Ljósberi

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Lightbearer and the translation is 100% complete.
Other languages:

Ljósberi þýðir Krists-beri, sá sem ber Ljósið sem er Kristur, sá sem ber ábyrgð á Krists-verund í sjálfum sér og öðrum með því að standa vörð um sannleika og heiður Guðs; sá sem er smurður Krists-vitund og ber þessa uppljómun til allra. Ljósberinn er Loga-vörður en einkunnarorð hans verða að vera „ÉG (ER) gæti bróður míns – ÉG ER vörður ljóssins sem er Kristur í bróður mínum.

Ljósberi ber Krists-vitund þegar hann innbyrðir Orð Guðs. Ljósberi er sá sem daglega samlagast og verður leyndardómsfullur líkami og blóð Krists; ára hans er fyllt ljósi sem er hliðarverkun ljóssástands hans, verundarástands, hugarástands og vitundarástands – sjálfs-vitundar hans í Guði og í Kristi. Og þá guðlegu sjálf-svitund köllum við Guðs-vitund og þá sjálfs-vitund Krists köllum við Krists-vitund. Og „hið sanna ljós,“ segir Jóhannes, „sem upplýsir [tendrar hinn guðlega neista, hinn þrígreinda loga hjartans, í] hverjum [mannssyni] sem kemur í heiminn.“[1]

Sjá einnig

Ljós

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

Pearls of Wisdom, 32. bindi, nr. 28, 9. júlí, 1989.

  1. Jóhannes 1:9.