Skrásetningavörðurinn

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Keeper of the Scrolls and the translation is 100% complete.

„Skrásetningavörðurinn“ er heimsvera sem hefur umsjón með ljósvakaannálum þessarar vetrarbrautar, áhrifum alls þess sem hefur gerst á efnissviðunum.

Um þjónustu sína hefur skrásetningavörðurinn sagt:

Sem skrásetningavörður vil ég segja ykkur að ég ber mikla ábyrgð! Sem betur fer hefur hinn eilífi faðir gefið mér marga hæfa aðstoðarmenn [skrásetningaenglana]. Ég er hér til að segja ykkur að ekki svo mikið sem einn smástafur né einn stafkrókur fer til spillis af orku þeirri sem fer í gegnum neina lífsstrauma ykkar sem er ekki skrásett í hina eilífu annála. Sem betur fer, með krafti hins helga elds og kærleika hins ástríka Saint Germains, hefur verið komið á fót sérstöku ákvæði fyrir alheimslögmálið þar sem þeir sem nota fjólubláa eldinn trúfastlega geta afmáð skrásetningarnar. Og með áhrifum logans er karma þeirra fjarlægt næstum um leið og það verður til.

Ég vil benda ykkur á, ástkæru vinir, að í hvert skipti sem karma er afmáð og umbreytt er það skrásett tímabundið. Ef einstaklingar halda áfram að endurtaka sömu brot gegn hinu mikla alheimslögmáli sí og æ og hvað eftir annað, þá kemur sá tími þegar vakin er athygli Karmadrottnanna á atferði þeirra. Þá kemur til kastanna sérstök virkni lögmálsins á lífsstraumana þar sem allt karma þeirra verður gert upp til jöfnunar. Því það er alger nauðsyn að mannkynið horfist í augu við sínar eigin mannlegu misgjörðir! Þessi aðgerð er framkvæmd til að tryggja að allir lífsstraumar snúi sér ekki stöðugt til vinstri handar villunnar. Þetta er hamlandi aðgerð, gerð úr garði til að færa þá aftur til hægri handar Guðs og til hægri handar samfélagsins. Þetta er algjörlega gert í guðlegu kærleiksskyni.[1]

Skrásetningarvörðurinn heldur úti umfangsmiklu skjalasafni og rannsóknaraðstöðu svo að hægt sé að skoða hvenær sem er annála lífsstraums sem kann að vera að biðja um mátt, tækifæri eða ívilnun frá Karmadrottnunum. Þannig er ein af skyldum embættis hans að veita uppstignum meisturum og Karma-ráðinu samantekt á æviskrám sálar á þroskabrautinni sem það getur haft til umfjöllunar.

Um páskana 1962, í fyrstu fyrirlestri sínum, útskýrði skrásetningavörðurinn að hann hefði

... tvöfaldan annál fyrir hvern lífsstraum. Annað er segulmagnað af hinum helga eldi sjálfum og ber allt lífsmynstur einstaklingsins. Það er óbreytanlegt og óafturkallanlegt: það er lífslögmálið fyrir hvern mann! Minni annáll er settur ofan á hið varanlega. Það er miklu þynnra og efnisgerð þess er nokkuð sveigjanlegri. Það inniheldur allt stafrófskver lífs hvers manns frá þeim tíma sem hann kom fyrst fram sem einstaklingsbundin vitundarvera. Sérhvert merki um tilvist ykkar, hverja hugsun sem þið hafið haft í huga er skráð þar.

Ég virði ekki fyrir mér þessa annála nema Karma-ráðið biðji mig sérstaklega um það. Þetta gerist þegar mat á lífsstraumi er óskað til að kanna tækifæri hans eða þörfina á að lækka tímabundið hina reiddu karmaexi yfir honum. Þegar nauðsynlegt er af þeirri ástæðu að gera slíkt mat, fullvissa ég ykkur um að ég beini tafarlaust augum mínum að hinum fjólubláa eldi umbreytingarinnar til að útrýma úr vitund minni samstundis öllu sem er skrifað á annálana af vansæmd mannlegrar vitundar.[2]

Þegar sálin kemur fyrir Karma-ráðið til að gera grein fyrir reikningsskilum sínum að loknu hverju æviskeiði, les skrásetningarvörðurinn eða einn af fulltrúum hans fyrir Karma-drottna annálana sem teknar eru úr Lífsbókinni. Skrásetningarvörðurinn les einnig annála hennar lífsstrauma sem hafa komið til hins efsta dóms í Höll hins helga elds á Síríusi, og í þeirri stöðu er honum einum heimilt að standa frammi fyrir hásæti hins almáttuga Guðs.

Þegar sá tími kemur að hringrás endurfæðinga sé lokið og sálin stígur upp til himna, les skrástniningavörðurinn eða einn af aðstoðarmönnum hans annála lífsstraumsins til heiðurs árangri hans. Skráetningavörðurinn, sem starfar með eigin Krists-sjálfi einstaklingsins, tendrar síðan kyndilinn á þeim annálum sem bera vitni um forgengilega þátttöku sálarinnar í lífinu sem hafa bundið hana við jarðneska tilveru. Eftir það, segir hann, „í eilífum annálum Guðs verður aðeins eftir skráning um eilífa fullkomnun; þannig, í framtíð lífsstraumsins, finnst fullkomin einstaklingsbundin útlistun Guðs-birtingarinnar, af manninum sköpuðum í mynd og líkingu Guðs.“[3]

Sjá einnig

Skrásetningaengill

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Keeper of the Scrolls.”

  1. The Keeper of the Scrolls, 22. apríl 1962.
  2. Sama heimild.
  3. Sama heimild.