Ákall til hinnar eldlegu öndunar

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Call to the Fire Breath and the translation is 100% complete.
Other languages:

"Ákallið til hinnar eldlegu öndunar" er ákall gyðju hreinleikans til unnenda heilags anda. Það er til að koma jafnvægi á frumþætti elds, lofts, vatns og jarðar í fjórum lægri líkömunum og til að koma sálinni í jafnvægi við sína eigin guðlegu hliðstæðu, ÉG ER SÁ SEM ÉG ER.

Andaðu hægt, taktfast með tilfinningu. Sökktu þér niður í hvert orð og hvert hugtak með þeirri sannfæringu í huga og hjarta að þú sért á þessum stað og stundu samerfingi Krists. Og sem ástkæri sonurinn, ástkæra dóttirin krefst þú arfleifðar þinnar. Þín er arfleifð hins helga elds sem kemur frá hjarta hinna ástkæru Alfa og Ómega sem varðveita loga Guðs föður og móður í Meginsólinni miklu.




Ákall til hinnar eldlegu öndunar
*ÉG ER, ÉG ER, ÉG ER hin eldlega öndun Guðs
frá hjarta ástkærra Alfa og Ómega.
Í dag ER ÉG hin flekklausa ímynd
sem tjáist hvert sem ég fer.
Nú ER ÉG full/ur af gleði,
Því nú ER ÉG full birting guðdómlegrar ástar.
Elskulega ÉG ER-nærvera mín,
innsigla mig núna í hjartanu
með hinni útvíkkandi eldlegu öndun Guðs.
Láttu hreinleika hennar, heilleika og kærleika
birtast alls staðar sem ÉG ER í dag og að eilífu. (3x)*
Ég felst á þetta núna af fullum krafti!
ÉG ER að gera þetta núna af fullum krafti!
ÉG ER, ÉG ER, ÉG ER Guðs-líf sem birtir fullkomnun
alla vegu og á öllum tímum.
Þetta sem ég kalla fram fyrir sjálfan mig
kalla ég eftir fyrir hvern mann, konu og barn á þessum hnetti.



Heimildir

Kuthumi and Djwal Kul, The Human Aura: How to Activate and Energize Your Aura and Chakras.

Elizabeth Clare Prophet, Inner Perspectives.