Resurrection flame/is: Difference between revisions
No edit summary |
No edit summary |
||
Line 7: | Line 7: | ||
<blockquote> | <blockquote> | ||
Áhrif þessa loga á umhverfið þar sem hann stígur niður geta verið sambærileg við orkuna sem losnar við klofnun atómsins. Fyrir áorkan loga upprisunnar valt | Áhrif þessa loga á umhverfið þar sem hann stígur niður geta verið sambærileg við orkuna sem losnar við klofnun atómsins. Fyrir áorkan loga upprisunnar valt steinninn ekki aðeins í burtu heldur klofnuðu grjóthnullungar í sundur, fjöllin færðust, þrumum og eldingum sló niður og dauðinn var numinn úr gildi þegar [[Special:MyLanguage/Jesus|Jesús]] gekk um jörðina uns hann hafði fullnustað æviverki sínu og þjónustu, fullkomin holdtekja anda upprisunnar. | ||
Hinn blessaði [[Special:MyLanguage/Son of man|Mannssonur]] sýndi það sem þarf til að plánetan geti þróast á þessari stundu.<ref>Gautama Buddha, “The Resurrection May Not Be Postponed,” {{POWref-is|33|2|, 14. janúar, 1990}}</ref> | Hinn blessaði [[Special:MyLanguage/Son of man|Mannssonur]] sýndi það sem þarf til að plánetan geti þróast á þessari stundu.<ref>Gautama Buddha, “The Resurrection May Not Be Postponed,” {{POWref-is|33|2|, 14. janúar, 1990}}</ref> |
Latest revision as of 21:20, 16 June 2024
Ris upprisulogans er hröðun á þrígreinda loganum þar sem rauðgulu, bláu og gulu skúfarnir blandast saman sem einn logi sem hefur regnbogaljómun perlumóður. Tilvist litrófsins innan logans táknar að styrkur hans eða hraði er rétt undir því sem er í hreinum hvítum eldi uppstigningarstraumsins.
Upprisuloginn er notaður til að endurlífga og lækna hina fjóra lægri líkama með því að losa kraftinn sem er læstur inni í hvítum eldkjarna hverrar frumeindar mannsins. Uppstigningarloginn notast til að hraða á hinum fjórum líkömum hans að því marki að þeir sameinast ekki aðeins við hin hvíta eldkjarna frumeinda hans heldur einnig við hans eigin ÉG ER-nærveru. Þannig að í ákalli upprisulogans er ljósið innan frá frumeindunum dregið út á við til þess að lækna „hold“ mannsins. Í ákalli uppstigningarlogans er holdinu sjálfu hraðað að tíðni ljóssins innan frumeindarinnar.
Gátama Búddha lýsir krafti upprisulogans:
Áhrif þessa loga á umhverfið þar sem hann stígur niður geta verið sambærileg við orkuna sem losnar við klofnun atómsins. Fyrir áorkan loga upprisunnar valt steinninn ekki aðeins í burtu heldur klofnuðu grjóthnullungar í sundur, fjöllin færðust, þrumum og eldingum sló niður og dauðinn var numinn úr gildi þegar Jesús gekk um jörðina uns hann hafði fullnustað æviverki sínu og þjónustu, fullkomin holdtekja anda upprisunnar.
Hinn blessaði Mannssonur sýndi það sem þarf til að plánetan geti þróast á þessari stundu.[1]
Sjá einnig
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and the Spiritual Path, bls. 88–89.
- ↑ Gautama Buddha, “The Resurrection May Not Be Postponed,” Pearls of Wisdom, 33. bindi, nr. 2, 14. janúar, 1990.