Kosmískt helgivald

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Cosmic hierarchy and the translation is 100% complete.

Alheimsleg tengslaröð einstaklingsbundinna guðlegra frjálsra vera sem uppfylla ótakmarkaða eiginleika og þætti hins guðlega sjálfs. Meðtaldir í hinu kosmíska helgivaldi eru sólar-logosar, elóhímar, synir og dætur Guðs, uppstignir og óuppstignir meistarar með chela-nemareglum sínum, kosmískar verur, tólf helgivöld sólarinnar, erkienglar og englar hins helga elds, börn ljóssins og náttúruandar sem kallast höfuðskepnur og tvíburalogar tveggja andhverfra skauta Alfa og Ómega sem eru í forsvari fyrir hnatta- og vetrarbrautakerfi.

Þessi alheimsregla föðurins sem tjáir æðra sjálf hans er sú leið sem Guð í hinni Miklu meginsól viðhefur til að stiglækka nærveru og mátt alheimslegrar verundar/vitundar sinnar í tíma og rúmi svo þeirri lífsþróun sem kemur í kjölfarið, frá hinu smæsta til hinn hæsta, megi auðnast að þekkja kærleiksundur hans. Andlegt og efnislegt þroskastig manns – mælt með yfirvegaðri sjálfsvitund hans „falið með Kristi í Guði“ og sýnir lögmál Drottins með kærleika sínum, í andanum og efninu í alheiminum – er viðmiðunin sem staðfestir stöðu manns í þessu stigveldi lífsins sem kallast helgivald.

Hugmynd Órigenes um helgivaldið

Á þriðju öld setti Órigenes af Alexandríu fram hugmynd sína um stigveldi vera, allt frá englum til manna, djöfla og dýra. Þessi frægi fræðimaður og guðfræðingur frumkirkjunnar setti fram hornstein kenninga Krists. Á verkum hans byggðu síðari kirkjufeður, læknar og guðfræðingar hefðir sínar. Hann kenndi að sálum væri úthlutað embættum og skyldum sínum á grundvelli fyrri gjörða og verðleika og að hver og einn hafi tækifæri til að hækka eða lækka í tign.

Helgivaldið í Opinberunarbókinni

Margar verur hins himneska helgivalds eru nefndar í Opinberunarbókinni. Að frátöldu hinu falska helgivaldi Antikrists, þar á meðal hinum fordæmdu englum, má nefna aðila Stóra hvíta bræðralagsins sem Jesús greinir frá eru Alfa og Ómega, andarnir sjö, englar kirkjusafnaðanna sjö, hið tuttugu og fjögurra manna öldungaráð, dýrin fjögur, hinir heilögu í hvítum klæðum, vitnin tvö, Drottinn heimsins|Guð jarðarinnar, konan klædd sólinni og mannsbarn hennar, Mikael erkiengill og englar hans, lambið og kona hans, hinir hundrað fjörutíu og fjögur þúsund sem hafa nafn föðurins ritað á enni sér, engill hins Eilífa fagnaðarerindis, englana sjö (þ.e. erkienglar hinna sjö geisla) sem stóðu frammi fyrir Guði, engil klæddan skýi og regnboga á höfði sér, þrumurnar sjö, hinn trúi og sanni og herskarar hans og sá sem sat í hvíta hásætinu mikla.

Sjá einnig

Elóhím

Til frekari upplýsinga

Elizabeth Clare Prophet, The Great White Brotherhood in the Culture, History and Religion of America, bls. 83–101.

Origen, On First Principles.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

Opb. 1:4, 8, 11, 20; 2:1, 8, 12, 18; 3:1, 4, 5, 7, 14; 4:2–10; 5:2, 6, 11; 6:9–11; 7:1, 2, 9, 13, 14; 8:2; 10:1, 3, 7; 11:3, 4; 12:1, 5, 7; 14:1, 3–6, 14–19; 15:1; 16:1–4, 8, 10, 12, 17; 17:1; 18:1, 21; 19:4, 7, 11–17; 20:1; 21:6, 9; 22:13.