Regla barnsins

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Order of the Child and the translation is 100% complete.
Other languages:
 
Hluti af greinaröð um
Heilagar reglur



Regla hins miskunnsama Samverja
Regla demantshjartans
Regla smaragðskrossins
Regla Frans og Klöru
Regla hinnar gullnu lilju
Regla barnsins
Bræður og systur hins gullna felds



Regla Melkísedeks
 

Í hinni fyrstu Ashram minnisbók dagsettri 26. apríl, 1951 barst tilkynning frá Mark L. Prophet til chela-nema um myndun „Reglu barnsins“ – heilagrar regla fyrir löggjafa, valdhafa, menningarmálastjórendur og borgara sem gefa heit um að „minnast ætíð framtíð hins littla barns“. Í bréfinu var skýrt:

Það eru engin gjöld, engar reglur nema maður heitir því að verja einni mínútu á dag í að lesa nokkur orð skráð á aðildarskírteinið sem maður setur upp á vegg skrifstofu sinnar. Aðild er fyrir lífstíð (ad vitam). Og það eru engir fundir nema heit um að funda með eigin huga og hjarta frammi fyrir Guði. Einnig loforð um að standa augliti til auglitis við þetta vottorð og leggja samvisku sína undir litla barnið í hverju því máli sem felur í sér ákvörðun sem hefur áhrif á líf annarra.

Ástfólginn Kúthúmi talar um Reglu barnsins:

Þessi Regla hins heilaga barns er til varnar barninu á öllum geislunum sjö: vernd barnsins, menntun barnsins, kennsla barnsins sem varðar kærleik, að gefa og þiggja. Það er hinn tæri vegur sem er skýrleikinn í hjartanu til að sækjast eftir markmiði lífsins. Það er fræðsla um vísindi og heilbrigði og allsnægtir, kennslu og þjálfun barnshjartans – hjarta þíns og annarra barna – á vegi þjónustunnar, vegi frelsisins og heilagra reglna. Allt þetta verður hluti af Orði okkar og starfi.[1]

Kuthumi útskýrir að þessi skipan sé hluti af Reglu Frans af Assissi og Klöru.

Til frekari upplýsinga

Vefsíða helguð heilögum reglum.

Heimildir

  1. Kuthumi „Remember the Ancient Encounter,“ Pearls of Wisdom, 28. bindi, nr. 9, 3. mars, 1985.