Translations:Mary, the mother of Jesus/16/is
Í þúsundir ára áður en María endurfæddist á jörðinni hafði hún hafði magnað í verund sinni krafta fimmta geislans og fullnumið sig í að hafa hina fullkomnu ímynd hugfasta sem markaði frumdrögin fyrir vitund Krists. Það gerði hún með því að kalla fram þessa sérstöku krafta sína sem svöruðu kröfum tímans – sem koma til skjalanna hvort sem blóm, musteri, logi, listaverk eða heil siðmenning á í hlut. Hvað sem á að kalla fram þá verður að vera til staðar einn lífsstraumur (einstaklingur) sem helgar sér birtingu þess, sem sér fyrir sér þætti þess og í gegnum vitund hans streymir orkugefandi kraftur heilags anda til þess að gefa hinni nýju birtingu form og líf. Þetta er virkni fulltrúa hins kvenlega geisla að kalla fram móðurhyggju guðdómsins. María gegndi þessu hlutverki fyrir Jesú og þess vegna kom hreinleikin, krafturinn og kærleikurinn í gegnum vitund hennar sem gerði Jesú kleift að uppfylla hlutverk sitt.