Translations:Decree/15/is

From TSL Encyclopedia

Þeir sem skilja merkingu veldisvísins í stærðfræði verður ljóst að samanlagður kraftur möntrufyrirmælanna, sem viðstaddir í hópnum kalla fram, eykst ekki í réttu hlutfalli við fjölda þátttakenda [þ.e. 1:1, 2:2, 3:3 o.s.frv. – innskot þýð.] heldur eykst krafturinn samkvæmt ákvæðum hinnar gamalþekktu margfeldisreglu sem er á þá leið að sá guðskraftur sem leysist úr læðingi með hinu talaða Orði margfaldast í öðru veldi með fjölda þeirra einstaklinga sem gefa möntrufyrirmæli hverju sinni og með fjölda þeirra skipta sem farið er með þau [þ.e. 1 í öðru veldi = 1; 2 í öðru veldi = 4; 3 í öðru veldi = 9 o.s.frv. – innskot þýð.].[1]

  1. Mark L. Prophet og Elizabeth Clare Prophet, Vísindi hins talaða Orðs, Bræðralagsútgáfan, 5. kafli