Ljósvakasviðið

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Etheric plane and the translation is 100% complete.

Æðsta planið á efnisvíddinni; svið sem er eins áþreifanlegt og raunverulegt (og jafnvel meira) efnissviðið en það er upplifað í gegnum skynfæri sálarinnar í vídd og vitund handan efnisvitundar. Sviðið þar sem akasha annálar allrar þróunar mannkyns er skráð á einstaklings- og heildarvísu.

Það er heimur uppstignu meistaranna og athvörf þeirra, ljósvakaborgir þar sem sálir af æðra þroskastigi dvelja á milli endurfæðinga. Það er raunveruleikasviðið, laust við allt saurugt, syndir/sjúkleika samfélaga sem menn og djöflar hafa búið til á jörðinni. Hér er gullöldin í algleymingi, fylling kærleikans vottar nærveru Guðs alls staðar og englar og náttúruverur ásamt börnum Guðs þjóna í sátt og samlyndi við að birta ríki Krists í hinum algilda heimi, heimi án takmarkana. Sem slíkt er það svið þar sem umskipti fara á milli jarðneska-/himnasviðsins og ríkis Guðs, Anda, eða hins algerlega.

Lægra ljósvakasviðið skarast á gerðræna-/hugræna/efnissviðið. Það er mengað af þessum lægri heimum sem hið falska helgiveldi hefur hernumið og múgvitundin sem það stjórnar, þar með talið geðs-hræringar múgvitundarinnar (e-motions, “energies in motion”).

Til frekari upplýsinga

Elizabeth Clare Prophet, “On Dealing with Death, Discarnates and Malevolent Spirits, III. hluti“ (hljóð- og myndbandsupptaka).

Sjá einnig

Ljósvakaborgir

Ljósvakaathvörf

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.