Translations:Djwal Kul/15/is
Leiðbeiningin sem ég vil færa ykkur í kvöld varðar eðliseiginleika og mátt útgeislunarinnar og ráð við meðhöndlun hennar. Maturinn sem þið borðið, ástvinir, þegar hann er útbúinn með kærleiksríkum höndum guðdómleikans, fer inn í efnislíkama ykkar og skapar miklu meiri andlega hamingju en mannkynið gerir sér í fljótu bragði grein fyrir. Þeir sem eru vitrir munu kannast við sannleikann í því sem ég er að segja; og ef þeir verða að neyta matar frá óþekktum aðilum, mega þeir vera sér vitandi um að hinn fjólublái umbreytandi logi fjarlægir hina óæskilegu útgeislun sem stafar frá uppsafnaðri orku mennskrar sköpunar sem getur ekki gert neinum neitt gott sem neytir slíks matar og veldur þeim mikinn skaða sem eru óvarkárir og þess vegna óvarðir.[1]
- ↑ Djwal Kul, „The Radiant Word,“ Pearls of Wisdom, 15. bindi, nr. 15, 9. apríl 1972.