Regla barnsins

From TSL Encyclopedia
Revision as of 14:55, 28 May 2024 by Hbraga (talk | contribs)
Other languages:

Template:Heilagar reglur

Fyrsta Ashram, minnisbókin, dagsett 26. apríl 1951. Þar barst tilkynning frá Mark L. Prophet til chela-nema um myndun „Reglu barnsins“ – heilög regla fyrir löggjafa, valdhafa, menningarmálastjóra og borgara sem gefa heit um að „minnast ætíð framtíð hins littla barns“. Í bréfinu var skýrt:

Það eru engin gjöld, engar reglur nema maður heitir því að verja einni mínútu á dag í að lesa nokkur orð skráð á aðildarskírteinið sem maður setur upp á vegg skrifstofu sinnar. Aðild er fyrir lífstíð (ad vitam). Og það eru engir fundir nema heit um að funda með eigin huga og hjarta frammi fyrir Guði. Einnig loforð um að standa augliti til auglitis við þetta vottorð og leggja samvisku sína undir litla barnið í hverju því máli sem felur í sér ákvörðun sem hefur áhrif á líf annarra.

Ástfólginn Kúthúmi talar um Reglu barnsins:

Þessi Regla hins heilaga barns er til varnar barnsins á öllum geislunum sjö: vernd barnsins, menntun barnsins, kennsla barnsins sem varðar kærleik, að gefa og þiggja. Það er hinn tæri vegur sem er skýrleikinn í hjartanu til að sækjast eftir markmiði lífsins. Það er fræðsla um vísindi og heilbrigði og allsnægtir, kennsla og þjálfun barnshjartans – hjarta þíns og annarra barna – á vegi þjónustunnar, veg frelsisins og heilagra reglna. Allt þetta verður hluti af Orði okkar og starfi.[1]

Kuthumi útskýrir að þessi skipan sé hluti af Reglu Francis af Assissi og Clare.

Til frekari upplýsinga

Vefsíða helguð heilögum reglum.

Heimildir

  1. Kuthumi „Remember the Ancient Encounter,“ Pearls of Wisdom, 28. bindi, nr. 9, 3. mars, 1985.