Virgo og Pelleur
„Virgo og Pelleur“ eru stjórnendur frumþáttar (höfuðskepnu) jarðar. Þau eru móðir og faðir jarðarinnar og dverganna. Þau vinna með tólf helgiveldum sólarinnar vog, sporðdreka og bogmanni til að kenna mannkyninu að ná tökum á efnislíkama sínum; og með yfirstórnendum steingeitar, nauts og meyju til að kenna þeim að ná tökum á frumþætti jarðarinnar.
Virgo og Pelleur eru kosmískar verur sem ríkja frá jafnþrýstingssólinni í miðju jarðar og beina geislum orsakarlíkamans í gegnum frumþátt jarðarinnar. Á gullöld fyrstu þriggja rótarkynþáttanna var sá þáttur gegnsær, hreinn eins og kristall í regnbogalitum, en eftir að vitund mannkynsins féll niður á tvíhyggjustigið, tók jarðþátturinn á sig þykkni vitundar mannsins á sama hátt og frumþættir vatnsins og loftsins.
Karmísk byrði náttúruvættanna
Árið 1980 sögðu Virgo og Pelleur okkur að „það væru milljarðir á milljarðir ofan af dvergum sem annast hringrás jarðarinnar á fjórum árstíðum og hreinsa plánetuna af eitri og mengunarefnum sem eru svo hættuleg fyrir líkama manna, dýra og plantna.“ Þeim var mjög umhugað um byrðarnar sem þjökuðu höfuðskepnurnar (náttúruvættaríkin) og þörfina fyrir fjólubláa logann til að koma í veg fyrir breytingar á jörðinni: „Á fyrri öldum þegar sundrungin, dauðinn og sjúkdómarnir sem mannkynið skapaði sjálft hafði náð meira umfangi og stærðum en náttúruvættirnir gátu afborið, fékk sjálf náttúran krampakast,“ eins og hún gerði þegar „höfuðskepnurnar leystu úr læðingi uppsprettur djúpsins og ollu með því miklu flóði sem leiddi til þess að meginlandið Atlantis sökk og Nóaflóðið....
Þá og því aðeins að mikil aukning verði á mettun jarðarlíkamans með fjólubláa loganum vegna margföldunar á áköllum Vörslumanna logans, þá munu á þessum áratug verða miklar umbyltingar á jörðinni, breytingar á veðurskilyrðum og jarðskjálftar sem leiða til mikils manntjóns sem og varanlegra breytinga á landfræðilegu yfirborði jarðar.[1]
Við höfum séð þetta gerast í vissum mæli og Saint Germain hefur sagt að ekki nógu mikið af fjólubláa loganum hefur verið kallað fram sem gangur mála á jörðinni kallar á til að umbreyta karmanum að fullu. Þegar fólkið sendir ekki fram ljós fjólubláa logans, þá er það náttúran sem verður að framkvæma umbreytinguna. Umbreyting náttúrunnar á byrðum heimskarma sem eru of erfiðar til að bera eru hamfarir. Þess vegna höfum við séð miklar hörmungar við aldalok.

Dvergarnir og þjónusta þeirra
Virgo og Pelleur hafa lýst dvergunum og þjónustu þeirra:
Verurnar sem þið kallið dverga, en ímynd þeirra hefur verið gerð dvergvaxin í sögunni um Mjallhvít og dvergana sjö og í öðrum ævintýrum, eru í raun frá 8 cm háum álfum sem leika sér í grösunum, til 90 cm hárra dverga, allt til tröllanna sem finna má í hinum stóru fjallasölum fjallkonungsins og drottningarinnar sem Grieg glitti í og lýst er í tónverki hans sem hann tileinkar hinum sérstöku dvergum Noregs og Norðmanna.[2]
Það eru risar á meðal höfuðskepna jarðar. Þetta eru öflugar verur sem ráða yfir eldi frumeindanna og sameindanna og halda jafnvægi fyrir heimsálfurnar í gegnum hamfarir, flóð og elda. Elóhím skapaði þessa þróun til að viðhalda vettvangi hinnar miklu tilraunar í frjálsum vilja sem Guð tileinkaði börnum sínum sem hann sendi út í plánetukerfin til að vera frjósöm í Krists-vitundinni og margfalda birtingu Guðs í afkvæmum sínum og í verkum handa þeirra.[3]
Þar sem dvergarnir tákna heilagan anda og eru miðlarar kærleika huggarans í gegnum fegurð og umhyggju náttúrunnar fyrir börnum Guðs, þá eru til aðrir náttúruvættir sem tákna embætti föðurins, sonarins og móðurinnar. Þannig eru jafnvel í lægri ríkjum plánetunnar fulltrúar fjögurra kosmískra krafta sem Esekíel og Jóhannes sáu fyrir sér.[4]
Hinir voldugu dvergar, blíðir og miskunnsamir, eru í eðli sínu eins og uxar sem þreskja kornið,[5] hin miklu burðardýr karma mannkynsins. Af fórnfýsi afneita þeir jafnvel eigin þróunaruppfyllingu til þess að maðurinn, sem æðsta birtingarmynd Guðs, geti haldið áfram að fá tækifæri til að sanna lögmál náðarinnar og ganga inn í vorhelgina í sönnum anda upprisulogans.[6]
Dvergar sem eru fullnumar jarðarþáttarins
Pelleur hefur lýst dvergum sem eru miklir fullnumar:
Elsku vinir, ef þið gætuð hitt dvergana sem eru fullnumar jarðarþáttarins — þá dverga sem hafa haldið sér lausum við afskipti svartagaldursmanna og fallinna sálna sem hafa hneppt stóra hluta af ríki dverganna í þrældóm — mynduð þið hitta alkemískar gullgerðarverur af frumþætti jarðarinnar og þið mynduð hitta í þessum blessuðu verum, sem hafa komið með mér í dag, ráð máttugra ráðgjafa sem skilja sálarlíf og sál mannkynsins og barna ljóssins, dragbítana og hina föllnu í holdi klædda. Því þessir dvergar ráða ríkjum í jörðinni og í hjarta jarðarinnar er vitund mannsins skráð.
Og þess vegna, ástkærir, eru þessir gullgerðarmenn hins helga elds meistarasálfræðingar, sem einnig hafa fengið þjálfun sína frá uppstigna meistaranum Kúthúmi og frá gúrú-meistaranum á undan honum, og þar á undan honum. Því að þessir blessuðu dvergar hafa verið til staðar til síðustu frá tímum Lemuríu, og með færni sinni á vígsluleiðinni hafa þeir ekki farið í gegnum hringrás árstíðanna, eins og aðrar náttúruvættir elds, lofts, vatns og jarðar verða að fara í gegnum — fara út og koma inn í eldkjarna tilverunnar, frá formleysi til forms, í gegnum umskipti sem birtist sem dauði en er aðeins tilfærsla á orku til hærri og æðri birtingarmyndar huga, Drottins, lögmáls náttúruvættanna.
Elsku hjartans vinir hins lifandi loga, þess vegna eru ráð dverganna og þeir sem þjóna meðal þessara helgivelda sér vel meðvitaðir um að truflanir í náttúruvættaríkinu og innan jarðarlíkamans, sem skapast af birtingarmyndum stríðs og allrar óeiningar sem leiðir til stríðs, koma frá kjarna meðvitundarinnar um sektarkennd — sektarkennd vegna upprunalegs aðskilnaðar frá Guði, sektarkenndar vegna misnotkunar á lögmáli hans, sektarkenndar vegna höfnunar á gúrú-meistaranum drottni Maitreya og öllum síðari birtingarmyndum óhlýðni og uppreisnar.
Ástkæru ljóssins, þess vegna koma hinir blessuðu dvergar í dag með bæn til chela-nema hins helga elds ... um meiri og meiri áköll til fjólubláa logans og um að rafskaut Guðs-hugans verði komið á fót innan þessa kraftsviðs, frá athvarfi hins uppstigna meistara Cuzcós, til að halda jarðstraumunum í Suður-Kaliforníu í jafnvægi, í vötnunum undir jörðinni og undir sjónum og innan gasbeltanna.[7]
Hverjum Vörslumanni logans verður úthlutað einum dvergi
In 1991 sagði Pelleur:
Ákveðinn hópur dverga er í samfylgd minni í dag sem ... þekkja mannkynið, vegferð þess og verk. Þeir hafa fengið sérstaka menntun til að taka þátt í starfsemi þessa samfélags. Þeir hafa verið undirbúnir til að aðskilja sig frá hópum okkar og sameina krafta sína með Vörslumönnum Logans sem telja það raunhæft að strengja þess heit í dag að fórna þó ekki væri nema tíu mínútur af sólarhringnum á dag til að fara með sérstök möntrufyrirmæli fyrir hönd náttúruvættanna.
Því er hverjum og einum úthlutað dverg í tilraunarskyni. Þessi dvergur mun vera aðstoðarmaður. Þessi dvergur mun taka við leiðbeiningum frá ykkur og einnig veita ykkur vísbendingar frá mér og ástkærri Virgo sem leiðbeiningar um hvað þarf að gera á plánetunni til að viðhalda jarðneskri tilveru. Þessir dvergar munu aðstoða ykkur þegar þið kallið fram fjólubláa logann fyrir hönd náttúruvera elds, lofts, vatns og jarðar, rétt eins og þeir munu kalla á aðra náttúruvætti sem þeir munu þjálfa til að fara með möntrufyrirmæli og kalla fram fjólubláa logann.
Þangað til Drottinn og frelsarinn Jesús Kristur hefur gætt dvergunum og náttúruvættunum þrígreindan loga sínum, verða þeir að fara með áköll undir verndarvæng og möttli einstaklingsbundins Krists-sjálfs ykkar, einstaklingsbundnum þrígreindum loga ykkar. Þess vegna er það jafnmikið gagn fyrir dverginn að þú takir við honum eða henni og það er fyrir þig að dvergurinn taki við ykkur. Það er gagnkvæmur samningur, ef svo má að orði komast.[8]
Pelleur og Virgo eru þekkt sem jarðfaðirinn og jarðmóðirin. Virgo er einnig stundum kölluð Prosperína.
Sjá einnig
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Virgo and Pelleur.”
- ↑ Virgo and Pelleur, Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 14, 6. apríl 1980.
- ↑ Edvard Grieg, “In the Hall of the Mountain King,” from Peer Gynt Suite („Í höll Fjallkonungs“ úr „Peer Gynt svítunni“).
- ↑ Virgo and Pelleur, “The Servants of God and Man in the Earth Element” („Þjónar Guðs og mannsins í jarðarþættinum“), Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 14, 6. apríl 1980.
- ↑ Esek 1; 10; Opinb 4.
- ↑ 5. Mós 25:4; 1. Kor 9:9; 1. Tím 5:18.
- ↑ Virgo and Pelleur, Pearls of Wisdom, 23. bindi, nr. 14, 6. apríl 1980.
- ↑ Pelleur, “I Come for the Holding of the Balance of the Earth” („Ég kem til að halda jafnvægi jarðarinnar“), Pearls of Wisdom, 67. bindi, nr. 1, 1. janúar 2024.
- ↑ Virgo og Pelleur, “A Desperate Plea: Invoke the Violet Flame on Behalf of the Elementals” („Grátbeiðni: Ákallið fjólubláa logann fyrir hönd náttúruvættanna“), Pearls of Wisdom, 34. bindi, nr. 42, 1. september 1991.