Darjeeling ráðið

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Darjeeling Council and the translation is 100% complete.

Ráð Stóra hvíta bræðralagsins sem samanstendur af uppstignum meisturum og óuppstignum chela-nemum undir forystu El Morya, yfirmanns þess, með höfuðstöðvar í Darjeeling á Indlandi, í Musteri góðviljans.

Meðal aðila eru María guðsmóðir, Kuan Yin, Mikael erkiengill, hinn Mikli guðdómlegi stjórnandi, Serapis Bey, Kúthúmi, Djwal Kúl og fjölmargir aðrir sem hafa það að markmiði að þjálfa sálir til heimsþjónustu í Guðs-stjórn og til þjónustu við efnahagslífið, alþjóðleg samskipti og með uppbyggingu sambands við innri Krist sem grundvöll trúar, menntunar og endurkomu gullaldarmenningar í tónlist og öðrum listgreinum.

El Morya útskýrir:

Það eru því hundrað fjörutíu og fjórir innvígðir félagar Darjeeling ráðsins. Og það eru aðrir félagar og aðstoðarmenn félaga sem við berum mikla virðingu fyrir. Þeir þjóna með hinum hundrað fjörutíu og fjórum útvöldu og öðrum sem ná út fyrir þann hring. Margir af þessum eru fylgismenn, rannsóknaraðstoðarmenn og þeir sem eru með okkur við að leita í duldar skrár akasha svo að við getum leitt þessa siðmenningu til meiri framfara en hafa náðst í fyrri siðmenningum vegna blindu fólksins eða vegna sjálfshyggju þess eða karma.

Þannig, kæru vinir, þekkið þið nöfn ákveðinna aðila sem eru hluti af innsta hring hinna hundrað fjörutíu og fjögurra – hinn Mikla guðlega stjórnanda, hina blessaðu Maríu guðsmóður, hinn Máttuga sigurvegara, ykkar eigin ástfólgna vin Lanelló, þá sem hafa komið frá athvörfum chohan-meistaranna og chohan-meistarana sjálfa. Erkienglar þjóna einnig í ráðinu.

Og þessi flokkur, þar sem hver félagi margfaldar rafræna viðveru sína, nær til og snertir jarðarsálir – hverja sál á sínum stað og stund. ...

Hinir hundrað fjörutíu og fjórir félagar sem mynda kjarna Darjeeling ráðsins hafa samskipti við margar sálir á jörðinni og er þetta meginástæða þess að þeir hafa verið valdir til að vera í ráðinu. Fyrir uppstigningu þeirra höfðu þessir uppstignu meistarar og englaverur persónuleg samskipti sem viðhéldust í gegnum aldirnar við einstaklinga sem enn eru í endurfæðingu, sem margir hverjir eru nú tilbúnir að taka ábyrgð á því sem eigi fyrir þróun jarðarinnar að liggja. ...

Ég tala því við ykkur um þann bakstuðning sem Darjeeling ráðið veitir einstaklingum sem eru í leiðtogastöðu hjá þjóðum sínum, hvort sem það er í ríkisstjórn, efnahagslífi, menntun og listum eða vísindum. Við eigum fjölmarga fulltrúa, kæru vinir, og við teljum ykkur líka þar á meðal.

Við biðjum ykkur um að koma til Darjeeling og berja á dyr Darjeeling athvarfsins okkar í kvöld, til að kynna ykkur og gera okkur grein fyrir starfsgreinum ykkar, köllun ykkar og hvernig þið hyggist ljá hæfileika ykkar til þessarar viðureignar. Því að það eru fimm og hálfur milljarður sála, meira og minna, í endurholdgun og margar hinna látnu leita að inngöngu í þennan heim. Og við verðum að gæta þeirra eins og við myndum annast hjörð Drottins.

Þess vegna myndum við eiga við ykkur í samræmi við getu ykkar og við myndum efla ykkur í þeim greinum sem þið hafið þegar séhæft ykkur í eftir að hafa beitt ykkur á ákveðnum sviðum lífsins í þúsundir ára. Hver og einn hefur mikið fram að færa; og ef þið ákveðið að koma með ykkar framlag, þá munuð þið ávinna ykkur himnaför í ljósinu.[1]

Sjá einnig

El Morya

Musteri góðviljans

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

  1. El Morya, „Penetrate, Activate!” Pearls of Wisdom, 37. bindi, nr. 40, 2. október, 1994.