Vishnú

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Vishnu and the translation is 100% complete.
Other languages:
Vishnú

Hinn eilífi skapari, varðveitandi og tortímandi — Brahma, Vishnú og Shíva — hindúaþrenningarinnar sem samsvarar vestrænum hugmyndum um föður, son og heilagan anda. Vishnú, önnur persóna þrenningarinnar, er hinn eilífi sonur, verndari hinnar guðdómlegu hönnunar, endurheimtir alheiminn með viskuljósinu.

Sem varðveitandi viðheldur Vishnú hinni guðdómlegu hönnun sem er mynduð í loga viskunnar. Hann endurheimtir alheiminn með algræðandi ljósi viskunnar. Sem sonurinn, Vishnú, holdgerir hann visku hins Kosmíska Krists. Hann er líka meðalgangari, eða brúin, milli mennskrar vitundar og Brahman, hins algerra veruleika.

Samkvæmt kenningum hindúasiðar er því haldið til haga að hvenær sem myrkraöflin ná yfirhöndinni á jörðinni kemur Vishnú mannkyninu til bjargar með því að holdgerast sem avatar. (Í þessari merkingu orðsins er Jesús Kristur holdtekning Vishnú. Sama máli gegnir um drottin Maitreya, drottin Gátama Búddha, drottin Sanat Kumara. Allir rekja þeir uppruna sinn til annarrar persónu þrenningarinnar, Alheims Krists.) Avatarinn sigrar hið illa og stofnar trúarbrögð fyrir það tímabil sem hann fæddist inn í.

Vishnú hefur þannig holdgerst níu sinnum og hefur ávallt birt eiginleika Hari.[1] Markverðustu birtingarmyndir hans voru Rama og Krishna (áttunda endurholdgun hans).

Vishnú er alltumlykjandi verndari — verndar soninn í birtingu með guðlegri vitund um bæði æðra sjálfið og and-sjálfið. Hann beitir brandi Orðsins til að tortíma með eldi öflum and-sjálfsins sem myndu hrifsa til sín ljós hins sanna sjálfs áður en það verður sjálfsbirt í Guði. Þessi persónugervingur guðdómsins er verndari hinnar guðdómlegu hönnunar sem er mynduð í loga viskunnar út frá lögmætri nærveru kraftsins. Vishnú endurreisir alheiminn með algræðandi ljósi viskunnar, með hugvísindum sem er hinn sanni máttur hinnar upplýstu alkemísku dulefnafræði (gullgerðarlist) ástarinnar.

Maki hans, Lakshmí

Aðalgrein: Lakshmí

Lakshmí, maki Vishnú, er eilíflega auðkennanleg sem umskautun alls þess sem hann er. Hún er spekin afhjúpuð í blessunum sem velmegunin veitir. Hún kallar fram nægtir með vísindum Prakríti og Púrúsha og stjórnun hinna fjögurra kosmísku krafta. Hún ber nægtarhorn með "sjón-hverfingum" hins „alsjáandi auga" ástvinar sinnar. Hún kennir hvernig ná má tökum á karmískum hringrásum á alheimssólskífunni og margbreytileikanum og fegurðinni út frá lögmáli hins eina. Sem hin fagra móðir endurspeglar hún ímynd visku Guðs fyrir börnum sínum með heilbrigði og heilagleika að leiðarljósi.

Lakshmí tók á sig mannsmynd til að þjóna sem félagi hans í hverri endurholdgun hans. Lakshmí endurholdgaðist einnig sem Síta, hin trúfasta eiginkona Rama; kúarekastelpan Radha, hin ástfólgna eiginkona Krishna; og Rúkmíní, prinsessan sem Krishna giftist síðar.

Sjá einnig

Brahma

Shíva

Krishna

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Vishnú”.

“The Divine Lovers,” 1985 Pearls of Wisdom, 1. bindi.

  1. Hari er nafn á Vishnú, stundum þýtt sem „sorgareyðir“ (huggari); talið vera dregið af hri, "að nema á brott eða afnema illsku eða synd."