Upprisuloginn

From TSL Encyclopedia
Revision as of 12:54, 12 June 2024 by Hbraga (talk | contribs)
Other languages:

Ris upprisulogans er hröðun á þrígreinda loganum þar sem rauðgulu, bláu og gulu skúfarnir blandast saman sem einn logi sem hefur regnbogaljómun perlumóður. Tilvist litrófsins innan logans táknar að styrkur hans eða hraði er rétt undir því sem er í hreinum hvítum eldi uppstigningarstraumsins.

Upprisuloginn er notaður til að endurlífga og lækna hina fjóra lægri líkama með því að losa kraftinn sem er læstur inni í hvítum eldskjarna hverrar frumeindar mannsins. Uppstigningarloginn notast til að hraða á hinum fjórum líkömum hans að því marki að þeir sameinast ekki aðeins við hin hvíta eldkjarna frumeinda hans heldur einnig við hans eigin ÉG ER-nærveru. Þannig að í ákalli upprisulogans er ljósið innan frá frumeindunum dregið út á við til þess að lækna „hold“ mannsins. Í ákalli uppstigningarlogans er holdinu sjálfu hraðað að tíðni ljóssins innan frumeindarinnar.

Gátama Búddha lýsir krafti upprisulogans:

Áhrif þessa loga á umhverfið þar sem hann stígur niður geta verið sambærileg við orkuna sem losnar við klofnun atómsins. Fyrir loga upprisunnar var steininum ekki aðeins velt í burtu, heldur voru grjóthnullungar klofnir í sundur, fjöllin færðust, þrumum og eldingum sló niður og dauðinn var lagður niður þegar Jesús gekk um jörðina uns hann hafði fullnustað æviverk sitt og þjónustu, fullkominn holdgervingur anda upprisunnar.

Hinn blessaði Mannssonur sýndi það sem þarf til að plánetan geti þróast á þessari stundu.[1]

Sjá einnig

Upprisan

Logar Guðs

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and the Spiritual Path, bls. 88–89.

  1. Gautama Buddha, “The Resurrection May Not Be Postponed,” Pearls of Wisdom, 33. bindi, nr. 2, 14. janúar, 1990.