Translations:Elementals/31/is

From TSL Encyclopedia

Ég man að ég ók bíl nálægt Chicago-borg í Illinois. Og þegar við vorum komin í nágrenni við Chicago var allt svæðið svart af óveðursskýjum. Þetta var alveg skelfilegur vettvangur því í þessum óveðursskýjum voru stormsveipir og hvirfilbylir. Svo þegar við skynjuðum hina óheillavænlegu og ógnandi hættu sem steðjaði að borginni hófst allur hópurinn í bílnum strax handa við að ná sambandi við náttúruverur loftsins.