False gurus/is: Difference between revisions

From TSL Encyclopedia
No edit summary
No edit summary
Tags: Mobile edit Mobile web edit
Line 24: Line 24:
Falsgúrúinn setur sig ekki aðeins í stöðu staðgengils [[tvíburalogans]] heldur einnig í stöðu hinnnar einstaklingsbundnu [[ÉG ER-nærveru]] og hins persónulega milligöngumanns og kennara, hins [[heilaga Krists-sjálfs]] og rýfur leitina að hinum elskaða tvíburaloga með ýmsum hætti, þar á meðal:  
Falsgúrúinn setur sig ekki aðeins í stöðu staðgengils [[tvíburalogans]] heldur einnig í stöðu hinnnar einstaklingsbundnu [[ÉG ER-nærveru]] og hins persónulega milligöngumanns og kennara, hins [[heilaga Krists-sjálfs]] og rýfur leitina að hinum elskaða tvíburaloga með ýmsum hætti, þar á meðal:  


* Hænir chela-nemann að sjálfum sér í síngjörnum tilgangi með ýmsum aðferðum eins og [[tantrískri vígslu]] eða með þvingaðri hækkun á [[Kúndalíni-slöngukraftinum]] áður en ákveðin sjálfsfærni og jafnvægi er náð með því að jafna karma.
* Hænir chela-nemann að sjálfum sér í síngjörnum tilgangi með ýmsum aðferðum eins og [[tantrískri vígslu]] eða með þvingaðri hækkun á [[Kúndalíni-slöngukraftinum]] áður en neminn hefur náð ákveðinni sjálfsfærni og jafnvægi með því að jafna karma sitt.
* Leiðir bæði karlkyns og kvenkyns nýnema í kynferðislegum helgisiðum, leynilegum möntru-þulum fyrir meintri yfirfærslu yfirnáttúrulegra krafta eða svokallaðri [[vígslu]] og stuðlar þar með að tilfinningalegri bindingu eða andlegri ánetjun við sjálfan sig.
* Leiðir bæði karlkyns og kvenkyns nýnema í kynferðislegum helgisiðum, leynilegum möntru-þulum fyrir meintri yfirfærslu yfirnáttúrulegra krafta eða svokallaðri [[vígslu]] og stuðlar þar með að tilfinningalegri bindingu eða andlegri ánetjun við sjálfan sig.
* Lokka með fornum hefðum, tungumálum og arfleifðum þar sem falsgúrúinn gerir tilkall til lögmætis með tengslum við meinta rakningu til hinna uppstignu meistara, [[Gátama Búddha]], [[Maitreya]] og [[Sanat Kumara]] auk verklegrar [[lærisveinaþjálfunar]] í því að öðlast yfirnáttúrulega [[siddhi]]-krafta, skaðlegri misnotkun möntru-þula ([[svartagaldri]]) með því að særa [[náttúruanda]] til að ná dutlungafullri stjórnun á náttúruöflum til að vinna óvinum mein eða þeim sem eru gegn galdramanninum eða hafa áhrif á einlægan, trúfastan nema til að fylgja boðum falsgúrúsins.
* Lokka með fornum hefðum, tungumálum og arfleifðum þar sem falsgúrúinn gerir tilkall til lögmætis með tengslum við meinta rakningu til hinna uppstignu meistara, [[Gátama Búddha]], [[Maitreya]] og [[Sanat Kumara]] auk verklegrar [[lærisveinaþjálfunar]] í því að öðlast yfirnáttúrulega [[siddhi]]-krafta, skaðlegri misnotkun möntru-þula ([[svartagaldri]]) með því að særa [[náttúruanda]] til að ná dutlungafullri stjórnun á náttúruöflum til að vinna óvinum mein eða þeim sem eru gegn galdramanninum eða hafa áhrif á einlægan, trúfastan nema til að fylgja boðum falsgúrúsins.

Revision as of 13:14, 11 July 2024

Other languages:
Hluti af greinasafni um
Hið falska helgivald



   Megingreinar   
Falska helgivaldið
Fallnir englar
Andkristur



   Einstakir fallnir englar   
Belsebúb
Varmenni
Lúsífer
Samael
Satan
Höggormurinn
—————
Peshú Alga



   Flokkur fallinna engla   
Nefilím (Risarnir)
Verðirnir
Lúsíferar
Höggormar
Djöfladýrkendur
Djöflar
Synir Varmennis



   Greinar af hinu falska bræðralagi   
Illúmínati
Hið indverska svartbræðralag
Bræðralag hins svarta hrafns
Falskir gúrúar
 

El Morya talar um falska gúrúa og falska kennara:

Í gegnum aldirnar höfum við skipað boðbera okkar, lögmálsspámenn, kennara á vegum Krists-vitundarinnar og búddhíska ljóssins. Aðrir sem við myndum kalla óskipaða, eða sjálfskipaða, boðbera hafa blákalt sölsað undir sig vegtyllur sínar og stöður innan helgivaldsins. Og svo er hér að finna framandi táldragandi anda sem blekkja eins og höggormurinn. Þeir koma ekki í sönnum spádómsanda né bera þeir með sér gjafir heilags anda; þetta eru raddir uppsteyta og galdra, fánýtra ræðumanna og svikara. Þeir stara í kristalkúlur og stunda sálrænan lestur, þeir eru sjálfskipaðir messíasar – seiðmagnaðir og seiðandi, koma í nafni kirkjunnar en afneita hinni sönnu kirkju, koma í nafni Logosins en líf þeirra er samt svik við sanna skynsemi og lögmálið.

Þeir eru erkisvikarar mannkyns. Þeir geta brugðið sér í líki hinna uppstignu meistara og sannra gúrúa. Þeir gera sig út fyrir að vera gúrúar og sitja í lótusstöðunni við að reykja friðarpípu með falska helgivaldinu, útbýta eiturlyfjum með djöflum og þjálfa jafnvel aganema sína í að örva kynorkuna til nautna og munúðar. Í taumlausri valdagræðgi sinni kenna þeir veginn til Guðs með innrætingu á kynferðislegri brenglun, misnotkun á líkamanum og vanhelgun á móðurgyðjunni. Og ljósið sem þeir stela frá þeim sem þeir hafa ánetjað nota þeir til að seðja hamslausar girndir sínar og til að ná valdi yfir fjölda manns með göldrum, afbrigðileika og deyðandi formælingum.

Aðrir eru í bransanum til að þjálfa „miðla“ og sálræna heilara. Þeir þekkja ekki muninn á andlegri orku og sálarorku – hinu tæra og hinu óhreina orkustreymi. Þannig gera þeir hina trúgjörnu að orkurás fyrir forarvilpuna og ormagryfjuna, fyrir djöfullegt muldur illvætta og „seiðskratta sem tísta og tuldra“. Falska helgivaldið og hinir föllnu koma í mörgum gervum, leitast við að heilla og töfra hið óþroskaða mannkyn með látbragði sínu, dávaldi og fjarskyggni, á fljúgandi diskum sínum og öðrum tálbrögðum.

Ég segi vei þeim sem hafa náð hugrænni færni í því að höndla með efnið og sálarorkuna en hafa samt ekki Krist í sér – snákaolíutöframenn, skottulæknar og skrumarar sem sýna undraverða stjórnun á líkamsstarfseminni en hafa ekki minnsta snefil af sálarstjórn! Eins og þeir hefðu eitthvað að bjóða mannkyninu sem mannkynið getur ekki fengið beint frá sínu eigin Krists-sjálfi, sinni eigin ÉG ER-nærveru og lifandi loganum sem Guð hefur rótfest í hjartanu!

Sumir þeirra, sjálfir blekktir og blekkjandi aðra, ganga svo langt að segja að allir ættu að verða sálrænir miðlarar (psychic channels), allir ættu að þróa sálræna krafta sína. Eins og töframennirnir í hirð Faraós framkalla þeir fyrir boðbera okkar sálræn (yfirnáttúruleg) fyrirbæri og segja: “Sjáið, við gerum það sama!” Ekki svo! Eins og hinir föllnu sem í viðleitni sinni til að jafnast á við helgivaldið og gera sig að jafnokum sona og dætra Guðs, myndu þessir sálrænu miðlar valda því að boðberar okkar og starf þeirra með hið lifandi Orð mengaðist af útflæði sálarefnis sem hið falska helgivald losar.[1]

Vélabrögð

Falsgúrúinn setur sig ekki aðeins í stöðu staðgengils tvíburalogans heldur einnig í stöðu hinnnar einstaklingsbundnu ÉG ER-nærveru og hins persónulega milligöngumanns og kennara, hins heilaga Krists-sjálfs og rýfur leitina að hinum elskaða tvíburaloga með ýmsum hætti, þar á meðal:

  • Hænir chela-nemann að sjálfum sér í síngjörnum tilgangi með ýmsum aðferðum eins og tantrískri vígslu eða með þvingaðri hækkun á Kúndalíni-slöngukraftinum áður en neminn hefur náð ákveðinni sjálfsfærni og jafnvægi með því að jafna karma sitt.
  • Leiðir bæði karlkyns og kvenkyns nýnema í kynferðislegum helgisiðum, leynilegum möntru-þulum fyrir meintri yfirfærslu yfirnáttúrulegra krafta eða svokallaðri vígslu og stuðlar þar með að tilfinningalegri bindingu eða andlegri ánetjun við sjálfan sig.
  • Lokka með fornum hefðum, tungumálum og arfleifðum þar sem falsgúrúinn gerir tilkall til lögmætis með tengslum við meinta rakningu til hinna uppstignu meistara, Gátama Búddha, Maitreya og Sanat Kumara auk verklegrar lærisveinaþjálfunar í því að öðlast yfirnáttúrulega siddhi-krafta, skaðlegri misnotkun möntru-þula (svartagaldri) með því að særa náttúruanda til að ná dutlungafullri stjórnun á náttúruöflum til að vinna óvinum mein eða þeim sem eru gegn galdramanninum eða hafa áhrif á einlægan, trúfastan nema til að fylgja boðum falsgúrúsins.
  • Að hvetja nema til að hugleiða mynd af gúrúinum og fara jafnfram með leynilega möntru gúrúsins: Í stað þess að þessi iðkun færi chela-nemanum ljós, er leiðin til að falsgúrúinn, sem hefur ekkert eigið ljós, tekur í raun ljós frá chela-nemum sínum.
  • Ánetjandi klæðnaðar, mataræðis, skynhelgi og hugleiðslu til að öðlast frið, krafta og persónulegan ávinning (þar á meðal fjárhagslegan) í eigin þágu án þess að miða við markmið heimsþjónustunnar. Þetta leiðir allt inn eigingjarnrar naflaskoðunar - fölsun á vegi Jesú Krists og lærisveina hans sem uppstignu meistararnir kenna - sem aðskilur leitendur frá hinu volduga verki aldanna: björgun sálna og plánetu í neyð með fullri þátttöku í efnahagslegum og pólitískum áskorunum sjálfsstjórnar og sjálfsákvörðunarrétti einstaklingsins til efnahagslegra og andlegrar framþróunar í stórfengilegri tilraun í beitingu hins frjálsa Guðs-vilja.

Sjá einnig

Indverska svarta bræðralagið

Falsk helgivaldið

Heimildir

Pearls of Wisdom, 28. bindi, nr. 33.

  1. El Morya, Chela-neminn og vegurinn: Leiðarlyklar að sálarstjórn á vatnsberaöld, 16. kafli.