Ívilnun El Morya

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page El Morya's dispensation and the translation is 100% complete.
Other languages:

El Morya hefur beðið okkur að skrá persónulegar þarfir okkar og vandamál á pappír. Ástæðan fyrir því að El Morya kom með þessa tillögu fyrir okkur er sú að, sagði hann, við erum öll of upptekin af persónulegum vandamálum okkar. Og við þurfum að draga athygli okkar frá persónulegum vandamálum okkar og beina okkur að heimsvettvanginum og helstu áskorunum sem við stöndum frammi fyrir. Svo sagði hann: „Ég skal taka að mér vandamál ykkar. Þið vinnið fyrir heiminn."

Svona gerirðu þetta. Skráðu persónulegar þarfir þínar og vandamál á blað og settu það á hægra hné. Næst skaltu setja mynd af El Morya í kortastærð efst á listann. Settu síðan hægri höndina yfir kortið og listann. Þú hefur fullan kraft drottins fyrsta geislans á mynd í kortastærð á hnénu og þess vegna stendur svipur hans, andlit hans, frammi fyrir vandamálum þínum. Hann tekur á þessum vandamálum. Næst skaltu tilgreina þarfir þínar og vandamál við hann og fara með stutt ákall til að leysa úr þeim. Snúðu þeim til El Morya, gefðu þig svo allan að því að reisa plánetuna á hærra plan.

Við treystum Morya til að sjá um þarfir okkar og vandamál. Hann bregst aldrei þegar við spyrjum hann og hann vill miklu frekar að þú gefir honum orku þína til lausnar alþjóðlegra kreppa, til bankakerfa heimsins og til svo margs annars sem er stjórnlaust.

Heimildir

Elizabeth Clare Prophet, “Assignments for Chelas from Vaivasvata Manu and an Opportunity from Djwal Kul,” Pearls of Wisdom, 45. bindi, nr. 36, 8. september, 2002.