Darjeeling Council/is: Difference between revisions
No edit summary Tags: Mobile edit Mobile web edit |
No edit summary Tags: Mobile edit Mobile web edit |
||
Line 16: | Line 16: | ||
Ég tala því við ykkur um þann bakstuðning sem Darjeeling ráðið veiti einstaklingum sem eru í leiðtogastöðu hjá þjóðum sínum, hvort sem það er í ríkisstjórn, efnahagslífi, menntun eða listum og vísindum. Við eigum fjölmarga fulltrúa, kæru vinir og við teljum þig líka á meðal þeirra. | Ég tala því við ykkur um þann bakstuðning sem Darjeeling ráðið veiti einstaklingum sem eru í leiðtogastöðu hjá þjóðum sínum, hvort sem það er í ríkisstjórn, efnahagslífi, menntun eða listum og vísindum. Við eigum fjölmarga fulltrúa, kæru vinir og við teljum þig líka á meðal þeirra. | ||
Við biðjum ykkur um að koma til Darjeeling og | Við biðjum ykkur um að koma til Darjeeling og berja á dyr Darjeeling-athvarfsins okkar í kvöld, til að kynna ykkur og gera okkur grein fyrir starfsgreinum ykkar, köllun ykkar og hvernig þið munið ljá hæfileika ykkar til þessa viðleitni. Því að það eru fimm og hálfur milljarður sála, meira og minna, í endurholdgun og margar hinna framliðnu leita að inngöngu í þennan heim. Og við verðum að gæta þeirra eins og við myndum annast hjörð Drottins. | ||
Við biðjum ykkur um að koma til Darjeeling og banka á dyrnar á Darjeeling-athvarfinu okkar í kvöld, til að kynna ykkur og gera okkur grein fyrir starfsgreinum ykkar, köllun ykkar og hvernig þið munið ljá hæfileika ykkar til þessa viðleitni. Því að það eru fimm og hálfur milljarður sála, meira og minna, í holdgervingu og margar úr holdgervingu leita að inngöngu í þennan heim. Og við verðum að gæta þeirra eins og við myndum annast hjörð Drottins. | Við biðjum ykkur um að koma til Darjeeling og banka á dyrnar á Darjeeling-athvarfinu okkar í kvöld, til að kynna ykkur og gera okkur grein fyrir starfsgreinum ykkar, köllun ykkar og hvernig þið munið ljá hæfileika ykkar til þessa viðleitni. Því að það eru fimm og hálfur milljarður sála, meira og minna, í holdgervingu og margar úr holdgervingu leita að inngöngu í þennan heim. Og við verðum að gæta þeirra eins og við myndum annast hjörð Drottins. |
Revision as of 12:33, 22 May 2024
Ráð Stóra hvíta bræðralagsins sem samanstendur af uppstignum meisturum og óuppstignum chela-nemum undir forystu El Morya, yfirmanns þess, með höfuðstöðvar í Darjeeling á Indlandi, í Musteri góðviljans.
Meðal aðila eru María guðsmóðir, Kuan Yin, Mikael erkiengill, hinn Mikli guðlegi stjórnandi, Serapis Bey, Kúthúmi, Djwal Kúl og fjölmargir aðrir sem hafa það að markmiði að þjálfa sálir til heimsþjónustu í Guðs-stjórn og til þjónustu við efnahagslífið, alþjóðleg samskipti og með uppbyggingu sambands við innri Krist sem grundvöll trúar, menntunar og endurkomu gullaldarmenningar í tónlist og öðrum listgreinum.
El Morya útskýrir:
Það eru því hundrað fjörutíu og fjórir innvígðir félagar Darjeelingráðsins. Og það eru aðrir félagar og aðstoðarmenn félaga sem við berum mikla virðingu fyrir. Þeir þjóna með hinum hundrað fjörutíu og fjórum útvöldu og öðrum sem ná út fyrir þann hring. Margir af þessum eru fylgismenn, rannsóknaraðstoðarmenn og þeir sem eru með okkur við að leita í duldar skrár akasha svo að við getum leitt þessa siðmenningu til meiri framfara en hafa náðst í fyrri siðmenningum vegna blindu fólksins eða vegna sjálfshyggju þess eða karma.
Þannig, kæru vinir, þekkið þið nöfn ákveðinna aðila sem eru hluti af innsta hring hinna hundrað fjörutíu og fjögurra – hinn Mikla guðlega stjórnanda, hina blessaðu Maríu guðsmóður, hinn Máttuga sigurvegara, ykkar eigin ástfólgna vin Lanelló, þá sem hafa komið frá athvörfum chohan-meistaranna og chohan-meistarana sjálfa. Erkienglar þjóna einnig í ráðinu.
Og þessi flokkur, þar sem hver félagi margfaldar rafræna viðveru sína, nær til og snertir jarðarsálir – hverja sál á sínum stað og stund. ...
Hinir hundrað fjörutíu og fjórir félagar sem mynda kjarna Darjeeling ráðsins hafa samskipti við margar sálir á jörðinni, og þetta er meginástæða þess að þeir hafa verið valdir til að vera í ráðinu. Fyrir uppstigningu þeirra höfðu þessir uppstignu meistarar og englaverur persónuleg samskipti sem viðhéldust í gegnum aldirnar við einstaklinga sem enn eru í endurfæðingu, sem margir hverjir eru nú tilbúnir að taka ábyrgð á hvernig komið er fyrir þróun jarðarinnar. ...
Ég tala því við ykkur um þann bakstuðning sem Darjeeling ráðið veiti einstaklingum sem eru í leiðtogastöðu hjá þjóðum sínum, hvort sem það er í ríkisstjórn, efnahagslífi, menntun eða listum og vísindum. Við eigum fjölmarga fulltrúa, kæru vinir og við teljum þig líka á meðal þeirra.
Við biðjum ykkur um að koma til Darjeeling og berja á dyr Darjeeling-athvarfsins okkar í kvöld, til að kynna ykkur og gera okkur grein fyrir starfsgreinum ykkar, köllun ykkar og hvernig þið munið ljá hæfileika ykkar til þessa viðleitni. Því að það eru fimm og hálfur milljarður sála, meira og minna, í endurholdgun og margar hinna framliðnu leita að inngöngu í þennan heim. Og við verðum að gæta þeirra eins og við myndum annast hjörð Drottins.
Við biðjum ykkur um að koma til Darjeeling og banka á dyrnar á Darjeeling-athvarfinu okkar í kvöld, til að kynna ykkur og gera okkur grein fyrir starfsgreinum ykkar, köllun ykkar og hvernig þið munið ljá hæfileika ykkar til þessa viðleitni. Því að það eru fimm og hálfur milljarður sála, meira og minna, í holdgervingu og margar úr holdgervingu leita að inngöngu í þennan heim. Og við verðum að gæta þeirra eins og við myndum annast hjörð Drottins.
Sjá einnig
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.