Möttull

„Möttull“ er tákn um vald, yfirvald eða ábyrgð. Til dæmis mætti segja að mikill listmálari afhendi möttul sinn til lærisveins síns. Í andlegum skilningi þess orðs er möttull andlegt embætti. Og með gjöf hans færist frá gúrú-meistara til lærisveins mikil ljóssvið.
Í þúsundir ára hafa hinir miklu andlegu kennarar mannkynsins gefið lærisveinum sínum og kenningar sínar. Í kringum hvern kennara á fætur öðrum safnast saman nemendur sem helguðu sig því að læra þær kenningar og verða lifandi dæmi um þær. Með því að flytja embættið frá meistara til lærisveins fylgir ábyrgðarfærsla. Lærisveinninn heitir því að halda áfram köllun meistara síns.
Möttullinn vitnar um vitund gúrú-meistarans og uppsafnaðan kraft. Hann er táknaður með kyrtli Krists – sem leyndardómsfull hula leikur um – sem hermennirnir vildu ekki skipta því að hann var saumlaus klæðnaður. Kyrtill Krists, sjálfur möttull árangurs hans, er nokkuð sem getur fallið á þig – rétt eins og möttull Elía féll á Elísa,[1] rétt eins og hann féll á lærisveina Búddha í Austurlöndum fjær sem heldur áfram í óslitinni erfðaröð. Þegar möttullinn er afhentur er það yfirfærsla á uppsöfnuðum árangri.
Möttull forseta Bandaríkjanna
► Aðalgrein: Forseti Bandaríkjanna
Árið 1986 talaði Freslsisgyðjan um embætti forseta Bandaríkjanna:
Skiljið, kæru vinir, að fáir embættismenn eru fullkomnir en embættisklæði (nöttull) þess sem kemur frá Stóra Hvíta Bræðralaginu er sannarlega fullkomið. Virðið því möttul forseta Bandaríkjanna, sem frá smurningu George Washingtons hefur verið möttull frá helgiveldi Bræðralagsins.
Það hafa verið embættismenn sem hafa varla skilið mikilvægi möttulsins. Sumir hafa svikið hana, sumir hafa gengið gegn ljósi[2] ÉG ER-nærverunnar. En vegna þess að möttullinn sjálfur var til staðar, eins og sumir hafa tekið fram, hefur þjóðin lifað af forseta sína!
Skiljið því að þótt forseti ykkar sé af hjarta fús, þá geta aðstæður og einstaklingar og jafnvel hans eigið karma komið í veg fyrir að hann noti þennan möttul sem best og beiti honum til að verja frelsið af einurð. Ég segi, biðjið fyrir því að embættismaðurinn komist í samstillingu við sjálfan mötulinn. Og biðjið fyrir öllum kjörnum fulltrúum og þeim sem ekki eru kjörnir, að möttull Krists stígi niður [yfir þá].
Hvort sem þeir munu nota þennan möttul til að skipta vötnunum og boða sannleika spádóms Drottins eða hvort hann verður dómur yfir þeirra eigin landráði gegn þessari þjóð, svo verði það. Möttullinn sjálfur mun gegna hlutverki sínu þegar þið kallið á hann. Þar sem hann er vottur um hæfni fulltrúa íbúa þessarar þjóðar til að vera berar ljóssins og möttuls Krists, því megið þið kalla á hann. Og þess vegna megið þið nota dómsáfellingu til að krefjast dóms þeirra einstaklinga sem hafa svikið embætti milligöngumannsins, sem er nauðsynlegt í túlkun og framkvæmd stjórnarskrárinnar.[3]
Sjá einnig
Sources
Elizabeth Clare Prophet, June 30, 1996.
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path to Attainment, chapter 5.