Frelsisstjarnan

Saint Germain hefur sagt:
Ég myndi þá fara með ykkur á stað sem ég kalla Frelsisstjörnuna. Hún er viðmið fyrir birtingarmynd fullkomnunarinnar á ljósvakasviðinu sem jörðin ætti að verða og verður einn daginn.
Frelsistjarnan er dvalarstaður ljóssins sem þegar er til. Nokkur ykkar hafið ferðast þangað með mér á innri stigum. En þessa nótt, í kærleika mínum, í vináttu okkar og í kjölfar þess sem við höfum ákveðið að gera, tek ég alla sem einn með mér í körfu hinnar risavöxnu blöðru minnar orsakalíkama til þess staðar sem er hvíldarathvarf fyrir mig og hersveitir frelsisins — Frelsistjarnan sem jörðin mun verða. Og þessi staður á ljósvakasviðinu, þegar jörðin hefur risið upp á orkutíðnistig sitt, mun verða samhljóða reikistjörnunni. Líkt og þegar sál ykkar rís upp á stig ykkar eigin Krists-sjálfs, munu þau tvö verða eitt.[1]
Lanelló hefur sagt:
Því að hlutskipti jarðar [í þessu sólkerfi] er að vera Frelsistjarnan og Frelsistjarnan er stjarna sjöunda geislans og vatnsberaaldarinnar.[2]
Heimildir
- ↑ Saint Germain, “I Would Take You to Freedom’s Star” („Ég myndi taka ykkur með til Frelsistjörnunnar“), 2. hluti, Pearls of Wisdom, 48. bindi, nr. 43, 16. október 2005.
- ↑ Lanello, “The Spirit of the Great White Brotherhood ” („Andi hins mikla hvíta bræðralags“), Pearls of Wisdom, 31. bindi, nr. 86, 24. desember 1988.