Geislarnir sjö

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Seven rays and the translation is 100% complete.
Other languages:

Ljósútgeislun guðdómsins, t.d. hinir sjö geislar hvíta ljóssins sem koma fram í gegnum prisma (ljósbrot) Krists-vitundarinnar. Geislarnir sjö eru

  1. blár
  2. gulur
  3. rauðgulur
  4. hvítur
  5. grænn
  6. blárauður (purpuri) og gylltur
  7. fjólublár.

Það eru líka fimm „leyndir geislar“ sem eiga uppruna sinn í hvítum eldkjarna verundarinar og fjölmargir geimgeislar sem himnesku hersveitirnar hafa sett sitt mark á sem geisla í gegnum helg hjörtu boðbera föðurins til minna þróaðra lífsstrauma.

Hver geisli er ljósgeislun Alheims-Krists sem beinir sérstökum náðargjöfum og meginreglum sjálfs-vitundar Logosins sem lærisveinninn og lærisveinkan geta þróað og þroskað með sér á lífsvegi sínum.

Eiginleikar geislanna

Rétt eins og litir hafa orkutíðni, þannig bera hugsanir og tilfinningar bylgjusveiflumynstur; og ekki er hægt að aðskilja þær frá litatíðni sem samsvarar bylgjusveiflum þeirra. Reyndar hafa rannsóknir okkar á mannsárunni sannað að það er vísindaleg fylgni á milli litanna í árunni og geðrænum einkennum einstaklingsins.

Rafrænt mynstur geislanna sjö er það sama og samsvarandi guðleigir eiginleikar sem þeir tákna. Þannig er rétt að segja að ástin sé rauðgul, viskan sé gul, mátturinn sé blár, miskunnin sé fjólublá, réttlætið sé fjólublátt, græðslan og gnóttin séu græn og hreinleikinn sé hvítur. Því hvar sem rauðgult er að finna þar er áherslan á kærleika Guðs; hvar sem blátt er að finna má sjá mátt hans; hvar sem gult er til staðar kemur greind Guðs fram; og hvar sem hinir óteljandi eiginleikar geislanna sjö eru göfgaðir í manninum birtist ljómi litblæs regnbogans sem mildur en kraftmikill ljómi innan árunnar. Litir og eiginleikar geislanna sjö, staðsetning þeirra í orsakalíkamanum, og öfugþróun þeirra í rafræna beltinu og í áru mannsins eru gefin upp á kortinu hér að neðan.

Logi litaeiginleika geislanna sjö og afbrigðileiki þeirra

Svið orsakalíkama mannsins
Color

Samsvarandi guðlegir eiginleikar: Fjársjóðir himinsins geymdir í sviðunum sjö

Afbrigðileiki á guðlegum eiginleikum sem safnast upp í rafbeltinu

Samsvarandi afbrigðileiki litageislanna sem finnast í mannsárunni

I. svið

Hvítur
Fjórði geisli

  1. Hreinleiki, fullkomnun
  2. Sjálfsagi, siðferði
  3. Líf, von, uppbyggilegir spíralar
  4. Gleði, andleg sæla
  5. Heilleiki, al-ein-ing
  6. Samhverfa, rúmfræði
  7. Lög, regla, sam-mæling — sem að ofan, svo að neðan
  8. Guðdómleg byggingarlist, frumdrættir lífsins
  1. Óhreinleiki, ófullkomleiki
  2. Skortur á sjálfs-stjórn, siðleysi
  3. Dauði, hugleysi, niðurbrjótandi spíralar
  4. Losti, mennskar þrár, misnotkun hins helga elds
  5. Aðskilnaður, ófullkomleiki, einmanaleiki
  6. Ósamræmi
  7. Lögleysa, stjórnleysi, ringulreið, skortur á víxlverkun á milli anda og efnis
  8. Bjögun á guðlegri hönnun

Gruggugur hvítur
“Dauðra manna bein”
Silfurlitaður
Grár
Svartur
Ljósrauður

II. svið

Gulur
Annar geisli

  1. Krists-borin uppljómun
  2. Guðleg Sjálfs-vitund, auðmýkt
  3. Guðdómlegt Logos, guðleg rök
  4. Vísdómur (wise dominion), skilningur, kosmísk vitund
  5. Sundurgreining á milli al-Góðs og afstæðs góðs og ills, réttrar þekkingar
  6. Greind, útsjónarsemi, víðsýni
  7. Glöggskyggni, skírleiki
  1. Fjölkynngi, svartagaldur
  2. Sjálf-hverfni, dramb, hroki
  3. Mennsk rökfærsla, mannleg skynsemi
  4. Mennsk firra, hégómi, skilningsskortur, dauðleg vitund
  5. Óhófleg og handahófskennd orkusóun, röng þekking
  6. Heimska, drungi, þröngsýni
  7. Dómgreindarleysi, fáfræði, andleg þyngsli, leti

Gruggugur gulur
Rauðgulur
Brúnn
Koparlitur
Fagurrauður
Svartur
Olífubrúnn

III. svið

Rauðgulur
Þriðji geisli

  1. Guðdómlegur kærleikur, óeigingirni
  2. Fegurð, huggun, náð
  3. Samhljómur
  4. Sköpunarkraftur, andlegt aðdráttarafl, Guðs-þrá
  5. Hluttekning, meðlíðan
  6. Eining, hollusta, samheldni
  7. Samneyti við lífið, skírn heilags anda
  1. Mennsk ást, eigingirni
  2. Ljótleiki, vanlíðan, vanræksla
  3. Ósætti
  4. Munúð, nautn, dýrsleg seiðmögnun, girndir
  5. Sjálfs-vorkunn, mennsk samúð, tilfinningasemi
  6. Óeining, upplausn, rotnun
  7. Samskipti við dauða, særingar, andsetning

Rauður
Rauður rauðgulur
Kórallitur
Fúksíulitur
Svartur
Brúnn

IV. svið IV

Fjólublár
Sjöundi geisli

  1. Frelsi, réttlæti, umburðarlyndi, miskunn, fyrirgefning
  2. Frelsi, helgisiðir lífsins (daglegar venjur)
  3. Ákall hins helga elds, Léttleiki, flæði
  4. stjórnviska, háttvísi, reisn, þokki
  5. Vísindi alkemískra dulefnafræða, umbreyting, lögmál handanleikans, framsækin opinberun, spádómur
  1. Þrældómur, ánauð, óréttlæti, umburðarleysi, harðlyndi hjartans, grimmd
  2. Lauslæti, stórnleysi, óregla, óreiða, samþættingarleysi, stefnuleysi
  3. Særingar, formælingar, álögur, bölbænir, stöðnun, dauði
  4. Vöntun á kunnáttusemi
  5. Misnotkun á hinum helgu vísindum, vélrænar endurtekningar, óbilgirni, kreddufesta, rangfærslur og rangtúlkanir á ritningunni og lögmálum sannleikans, tuldur illra anda

Rauður
Rauðgulur
Vínrauður
Fúksíulitur
Brúnn
Svartur

V. svið

Bláraurður, purpuri og gylltur
Sjötti geisli

  1. Friður
  2. Guðþjónusta og þjónusta
  3. Bræðralag og fjölskyldulíf stofnað í Kristi
  4. Jafnvægi Krists í einstaklingnum og samfélaginu
  5. Löngunarleysi, skaðleysi
  1. Tilfinningalegur óróleiki, æsingur, stríð
  2. Sjálf-miðuð, sjálfhverf tilvera
  3. Truflun á fjölskyldu- og samfélagslífi með því að spilla hinum þrígreinda loga
  4. Ójafnvægi sem birtist í ættflokkum, óaldarflokkum klíkuskap, hóphjónaböndum, frjálsum ástum
  5. Óskhyggja, skaðsemi

Dökkbrúnn
Silfurlitaður
Grár
Koparlitur
Brúnn
Svartur

VI. svið

Grænn
Fimmti geisli

  1. Sannleikur, auðsæld, gnótt
  2. Vísindi, vísindaleg aðferð
  3. Lífið
  4. Heilsa, heilun, heilleiki, endurnæring, upplyfting, endurnýjun
  5. Bein og óbein útfelling frá anda til efnis, göfgun efnis til anda, áþreifanlegar sannanir fyrir andanum, hringun ferningsins (squaring of the circle)
  6. Þakklæti, stöðugleiki, helgun, örlæti, víðsýni, frjálst flæði rafeindarinnar
  7. Tónlist, stærðfræði, lög og meginreglur kosmísks samræmis
  1. Villa, vanmáttur, skortur, andleg fátækt
  2. Fáfræði, hjátrú, slys, tilviljun
  3. Dauði
  4. Sjúkdómur, sundurlyndi, öldrun, hrörnun
  5. Skortur á áþreifanlegum verkum, skortur á dyggðum og andans efnum sem gert er raunhæft í anda- og efnisformi
  6. Vanþakklæti, óstöðuglyndi, kæruleysi, vanhelgun, skortur á örlæti (níska), þröngsýni, öfund, afbrýði, græðgi, ágirnd, eigingirni, orkuskerðing í efnisformi
  7. Ósamræmi

Ólífulitur
Gulgrænn
Brúnn
Appelsínugulur
Svartur

VII. svið

Blár
Fyrsti logi

  1. Fullkomnun
  2. Guðdómlegur vilji
  3. Vernd, uppbygging, stefna
  4. Trú
  5. Hlýðni, kærleikur til Guðs og lögmála hans
  6. Ljós, orka, kraftur, hugrekki
  7. Yfirráð, Guðs-stjórn, Guðs-þrá
  8. Guðs-skipuð stjórnvöld, viðskipti, verslun, samgöngur, samskipti, bankastarfsemi
  9. Kosmísk (og) náttúrulögmál
  1. Ófullkomleiki
  2. Mannsvilji
  3. Skaðsemi, hætta, eyðilegging; handahóf, tilviljanakennd tilvera
  4. Efi
  5. Óhlýðni, ögrun, uppreisn gegn lögmálum Guðs
  6. Fjarvera ljóss, orku, staðfestuleysi, getuleysi, hugleysi
  7. Undirgefni, ráðskast með aðra, svartagaldur
  8. Skipulagsleysi í málefnum og efnahag þjóða og samfélaga sem stafar af fallvöltum lagabókum
  9. Forgengileg lög, lögleysa

Grárblár
Blásvartur
Svartur

Sjá einnig

Chóhan-meistarar

Fimm leyndir geislar

Logar Guðs

Til frekari upplýsinga

Kuthumi and Djwal Kul, The Human Aura: How to Activate and Energize Your Aura and Chakras.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Lords of the Seven Rays.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path of the Higher Self, 1. bindi úr Climb the Highest Mountain® ritröðinni, 6. kafli.