna þess að eitthvað af anda Krists er orðin mynd Ameríku sem skein í gegnum verk hans.

Einstakur listamaður sem helgaðaði sér að gefa skil á eðlislægum eiginleikum og sjálfsmynd einstaklingsins. Skynjun hans á Kristi fangaði einstök atriði í málverkunum. Það má sjá í hverju málverki glampann, hversu mikill eða daufur sem hann er, af einhverjum þáttum einstaklingsins sem nær til æðra sjálfs.[1]

Hinn ástkæri meistari Páll hefur gefið þeim fyrirheit um mikilvæga vígslu sem berja á dyr í athvarfi hans í Suður-Frakklandi, sem eru búnir undir að öðlast meiri aukningu kærleikslogans:

Ég mun taka ykkur við hönd og sýna ykkur kastalann minn. Ég mun sýna ykkur listaverkin sem óuppstignir sem uppstignir chela-nemar hafa komið fram með. Og við munum fara í gegnum mörg herbergi og að lokum mun ég fara með ykkur í herbergið þar sem sérstakur rammi hangir á vegg. Í sumum tilvikum verður ramminn auður; í öðrum tilvikum mun vera strigi í honum. Það verður rammi ykkar, rammi sjálfsmyndar ykkar, sem bíður þess að þið birtið snilli sálar ykkar. Og þegar þið sjáið rammann, ef hann er auður, munuð þið vilja fylla hann.

Og svo mun ég fara með ykkur á þann stað, „Atelier,“ (vinnustofuna) þar sem þið getið unnið með öðrum handverksmönnum sem eru að læra kærleikslistina með ögun handar og tjáningar svo að þið getið dregið upp fullkomna Krists-ímynd ykkar. Og þegar það komið fram með það besta sem þið hafið fram að færa, verður það sett í rammann ykkar.

Og þegar þið komið aftur fyrir faman þennan ramma eftir margra mánaða hreinsun og sjálfshreinsun, munuð þið án efa segja: „Elsku Páll, má ég fá annað tækifæri til að tjá Krists-fyllingu mína, til að draga upp mynd af sjálfum mér? Því að ég hef skynjað nýja hlið á þeirri mynd, og ég vildi gjarnan koma því besta sem ég hef fram að bjóða á rammann minn. Og auðvitað munuð þið fá tækifæri til þess.[2]

Tilgangur listarinnar

Uppstigni meistarinn Páll Feneyingur segir:

ÉG ER Páll Feneyingur. Ég mála á striga með ljósvakaefni. Ég bý til myndir í kristal, ég er myndasmiður, ég móta leirinn. Ég móta allt efnislegt og mörg efni sem þið þekkið ekki á æðri áttundarsviðum. Í hvaða tilgangi? Í þeim tilgangi að sýna ævarandi afhjúpandi og stórkostlega mynd af Kristi — Kristi sem birtist í börnum, í fólki af öllum stigum lífsins. ...

Er það furða að við hörmum óreiðukennda og óhlutbundna list sem hefur enga einingu að tilgangi? Það gefur að líka ákveðinn nöturleika og ekki ljósan punkt að sjá í einstaklingnum. Maður getur séð stjórnleysi og víddarskort — án samræmis eða skerpu í nútímalist.

Nútímalist fer inn á undirvitundarinnar. Í samræmi við það, hvort sem listamaðurinn er undir áhrifum af marijúana eða öðrum ofskynjunarefnum eða ekki, verður nútímalist sem sýnd er í efnishönnun, veggklæðningum, fatastíl eða öðru, farvegur sem er meira eða minna ófær um að sýna nokkurn mælikvarða eða hlutföll af hyggju Krists. Þegar list og listskyn þjóðanna er reikult í ráði sínu, þá hnigna ímyndir Krists-hyggjunnar.

Það er sjaldgæft að finna listaverk sem er innblásið frá ljósvakaáttundinni á okkar tímum. ... Hvar munu leiðtogar ykkar læra að takast á við innrásarher hugarheims þjóðanna? Það geta þeir lært í skólastofum, borgum og athvörfum á ljósvakasviðinu. Hvernig komast þeir þangað ef þeir hafa ekki í fórum sínum kristalinn sem verður segulmagnið og stjarna til að fylgja þegar sálin fer út úr líkamanum í svefnstundum?

Án fylgdar engla og unnenda ljóssins hafa þeir ekki neina nýja hugmynd, enga leið til lausnar. Án innra jafnvægis, sem er afkvæmi fullkomins kærleika, er engin lausn á alþjóðlegum hryðjuverkum eða ógninni sem stafar af kjarnorkustríði. Og þar sem mér sýnist að fóstureyðing í sjálfu sér sé æðsta tjáning andlistarinnar, þá vekur hún þá tilfinningu að með ári hverju minnki næmi fólks fyrir englalist og guðlegri list sem mótuðu hina fullkomnu mynd sem þið voruð mótuð í úr leir.

Þess vegna er nauðsynlegt, ástvinir, mitt í hinum spennuþrungnustu alþjóðlegum kringumstæðum að hverfa til íhugunar um guðlega fegurð og hljómkviður sviðanna, og muna eftir að byggingareiningar sköpunarinnar eru hljóð og að hljóð myndar mynstur. það skapar guðlegt samræmi sem hægt er að lýsa í byggingarlist, í lífinu, í hversdagslegum áhöldum eins og leirmunum. Hlutirnir sem þú notar og þú umkringir þig beina hvert athyglin leiðir þig.

List er ekki viðfangsefni sem oft er dvalið við í ræðum okkar, þegar haft er í huga allar þær brýnu þarfir — brýnu stundlegu þarfir fyrir sigri Saint Germains. Ég færi fram framlag mitt til kærleikans á þessari stundu sem fórn til Krists-barnsins, til þess og ástvina sem ég hef þráð svo að mála í endanlegum skilningi og hef gert það eftir bestu getu á ljósvakaáttundunni.[3]

Tvíburalogi hans

Tvíburalogi Páls Feneyings er hinn uppstigni kvenmeistari Ruth Hawkins, fegurðargyðja. Hún steig upp árið 1995, áttatíu og átta ára að aldri og þjónar með honum í Sólarmusterinu.

Þið gætuð beðið til Páls Feneyings um að aðstoða ykkur við að þroska hjartastöðina og hinn þrígreinda loga hjartans og tjá ímynd Krists-vitundarinnar í lífi ykkar. Biðjið hann að styrkja hina sönnu list vatnsberaaldarinnar og að yfirskyggja listamenn af öllu tagi við að koma Krists-vitundinni á framfæri.

Grunntónn Páls Feneyings er „I Love You Truly,“ eftir Carrie Jacobs-Bond.

Sjá einnig

Ruth Hawkins

Chohan-meistarar

Château de Liberté

Til frekari upplýsinga

Til frekari upplýsingar um kenningar Páls Feneyings, sjá kaflana um hann í Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Lords of the Seven Rays.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Páll feneyingur”.

  1. Paul the Venetian, “The Art of Love,” Pearls of Wisdom, 27. bindi, nr. 3, 15. janúar, 1984.
  2. Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Lords of the Seven Rays, 2. rit, bls. 112–13.
  3. Paul the Venetian, “The Art of Love,” Pearls of Wisdom, 27. bindi, nr. 3, 15. janúar, 1984.