Translations:Messenger/4/is

From TSL Encyclopedia

Mark L. Prophet, nú hinn uppstigni meistari Lanelló, var kallaður af El Morya árið 1958 til að stofna The Summit Lighthouse (Ljós-vitann á tindinum) og setja fram kenningar hinna uppstignu meistara fyrir vatnsberaöldina. Mark var einnig boðberi á fyrri æviskeiðum. Sem spámaðurinn Nói, fékk hann spádóminn um flóðið og áminnti og hvatti fólkið í meira en hundrað ár. Sem egypski faraóinn Iknaton, boðberi Atóns (sólguðsins), innleiddi hann eingyðistrú. Mark starfaði einnig sem boðberi bræðralagsins í hlutverki bandaríska lárviðarskáldsins Henry Wadsworth Longfellow.