Guðinn Tabor

Hinn uppstigni meistari Guð Tabor, „guð fjallanna,“ hefur yfirráð yfir fjallgörðum Norður- og Mið-Ameríku. Guð Tabor er er nær tveir og hálfur metrar á hæð og ilmur hans er kjarni úr furu. Hann vinnur náið með Guði gullsins.
Samfundur með guðinum Tabor
Í „Ræðum um uppstignu meistaranna“ segir uppstigni kvenmeistararinn Pearl frá fundi með guðinum Tabor þegar hún var í holdinu. Hún fór til Table Mountain (Borðfjallsins) með Rex, Nödu og Godfre, þar sem, eins og hún segir:
Ég fann mig knúna til að fara stutta ferð einaömul og þar fyrir framan mig var þessi mikla, tignarlega vera, guðinn Tabor.
Þegar hann ávarpaði mig gerði ég mér grein fyrir því – blátt áfram í gegnum máttugan tilfinningablossa – að við værum öll undir stjórn máttugrar vitsmunaveru, íklæddrar töfrandi ljósi. Mig langar að segja ykkur, kæru vinir, að Kyklópea, Arktúrus, guðinn Merú, guðinn Tabor og guðinn Himalaya eru verur sem, í fyrsta skipti sem maður sér þær, virðast næstum ógnvekjandi í tign sinni, fegurð, styrkleika ljóss síns og fullkomnun sem þær búa yfir. Samt sem áður, með öllum þessum mikla og undursamlega krafti sínum, eru þær eins blíðar og móðir við barn sitt sem hún elskar meira en allt í heiminum. Þegar nauðsyn krefur geta þær, eins og leiftursblossi, leyst úr læðingi ógnarkraft til að inna af hendi tiltekna þjónustu.[1]
Náttúruvættaríkið
Guð Tabor er mjög hugsi yfir þeirri byrði sem hvílir á náttúrvættunum. Hann segir:
Kallið fram Helíos og Vestu. Kallið á möttul minn — möttul guðsins Tabors. Verið ykkur vitandi og skiljið, elskaðir, að þegar þið heilið náttúruvætti og færir þá að því marki að skilja hvernig þær gætu einn daginn tekið við kaleik þrígreinda logans — þá er þetta sannarlega mesta gjöf sem þið gætuð nokkurn tíma gefið náttúruvættunum.
Elskurnar mínar, þið eruð öll mjög önnum kafin. Karma-drottnarnir eru önnum kafnir. Yfirstjórnendurnir eru önnum kafnir – allir hafa svo annríkt. En þið verðið að doka við og segja: „Við getum ekki vanrækt náttúruvættaríkið; reyndar verðum við að þjóna náttúruvættunum og koma þeim í það ásigkomulag að geta endurheimtað trúna á sjálf sig og kallað fram þrígreinda logann sinn.“
Ef náttúrvættarnir fyndu sig geta áunnið sér þennan þrígreinda loga, myndu þær vinna ötullega með ykkur. En í sumum tilfellum hafa þær aftur misst alla von um að endurheimta þá birtingu. Þannig, eins og þið vitið, hverfa náttúruvættarnir af skjá lífsins og snúa aldrei aftur því þær hafa ekki þennan þrígreinda loga.
Stundum er ljúft að fara inn í skóga og fjöll um allan heim til að skoða landslagið. Þegar þið gerið þetta skuluð þið alltaf muna eftir náttúruvættaríkjunum fjórum og íhuga hvað þið getið og munið gera með þeim og fyrir þau.[2]
"Einfararnir“
Árið 1964 sagði Tabor:
Ég kem til ykkar í kvöld til að tala fyrst og fremst um „þöglu sálirnar“, þær sálir sem hafa skilið sig að á ýmsum tímum í lífi sínu til að eiga samfélag á kyrrlátum stöðum heimsins við þann kraft sem kemur frá eilífri uppsprettu þeirra. Heimurinn er auðgaður af þessum aragrúa blessaðra sálna....
Þess vegna, dýrðarljósin, þeir sem eru með mér, guðir fjallanna, þrá að auka í vitund ykkar nýjan skilning á "„einförunum“". „Skiljið ykkur að. Skerið ykkur úr fjöldanum og verið sérstakt fólk,“ segir Drottinn Guð ykkar. Svo framarlega sem þið eruð af heiminum getið þið ekki verið af ódauðlega ríkinu. Að lokum munu þeir allir stíga fram, einn af öðrum, og skipa sér í raðir Guðs. Nú, sem einfararnir, einn af öðrum í ykkar ýmsu samfélögum, sem sækjast ekki eftir að vera taldir vitrir á meðal manna heldur leita að eilífri borg Guðs, eins og Ágústínus, dýrlingurinn til forna, munuð þið leita guðdómlegra forlaga ykkar.[3]
Athvörf
► Aðalgrein: Athvarf Tabors í Klettafjöllunum
Tabor á sér athvarf í Klettafjöllunum í Norður-Ameríku.
Tabor er einnig yfirstjórnandi nýs athvarfs sem opnaði 14. apríl 1968, fremst í Klettafjallagarðinum fyrir ofan Colorado Springs. Þessi miðstöð Guðs-viljans myndar bláan logaboga frá Musteri góðviljans í Darjeeling. Frá athvarfi sínu geislar Tabor vernd fyrsta geislans gegnum fjallgarðana í Norður- og Mið-Ameríku.
Áður en Tabor kom til Bandaríkjanna var hann yfirstjórnandi Taborfjalls í landingu helga.
Sjá einnig
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “God Tabor.”
Mark L. Prophet, 11. octóbe 1970.
- ↑ “Our Precious Pearl’s Discourse,” 6. apríl 6, 1937, í Ascended Master Discourses (Chicago: Saint Germain Press, 1937), bls. 321.
- ↑ God Tabor and Mother Mary, “Help Elementals Gain Their Threefold Flame” (Guðinn Tabor og María gúðsmóðir, „Hjálpið náttúruvættunum að öðlast þrgreindan loga sinn“), Pearls of Wisdom, 41. bindi, nr. 46, 15. nóvember 1998.
- ↑ God Tabor, 27. mars 1964.