Translations:Saint Germain/66/is

From TSL Encyclopedia

Á bak við tjöldin reyndi Saint Germain að stilla svo til að konungseinveldið í Frakklandi þróaðist átakalaust í átt að fulltrúalýðræði og leitaðist við að koma í veg fyrir blóðbað frönsku byltingarinnar. Hann heimsótti Marie Antoniette drottningu og nána vinkonu hennar, Madame d‘Adhémar sem síðar sagði í riti frá hæfileikum hans og varnaðarorðum um væntanlegar hrakfarir og andlát konungsins og drottningarinnar.[1] Skellt var skollaeyrum við ráðgjöf hans. Hann gerði lokatilraun til að sameina Evrópu með því að styðja við bakið á Napóleoni. Napóleon misnotaði mátt meistarans og varð það honum að falli.

  1. Sjá: Madame d’Adhémar. Souvenirs de Mari Antoinette; útdráttur hjá Cooper-Oakley. The Count of Saint-Germain (sjá 16. gr.); Saint Germain On Alchemy (1993), bls. vii–xxvii.