Upprisuengill
Upprisuengill er einn af sveit engla upprisunnar „sem styðja við sigurljós í sálum sem stíga upp í helgum eldi Guðs!" Árið 1977 útskýrði þessi voldugi engill köllun sína:

Upprisuenglar hafa það viðfangsefni frá Drottni Guði að standa með syninum og dótturinni sem eru að hækka vitund sína með ákalli til hinna helgu elda hjartans, stíga síðan upp og hækka með hinum Mikla meginsólssegli ljós föðurins, sonarins og hins heilaga anda.
Við erum englarnir sem stóðum við höfuð og fætur líkama Krists og hlúðum að þessum dýrmæta líkama sem ráðsmenn lífsins þar í gröfinni. ÉG ER engillinn sem tilkynnti Maríu Magdalenu, „Hann er ekki hér, heldur er hann upprisinn. Komið og sjáið staðinn þar sem hann lá.“[1]
Gleði upprisunnar er gleði hjarta okkar þegar við höldum kraftsviði Alfa og Ómega fyrir soninn, dóttur Guðs sem hafa áunnið sér tækifæri til að hefja upprisuna. Sá sonur er því fær um að kalla fram og segulmagna með eldi hjartans og eldi hinna helgu orkustöðva aukinn áhrifamátt elds upprisunnar, hraða virkni fruma og frumeinda á samræmdan hátt orkustöð eftir orkustöð í réttsælis hringlaga hreyfingu sem hefst innan hjartans og nær til orkustöðvanna fyrir ofan hjartað og neðan hjartað uns allt kraftsviðið verður að þyrlandi sólarljósi.
Og hröðunin sem er haldið uppi með vitund sonar Guðs sem er utan líkamsmusterisins og sveimar yfir þessu líflausa formi – sú vitund segulmagnar sífellt meiri uppsafnaðan kraft ljóss ÉG ER nærverunnar uns dregið er enn og aftur fram úr Ég ER-nærverunni fullur skriðþungi hins þrígreinda loga sem jarðtengdur er enn á ný hinu líkamlega starfstæki, og sá sem var eitt sinn dauður er endurlífgaður.
Þetta er leiðin til að vinna sigur ... Þetta er vígslan sem er synir og dætur Guðs endurflytja sem koma til Upprisumusterins uppi yfir Landinu helga og fá einnig viðtöku í Uppstigningarmuserinu í Lúxor hjá Serapis Bey. Þetta er vígslan sem fer fram í pýramídanum mikla í ljósvakahliðstæðunni.
Upprisuengillinn segir:
Ég hef komið fótum mínum fyrir í gröfinni þar sem hann var lagður. Ég hef lagt fæturna á steininn. Ég hef lagt hendur mínar á steininn. Ég hef séð lífvana mynd hans og ég hef séð hann rísa upp. Ég hef séð hann koma fram um opnar gættirnar og ég hef séð hinn þrígreinda loga endurreistan og ljósið byrjað að tifa og formið fyllast af lífi. Ég er því sjónarvottur af þeim atburði sem hefur verið vakið spurningar í tvö þúsund ár ... Þetta er sigurinn sem var og er fyrir alla ... Við munum kenna ykkur hvernig á að hraða eldi upprisunnar og við munum vera ykkur verndari, vinur og samþjónn.[2]
Upprisuloginn er öflug viðbót við lækningu. Það er hægt að kalla hann til upprisunnar, ekki aðeins fyrir fjóra lægri líkamana heldur einnig fyrir sál og anda manna og þjóða og jafnvel hinn jarðneska líkama sjálfan.
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Angel of the Resurrection.”