Aton

Fyrir 33 öldum þekkti Akhenaten hinn eina Guð í andlegu sólinni á bak við efnissólina og hann kallaði þennan Guð „Aton“. Akhenaten sá fyrir sér hið óendanlega, Aton, sem guðlega veru „skýrt aðgreinda frá efnissólinni“ en birtist samt í sólarljósinu. Ikhnaton tignaði „ylinn sem er í sólinni,“ þar sem hann leit svo á að það væri sá lífsnauðsynlegi ylur sem er samfara öllu lífi. Akhenaten bjó til tákn sem sýndi Aton sem gyllta hringlaga skífu sem geislar streymdu út frá. Hann lagði áherslu á að sólskífan sjálf væri ekki Guð heldur aðeins tákn Guðs. Hver útstreymandi geisli endaði í hendi sem teygði sig yfir hvern mann til blessunar.
Sjá einnig
Til frekari upplýsiga
Elizabeth Clare Prophet, Akhenaten: Boðberi Atons (DVD).
Heimildir
Pearls of Wisdom, 41. bindi, nr. 49.