Fjórtán uppstignir meistarar sem stjórna forlögum Bandaríkjanna
Hinir „fjórtán uppstignu meistarar sem stjórna forlögum Bandaríkjanna“ eru miklar ljósverur frá Guðs-stjörnunni, Síríus, sem er aðsetur Guðs-stjórnar í þessari vetrarbraut. Þessir meistarar hafa verið skipaðir af Guði til að stýra stefnu Bandaríkjanna og aðstoða við að koma á fót Guðs-stjórn í Ameríku.
Eins og andi frelsisins í þessum fjórtán uppstignu meisturum segir:
Sigur Bandaríkjanna er ekki sigur þjóðar. Það er sigur tólf helgivelda sólarinnar í tólf ættkvíslum Ísraels sem hafa komið frá hverri þjóð til að dýfa sér í logann, sem munu snúa aftur til hverrar þjóðar til að tendra logann og sem munu vera öllum mönnum berar frelsiseldanna.
Látið þá hlauparana í kapphlaupinu heyra köll hinna fjórtán uppstignu meistara. Við köllum á frelsi um alla jörð. Við köllum á hina guðdómlegu móður. Við köllum á frelsun sálir mannkynsins.[1]
Gullöld Sahara
► Aðalgrein: Gullöld í Sahara eyðimörkinni
Fyrir meira en fimmtíu þúsund árum, í frjósömu landi þar sem Saharaeyðimörkin er nú, var Saint Germain konungur og keisari mikillar gullaldarsiðmenningar. Undir upplýstri stjórnartíð hans upplifði öll siðmenningin tímabil friðar, gnægðar og framfara í viðskiptum, menntun, listum og vísindum.
Á þessari gullöld var vald ríkisins í höndum fjórtán uppstiginna meistara, tveir stjórnuðu hverjum af sjö geislum Krists-ljóssins, með fjórtán lægri meisturum í forsvari fyrir sjö stjórnardeildum. Engin ríkisstjórn síðan þá hefur jafnvel nálgast afrek þessarar guðdómlega stjórnunar. Í hundruð ára var sátt meðal þjóða lögmál landsins án þess að þörf væri á að inngrip hersins kæmi að verki.
Hnignun þessarar fornu siðmenningar hófst þegar hluti fólksins fékk meiri áhuga á tímabundnum lystisemdum lífsins en á stærri sköpunaráætlun hins mikla Guðs sjálfs. Þeir sem stjórnuðu gerðu sér grein fyrir því að þeir yrðu að draga sig í hlé og láta fólkið læra af erfiðri reynslu að öll hamingja þeirra og gæfa var komin undir tilbeiðslu á guðinum innra með sér — og að það yrði að tilbiðja og þjóna ljósinu ef það ætlaði að vera hamingjusamt. Stjórnandanum var fyrirskipað af alheimsráði að hann yrði að yfirgefa heimsveldi sitt og þjóð sína.
Konungurinn og börn hans drógu sig í hlé sjö dögum síðar. Prins kom daginn eftir og tók við stjórninni án mótspyrnu. Tvö þúsund árum síðar var megnið af þessu veldi orðið að ófrjóu landi. Þessi náttúrueyðilegging var afleiðing sundrungar og eigingirni þeirra sem áður höfðu búið þar, sem eitt sinn voru mikilmenni.
Nú á tímum hefur þjóð þessarar fornu siðmenningar endurfæðst í Bandaríjunum. Sem þjóð er henni ætlað að rísa á ný, þekkja hið raunverulega sjálf innra með sér og endurreisa mikla andlega menningu undir handleiðslu og forystu Saint Germain.
Þjónustan þeirra í dag
These same fourteen masters are here again as the fourteen ascended masters who govern the destiny of America, and they offer their assistance, if we will only invoke it:
Do not treat us as though we were from distant stars and relatives who come now and then to visit! We are here! We will help you in answer to your call!
Munið, þegar við heyrum þessar tilskipanir gefnar af svo milli festu, þá svörum við. Við köllum eftir liðsauka. Og þið hafið sigurinn. Og hinir föllnu eru algerlega yfirbugaðir. Þeir hafa ekkert vald! Þeir hafa ekkert vald! Þeir hafa ekkert vald yfir ykkur!
Ákallið því Drottin! Rísið upp í ríki hans! Og munið að erkienglarnir berjast fyrir ykkur. Farið aldrei í bein átök við geimverur eða fallna heldur falið þeim hersveitum Drottins í tilskipunum ykkar. Þetta er uppskriftin, kæru vinir. Hún virkar. Ég bið ykkur, fyrir sakir allra þróunarferla þessarar plánetu, að láta formúlur Stóra hvíta bræðralagsins virka í lífi ykkar á hverjum degi![2]
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Fourteen ascended masters who govern the destiny of America.”
- ↑ The Spirit of Freedom in the Fourteen Ascended Masters Who Govern the Destiny of America (Andi frelsisins í hinum fjórtán uppstignu meistara sem stjórna forlögum Bandaríkjanna), 22. nóvember 1975.
- ↑ The fourteen ascended masters who govern the destiny of America, “We Come for the Liberty of the Nations (”Fjórtán uppstignir meistarar sem stjórna forlögum Bandaríkjanna, „Við komum til að frelsa þjóðirnar,“ Pearls of Wisdom, 46. bindi, nr. 10, 9. mars 2003.