Upprisuloginn
Ris upprisulogans er hröðun á þrígreinda loganum þar sem rauðgulu, bláu og gulu skúfarnir blandast saman sem einn logi sem hefur regnbogaljómun perlumóður. Tilvist litrófsins innan logans táknar að styrkur hans eða hraði er rétt undir því sem er í hreinum hvítum eldi uppstigningarstraumsins.
Upprisuloginn er notaður til að endurlífga og lækna hina fjóra lægri líkama með því að losa kraftinn sem er læstur inni í hvítum eldskjarna hverrar frumeindar mannsins. Uppstigningarloginn notast til að hraða á hinum fjórum líkömum hans að því marki að þeir sameinast ekki aðeins við hin hvíta eldkjarna frumeinda hans heldur einnig við hans eigin ÉG ER-nærveru. Þannig að í ákalli upprisulogans er ljósið innan frá frumeindunum dregið út á við til þess að lækna „hold“ mannsins. Í ákalli uppstigningarlogans er holdinu sjálfu hraðað að tíðni ljóssins innan frumeindarinnar.
Gátama Búddha lýsir krafti upprisulogans:
Áhrif þessa loga á umhverfið þar sem hann stígur niður geta verið sambærileg við orkuna sem losnar við klofnun atómsins. Fyrir loga upprisunnar var steininum ekki aðeins velt í burtu, heldur voru grjóthnullungar klofnir í sundur, fjöllin færðust, þrumum og eldingum sló niður og hinu dauðlega var lagt niður þegar Jesús gekk um jörðina til æviloka sinna og þjónustu, fullkominn holdgervingur anda upprisunnar.
The blessed one, as the Son of man, did demonstrate what must be demonstrated by the evolutions of the planet in this hour.[1]
Sjá einnig
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and the Spiritual Path, bls. 88–89.
- ↑ Gautama Buddha, “The Resurrection May Not Be Postponed,” Pearls of Wisdom, vol. 33, no. 2, January 14, 1990.