Seraphim/is: Difference between revisions

From TSL Encyclopedia
No edit summary
No edit summary
Tags: Mobile edit Mobile web edit
Line 27: Line 27:
Ég sá greinilega að frásogi var náð og áhrif urðu eftir — frásog vegna tafarlausrar umbreytingar á öllu efni sem kom nálægt braut þeirra. Ég tók líka eftir að áhrifin skildu eftir sig mikla hollustu við hinn hvíta eld, þrungin þrá eftir hreinleika.

Ég skynjaði að þessi eiginleiki dvaldi í vitund margra; og þó, ekki nema hann væri endurnærður eða hlyti viðtöku hjá þeim, myndi honum hnigna í vitund þeirra eftir tiltölulega stuttan tíma, því að sundrun þessara hugmynda myndi valda því að það sem eftir tórði af neistum serafanna myndi hverfa aftur til föðurhúsanna og yfirgefa hið bráðabirgða ógestrisna heimili þeirra. Að tengja sig við vitund serafanna jafngildir því að viðhalda ávinningnum sem serafarnir veita.
Ég skynjaði að þessi eiginleiki dvaldi í vitund margra; og þó, ekki nema hann væri endurnærður eða hlyti viðtöku hjá þeim, myndi honum hnigna í vitund þeirra eftir tiltölulega stuttan tíma, því að sundrun þessara áhrifa myndi valda því að það sem eftir tórði af neistum serafanna myndi hverfa aftur til föðurhúsanna og yfirgefa hið bráðabirgða ógestrisna heimili þeirra. Að tengja sig við vitund serafanna jafngildir því að viðhalda ávinningnum sem serafarnir veita.

Ég veit um engan kraft sem er tignari til að aðstoða nokkurn mann til að stíga upp í ljósið en hin umbreytandi viðleitni til að öðlast hreinleika alheims-Krists sem serafískar hersveitit geisla frá sér. Í athvarfi okkar í Lúxor eru hugleiðingar um serafana mjög mikilvægur þáttur andlegrar kennslu okkar.

Revision as of 20:22, 15 November 2024

Other languages:
Varir Jesaja smurðar með eldi, Benjamin West

[Hebreska, Seraph et., seraphim, ft.] Þekkjast einnig sem serafasveitir. Englaregla sem helgar sér af hafa loga hreinleikans í brennidepli og gera hreint fyrir hásæti Guðs í rafrænum eldhringjum í kringum Meginsólina miklu og um allan algeim á sviðum efnis og anda.

Jústiníus er höfðingi serafasveitanna. Undir stjórn hans þjóna þeir við altari Guðs í Meginsólinni miklu og við uppstigningarlogann og uppstigningarmusterið í Lúxor. Serafis Bey, yfirstjórnandi uppstigningarmustersins og chohan-meistari fjórða geislans var upphaflega af reglu serafanna.

Sýn Jesaja á seröfum

Jesaja sá „serafa“ [hebreska, „brennarar“, „brennandi“] standa fyrir ofan hásæti Drottins, hver og einn með sex vængi:

Serafar stóðu fyrir ofan hann. Hafði hver þeirra sex vængi: með tveimur huldu þeir ásjónu sína (frammi fyrir dýrð Drottins), með tveimur huldu þeir fætur sína (í lotningu frammi fyrir heilagleika Drottins) og með tveimur flugu þeir (hækkuðu sveiflutíðni hans til sviða Meginsólarinnar miklu, lækkuðu hans til sviða efnis og forms).[1]

Serafarnir vígja þjóna Drottins á jörðu og hreinsa og hreinka þá sem útvaldir eru til að vera þjónar hans – prestar, spámenn, boðberar o.s.frv. Jesaja fékk sjálfur serafíska vígslu sem hann lýsir líflega:

Þá flaug einn serafanna til mín. Hann hélt á glóandi koli sem hann hafði tekið af altarinu með töng. Hann snerti munn minn með kolinu og sagði: „Þetta hefur snortið varir þínar, sekt þín er frá þér tekin og friðþægt er fyrir synd þína.[2]

Hlutverk serafanna

Serafis Bey lýsir sýn sinni á seröfum í Dossier on the Ascension (Uppstigningarskjölin):

Serafarnir komu og þeir voru eins og logandi eldrákir sem fóru í gegnum andrúmsloftið og ég vissi að þeir bjuggu yfir kosmískri gegndrægni. Eins og geimgeislar gætu þeir farið í gegnum holdafar mannsins, í gegnum hugsanir hans og tilfinningar. Hvaða áhrif urðu eftir eða hvaða frásogi var náð við gegndrægni þegar serafarnir flugu í gegnum vitund mannsins?

Ég sá greinilega að frásogi var náð og áhrif urðu eftir — frásog vegna tafarlausrar umbreytingar á öllu efni sem kom nálægt braut þeirra. Ég tók líka eftir að áhrifin skildu eftir sig mikla hollustu við hinn hvíta eld, þrungin þrá eftir hreinleika.

Ég skynjaði að þessi eiginleiki dvaldi í vitund margra; og þó, ekki nema hann væri endurnærður eða hlyti viðtöku hjá þeim, myndi honum hnigna í vitund þeirra eftir tiltölulega stuttan tíma, því að sundrun þessara áhrifa myndi valda því að það sem eftir tórði af neistum serafanna myndi hverfa aftur til föðurhúsanna og yfirgefa hið bráðabirgða ógestrisna heimili þeirra. Að tengja sig við vitund serafanna jafngildir því að viðhalda ávinningnum sem serafarnir veita.

Ég veit um engan kraft sem er tignari til að aðstoða nokkurn mann til að stíga upp í ljósið en hin umbreytandi viðleitni til að öðlast hreinleika alheims-Krists sem serafískar hersveitit geisla frá sér. Í athvarfi okkar í Lúxor eru hugleiðingar um serafana mjög mikilvægur þáttur andlegrar kennslu okkar.

Jesús sjálfur varði miklum tíma í samfélagi við serafísku sveitirnar. Þetta þroskaði með honum æðri mátt til að reka út illa anda og ná valdi yfir heimi efnisformsins.

Möntru-þulan sem serafarnir syngja án afláts fyrir hásæti Drottins er: „Heilagur, heilagur, heilagur er Drottinn allsherjar, öll jörðin er full af hans dýrð.“[3]

Sjá einnig

Hið þögla vitni

Jústiníus, Höfðingi serafasveitanna

Til frekari upplýsinga

Serapis Bey, Dossier on the Ascension, bls. 115–40.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

  1. Isa. 6:2.
  2. Jes. 6:6–7.
  3. Jes. 6:3.