Antahkarana

From TSL Encyclopedia
Revision as of 11:26, 6 August 2024 by Hbraga (talk | contribs)

[Sanskrítarorð fyrir „innra skynfæri“] Lífsvefurinn. Ljósnet sem spannar Anda og efni sem tengir og fínstillir sköpunina innra með sér og við hjarta Guðs.

Antahkarana er samsett úr fíngerðum netþráðum sem tengja þjónustu hins Þögla vitnis um allan algeim. Antahkarana er orkuleiðari segulmagns Stóru meginsólarinnar. Kristalstrengurinn sem tengir Guðs-sjálfið og Krists-sjálfið hvers einstaklings við segulmagn Stór meginsólarinnar er hluti af þessu antahkarana.

Gátama Búddha hefur minnst á þetta antahkarana:

Ég er Gátama, faðir margra. Ég heilsa ljósi Guðs-móðurinnar, hinum holdi klædda loga þess sem ég dýrka. Ég heilsa ljósi sonarins, þið hin Krists-bornu.

Ég spinn antahkarana lífsins, gullna vefinn, með spunaþræði algeimsvitundarinnar. Já, látið antahkarana vera yfir ykkur sem vörð um þróun sálar ykkar. Eins og móðirin hefur fært ykkur í klæði sín, þannig kem ég fyrir hinum gullna ljósþræði antahkarana. Og sumar ykkar, sem mæður, getið heklað, með gullnum þræði og hvítum, með þessu antahkarana sem skurðpunkti til að verja vitundina og innsigla hana með gullnu keðjubrynjunni, gegn efnismengun frá stigum geðheimsvitundarinnar.

Svo látum þetta klæði vera vernd föðurins, möttul hreinleikans. Og látum það vera sem lífsvef. Látum það hefjast frá miðjunni, þegar köngulærnar spinna vef sinn í eftirlíkingu af hinum mikla algeimsveruleika í huga Guðs sem spannar algeiminn. Línu fyrir línu, varlega, látum það nú vera heklað til verndar ungdóminum í reifum, sem möttul, eins og vetrasjal. Látum það vera til minningar um Gátama sem kom til að bregða sverði, sverði í nafni ÉG ER!

Og nú tek ég sverðið og læt sverðið falla. Og svo er blæja hins illa, galdra, sem hefur verið spunnin á hverjum og einum, nú rofin! Það eru teikn á þessu efni sem er afmyndað og myrkurshula yfir jörðu og þjóðum er rofin. Og þið munuð sjá hvernig vitund Drottins heimsins, sem dýrkendur móðurinnar kalla fram, kemur reifum Drottins heimsins fyrir í stað þessa efniskjarna og efniviði myrkursins. ...

Helgivaldið er komið til að vera, taka sér bólstað, til að hækka vitund mannkyns, til að lyfta henni upp til hæstu hæða Guðs til að finna flæði lífsins, kærleika og sannleika, lifandi uppsprettu eilífrar æsku. Helgivaldið er komið til að vera og þið myndið helgivaldið alla leið — þið í vaxtasprota Guðs-logans sem tengist vaxtarmegni hins Stóra hvíta bræðralags, þið sem lifandi, lifandi vitni um Orðið. Þið eruð holdtekjur Drottins. Þið eruð helgivaldið, svo að ofan sem að neðan. Þið eruð antahkarana. Látið ljósið streyma![1]

Ratnasambhava hefur sagt um antahkarana:

Allt líf er samtengt. Og þess vegna, hvenær sem hinir ódauðlegu tala í gegnum endurfædda sál á þessu efnissviði þá berst orðið til allra lífsstrauma sem á sama hátt hafast við á þessari bandvídd orkunnar, sem er tími ykkar og rúm og ykkar deild til að vinna að framgangi tilgangs lífsins – dharma ykkar sem og karma ykkar.

Vitið þá þetta – að önnur hlutverk þess að hafa boðbera og fyrirmæli er sameining með „antahkarana“, hinum mikla ljósvef, allra sála af svipaðri þróun. Og þegar antahkarana titrar fyrir hendi hins mikla meistaralista lífsins, er stigið upp, stillt hljóðið sem heyrist frá titringi antahkarana. Og þar sem þú ert fær um að fara yfir ákveðna lægri þætti, finnurðu sjálfan þig að rísa upp á ný stig lífsvefsins og að stilla þig upp á hærra hljóðið. Þetta er hinn mikli leyndardómur tilverunnar – að þú líka, þótt þú teljir þig takmarkaðan, ert með okkur „alls staðar í vitund Guðs.“[2]

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Path of Brotherhood.

  1. Gautama Buddha, “Nourish Love in the Heart of Humanity,” Pearls of Wisdom, 56. bindi, nr. 1, 1. janúar, 2013.
  2. Ratnasambhava, „Elements of Being,“ Pearls of Wisdom, 37. bindi, nr. 6, 6. febrúar, 1994.