Fun Wey

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Fun Wey and the translation is 100% complete.
Other languages:

Hinn uppstigni meistari Fun Wey þjónar undir stjórn meistarans Eríels í athvarfi hans í Arizona. Fun Wey kennir "glaðlyndu leiðina" til uppstigningar. Hann segir: "Lífsgleðin er Guðs leið“. "Það er líf í nægtum sem Kristur birti í ykkur öllum.“[1]

Fun Wey hóf þróun sína í náttúruandaríkinu, náði tökum á ákveðnum færnisviðum og var færður yfir í mannríkið, öðlaðist þrígreindan loga og tækifæri til að ávinna sér ódauðleika sinn.

Þegar Eríel var ungbarn sem fæddist í gamalli kínverskri fjölskyldu bjargaði meistarinn Eríel honum úr bráðri lífshættu. Fun Wey uppljómaðist og reis upp frá athvarfi Eríels eftir að hafa hlýtt meistara sínum dyggilega.

Fun Wey, sem þjónar á þriðja og sjötta geisla, geislar af sér gleði og þjónustulund. Hann starfar saman með náttúruverum. Geislun hans skín í gegnum laglínuna „In a Country Garden“.

Fun Wey segir okkur:

Það var ekki í neinum hálfkæringi sem faðirinn gaf mér nafnið Fun Wey, því að með hlýðni, aga og kærleika fann ég vissulega veginn aftur til hjarta hans undir handleiðslu ástkærs Eríels. Dýrindis vinir ljóssins, það var vegna þess að ég fann glaðværu leiðina til uppstigningar sem faðirinn gaf mér þetta nafn. Því kem ég í dag til að færa ykkur þekkingu og skilning á hugleiðingum hjarta míns þar sem ég sá með sanni að leiðin heima var að lúta lögmáli Guðs með fögnuði.[2]

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Fun Wey”.

  1. Fun Wey, „Be at Peace,“ 16. apríl, 1972.
  2. Fun Wey, 23. apríl, 1967.